Skutull

Volume

Skutull - 13.11.1954, Page 2

Skutull - 13.11.1954, Page 2
2 SKUTULL SKÍÐANÁMSKEIÐ Skíðadeild Harðar gengst fyrir skíða- kennslu á Seljalands- dal. — Bílferðir verða frá kaupfélagshúsinu kl. 9i/2 á sunnudögum. Námskeiðið er ókeypis og allir velkomnir. SKÍÐADEILD HARÐAR. Tillaga Alþýðuflokksins á Alþingi: Endurskoðað hvort lengur er þör£ á dvöl varnarliðsins í landinu. Náist ekki samkomulag' um endurskoðun, skal samn- ingnum sagt upp einhliða. SKUTULL Otgefandi: Alþýðuflokkurinn á Isafirði Ábyrgðarmaður: Birgir Finnsson Neðstakaupstað, Isaf. — Sími 13 Afgreiðslumaður: GuSmundur Bjarnason Alþýðuhúsinu, Isaf. — Sími 202 Innheimtumaðui: Haraldur Jónsson Þvergötu 3. lsaíiröi Fáein orð um her- námið. Það skeði nýlega á Baldurs- fundi, að Halldór Ólafsson, bóka- vörður, dró upp úr pússi sínu skjal nokkurt, sem hann kvað vera áskorun um brottflutning setuliðsins úr landinu, og bað menn skrifa undir. Eigi var þetta mál á dagskrá fundarins, en Halldór flutti þarna ræðustúf máli sínu til stuðnings, og gerðist und- irritaður þá svo djarfur að lýsa stuttlega sínu viðhorfi til þessa máls, og út af því hefir Halldóri fundist, að ekki dygði minna, en að tefla á móti mér sjálfum for- sætisráðherra Bretaveldis og enn fremur sprenglærðum kjarnorku- fræðingi sbr. blaðið Baldur 15. okt. s.l., þar sem mjög villandi er skýrt frá þessum orðaskiptum. Ég spurði Halldór að því á Baldursfundinum, er hann hafði flutt áskorun sína, hvort hann gæti nokkuð sagt fundarmönnum um það, hvenær Sovétríkin myndu byrja að afvopnast. Hann svaraði hreinskilnislega, að um þetta vissi hann ekkert, og lýsti ég þá yfir því, að meðan óvissa væri ríkj- andi um það atriði, væri ég fyrir mitt leyti ekki fyllilega við því búinn að skrifa undir áskorun um brottflutning setuliðsins, enda þótt mér væru eins vel ljósir og Halldóri, þeir annmarkar, sem á hersetunni eru fyrir þjóðina. Halldór byrjaði þá á hernaðar- fræðilegum hugleiðingum um það, að okkur væri lítið hald í vörn- um Bandaríkjamanna hér á landi, ef til styrjaldar kæmi, og vildi fá mig til að ræða málið á þeim grundvelli. Ég sagði hon- um, að ég væri enginn sérfræð- ingur í þeim hlutum, aftur á móti ættu bæði Bandaríkin og Sovétin næga sérfræðinga í þeim efnum, og vildu þeir fyrrnefndu hafa hér herstöðvar, líklega af því að þeir teldu sér það mikilvægt, og hinir síðarnefndu vildu, að hér væru engar herstöðvar, sennilega vegna þess, að það ástand teldu þeir haganlegt fyrir sig sjálfa, en ekki af neinni umhyggju fyrir íslendingum. Hvað sem liði hemaðarlegu gildi hersetunnar, þá hefði það atriði, að Islendingar gengu í sam- tök lýðfrjálsra þjóða, haft mikla þýðingu fyrir okkur, því að það væri einmitt vegna þessara vold- ugu samtaka, sem nú horfði frið- vænlegar í heiminum en oft áður, og það svo, að nú væru stórþjóð- irnar farnar að ræða um afvopn- un og hagnýtingu kjamorku af meiri sáttfýsi en að undanfömu, og þegar í ljós kæmi jákvæður árangur af þeim viðræðum, þá gætum við bundið enda á her- setuna. Þannig lýsti ég á umræddum Baldursfundi minni skoðun á þessum málum, og að mínum dómi er það mikilvægt að lýð- frjálsar þjóðir gleymi ekki reynslunni af viðskiptum nazista- og fasistaríkjanna við varnar- lausar þjóðir. Einræðisþjóðir not- færa sér ávalt varnar- og samtaka- leysi til ágengni og árása. Þær ganga aldrei til friðsamlegra samninga við þann gagnaðila, sem er veikur fyrir. Einungis samtök og máttur lýðræðisþjóða getur komið að haldi gegn kúg- unaráformum einræðisríkja, og það er þetta, sem hefir gert það að verkum, að hinn vopnaði rússneski björn er til viðtals nú. Ef til friðsamlegs uppgjörs kem- ur á næstunni, þá styrkir það auðvitað aðstöðu Rússa, ef and- stæðingar þeirra byrja í upphafi þess uppgjörs að leysa upp sam- tök sín, og þess vegna verða lýð- ræðisþjóðimar að fara varlega í því efni. Sem betur fer, er samt svo komið, að nú virðast horfur á samkomulagi milli stórþjóðanna betri en oft áður, og þessar batn- andi samkomulagshorfur meta þingmenn Alþýðuflokksins á þann veg, sem fram kemur í tillögu til þingsályktunar, um endurskoðun þess, hvort lengur sé þörf á dvöl varnarliðsins í landinu. Þessi tillaga birtist á öðrum stað hér í blaðinu til glöggvunar fyrir þá, sem vilja kynna sér afstöðu Al- þýðuflokksins til þessa mikilvæga máls, en tillagan er í fullu sam- ræmi við samþykktir síðasta flokksþings Alþýðuflokksins um þetta efni, og er flutt af öllum þingmönnum flokksins í samein- uðu þingi. Birgir Finnsson. --------O--------- Leiðréttingar. í 9. tbl. Skutuls varð sú mis- sögn í andlátsfregn Ármanns heit. Halldórssonar, að foreldrar hans væru bæði látin. Þetta er ekki rétt. Móðir hans, Elísabet Bjarna- dóttir, er á lífi 79 ára gömul, og býr hún hjá Gunnlaugi syni sínum hér í bæ. í sama blaði var einnig sagt að Guðrún heitin Benjamínsdóttir hafi verið gift Pétri Bjarnasyni, en svo var ekki. Blaðið biður velvirðingar á þess- um leiðu mistökum. Með tilvísun til 7. gr. varnar- samnings milli Islands og Banda- ríkjanna, frá 5. maí 1951, og með hliösjón af því, að samnings- viðræður ríkisstjórna Islands og Bandaríkjanna fyrr á þessu ári leiddu ekki til viðunandi breyt- inga á nefndum samningi, ályktar Alþingi að fela ríkisstjórninni, að undanfarinni tilkynningu til Bandaríkjastjórnar, að fara þess á leit við ráð Norður-Atlantshafs- bandalagsins, að það endurskoði hvort lengur þurfi á að halda aðstöðu þeirri, sem Bandaríkjun- um er veitt á íslandi með samn- ingi þessum. Við endurskoðunina skal ríkisstjórnin m.a. leggja á- herzlu á eftirfarandi atriði: Islenzkir aðilar annist allar framkvæmdir, sem ákveðnar voru á grundvelli varnarsamn- ingsins í'rá 1951 og enn er ó- lokið. Sá hluti Keflavíkurflugvallar, sem engöngu eða fyrst og fremst þarf að nota í hernaðar þágu, skal þegar í stað girtur og öll umferð um hann bönnuð. Hið sama á við um þau varnar- svæði önnur, sem þegar hafa verið látin í té. Kíkisstjórnin skal þegar hefja undirbúning þess, að íslending- ar taki í sínar hendur rekstur, viðhald og gæzlu allra þeirra mannvirkja, sem byggð hafa verið eða óbyggð eru á grund- velli varnarsamningsins frá 1951, en leita skal samninga við stjórn Bandaríkjanna eða Norður- Atlantshafsbandalags- ins um greiðslu kostnaðar, sem af því hlýzt, og enn fremur um það, að lslendingum verði látin í té nauðsynleg áðstoð til þess, að þeir læri sem fyrst þau sförf, sem hér er um að ræða. Ekki skal þó þjálía fs- lendingi til neinna hernaðar- starfa. Þegar Islendingar hafa sér- menntað starfsmenn til þess að taka að sér þau störf, sem um ræðir í þriðja lið, eða ráðið erlenda sérfræðinga til að ann- ast þau, getur Alþingi ákveðið með þriggja mánaða fyrirvara, að herlið Bandaríkjanna skuli hverfa frá fslandi. Meðan það er enn í landinu, skal það ein- göngu dveljast á þeim stöðum, sem það hefur fengið til um- ráða. Friðvænlegra ástand. í niðulagi greinargerðar með tillögunni segir svo: Þar eð samningsviðræður þær, sem fram fóru snemma á þessu ári milli stjórna Islands og Bandaríkjanna, leiddu ekki til viðhlítandi breytinga á skipan þessara mála og horfur í alþjóða- málum virðast nú friðvænlegri en um langt skeið, telur Alþýðu- flokkurinn rétt, að Alþingi feli ríkisstjórninni í samræmi við 7. gr. varnarsamningsins, að fara þess á leit við ráð Norður-Atl- antshafsbandalagsins, að það endurskoði, hvort lengur þurfi á að halda aðstöðu þeirri, er Bandaríkjunum var veitt fyrir hönd Norður-Atlantshafsbanda- lagsins með samningnum. Við endurskoðun þá, sem 7. gr. samn- ingsins gerir ráð fyrir, að þá fari fram, telur Alþýðuflokkur- inn, að afstaða ríkisstjórnarinnar eigi að miðast við þá stefnu, sem mörkuð var í fyrrgreindri tillögu til þingsályktunar. Fáist ekki fullnægjandi samkomulag um þessar breytingar innan þess tíma, sem 7. gr. samningsins ger- ir ráð fyrir, þ.e. 6 mánaða, skal ríkisstjórnin til þess að fylgja kröfum þessum eftir, segja samn- ingnum upp, og fellur hann þá úr gildi 12 mánuðum siðar.

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.