Brautin - 26.10.1937, Qupperneq 1
I
| MINNINGARORÐ. I
Sigurður Jóhann Sveinsson
Fanndal var íæddur 6. apríl 1876
að Gunnfríðarstöðum í Húnavatns-
sýslu. Var hann sonur hjónanna
Sigríðar Jónsdóttir og Sveins Jó-
hannssonar bónda. Ólst Sigurður
þar upp til tvítugsaldurs. Um það
leyti fór hann í Möðruvallaskóla.
Að námi loknu fluttist hann til
Akureyrar, lærði þar bakaraiðn og
litlu síðar stofnaði hann verzlun
upp á eigin reikning. 1909 varð
hann verzlunarstjóri Gránuverzl-
unarinnar í Haganesvík. Árið 1910
giftist hann eftirlifandi konu sinni,
Sofíu Bjarnadóttir.
Frá Haganesvík fluttist Sig-
urður aftur til Akureyrar þar sem
hann stofnaði ráðningaskrifstofu
sem þá var hér á landi lítt þekkt
fyrirtæki. Réði Sigurður heitinn
fjölda af verkafólki í ýmiskonar
atvinnu í gegn um ráðningarskrif-
stofu sína. Sýnir þeíta að hann
var langt á undan samtíð sinni
og skyldi betur en flestir aðrir þá
miklu nauðsyn sem það er fyrir
bæði verkamenn og vinnukaup-
endur að til væri stofnun sem
fólk gæti snúið sér til með útveg-
un atvinnu og útvegun á verka-
fólki. 1921 fluttustþau hjón til Siglu-
fjarðar og setti hann á stofn verzl-
un sem hann starfrækti til dauða-
dags.
Þau hjón eignuðust fjögur börn
sem öll eru á lífi. Gest, Svöfu,
Dagmar og Georg.
Eg sem þessar línur skrifa hefi
ekki ætlað mér að skrifa neina
ítarlega æfilýsingu Sigurðar. Til
þess var eg honum ekki nægilega
kunnugur, en eg vil hér rifja upp
fyrstu kynningu mína af honum.
Það var sumarið 1926, eg var hér
á síldarskipi. Fór eg í land og
vildi ná tali af einhverjum sem
eitthvað gæti sagt mér um verk-
lýðshreyfinguna hér. Mér var vísað
til Sigurðar Fanndals, kaupmanns.
Eg varð hissa. Kaupmaður verka-
lýðsforingi. Því hafði eg ekki átt
að venjast frá Reykjavík. Kaup-
mennirnir þar voru þá að minnsta
kosti, flestir ákveðnirandstæðingar
samtökum okkar verkamanna. Eg
fór nú samt til Sigurðar. Hófum
við þegar umræður um verkalýðs-
starfsemina hér og annarstaðar.
Fann eg fljótlega að verkalýður-
inn á Siglufirði átti þar sem hann
var einlægan fulítrúa og það álit
mitt á Sigurði fékk síðar frekari
og nýja staðfestingu eftir það að
við fórum að starfa saman. Sig-
urður Fanndal var hugsjónamaður.
Hann valdi sér það hlutverk að
vinna að málstað þeirra sem
minnst meiga sín í þjóðfélaginu
og það verður ekki dregið í vafa
að í því efni liggur mikið starf
eftir hann hér á Siglufirði.
Sigurður Fanndal skildi betur
en flestir af hans stéttabræðrum
að hagsmunir verkalýðsins verða
ekki sundur skyldir frá hagsmun-
um smákaupmanna. Því betri kjör
sem verkalýðurinn hefur, því betri
lífsafkoma hjá þeim sem selja
vörurnar. Sigurður var af alþýðu-
fólki komin og hann sleit aldrei
þau bönd sem hann i æsku var
bundin við alþýðuna. Fyrir það og
fyrir þau störf sem Sigurður vann
í þágu alþýðunnar á Siglufirði
mun hans minnst með þakklæti
og virðingu og sem góðs félaga
og starfsbróðurs. Sigurður var
hreinn og beinn og því skipaði
hann sér þar í flokk í landsmál-
um sem óheilindi og spilling fá
ekki að festa rætar.
Þökk fyrir störf þín Sigurður.
G. Jóh.
Eæjarfulltrúinn Sígurður Fanndal
kaupmaður, átti sæti í bæjarstjórn
Siglufjarðar um 7 ár, var kjörinn
bæjarfulltrúi verklýðsfélaganna
1927.
Innan bæjarstjórnarinnar gengdi
hann mörgum og mikilvægum
nefndarstörfum, af bæjarstjórn var
hann ávallt talinn sjálfkjörinn full-
trúi í fátækranefnd. Fyrir stundvísi
og reglusemi í hvívetna var honum
ávallt viðbrugðið innan bæjar-
stjórnar sem og var einkenni á
einkalífi hans.
Bæjarfulltrúastörfín voru mikil
og margvísleg á fulltrúatíinabíli
Sigurður Fanndals. Verklegar fram-
kvæmdir voru stórum auknar
snögglega, og miklar endurbætur
gerðar á fyrirtækjum bæjarins.
Hafnarbryggjan byggð, sjúkrahúsið
byggt, holræsi lögð, gangstéttir
lagðar, vegakerfið stórum aukið og
endurbætt, vatnsveitan aukin og
endurbætt, rafveitan aukin ' og
endurbætt. Mjólkurbúið að Hóli
stofnað. Vitakerfið stórkostlega
aukið og endurbætt. Kolasala bæj-
arins stofnuð. Undirbúningur og