Vesturland - 12.10.1931, Blaðsíða 3
VESTURLAND
3
Til lesenda„Skálholts“.
Bæði sakir fjarvista minna frá
íslandi, og til þess að seinka ekki
um of útgáfu „Skálholts“ hefi eg
ekki átt kost á að lesa sjálfur próf-
arkir að hinu nýútkomna 2. bindi.
En hér hefir tekist svo illa til, að
lesmálið er á ekki fám stöðum
ruglað á mjög meinlegan hátt,
svo að eg sé mér ekki annað ráð
vænna en að snúa mér til blað-
anna og biðja þau flytja eftirfar-
andi lista yfir þær villur, sem
valda misskilningi, er eg get ekki
unað ólagfærðum.
Má eg eiga vísa þá góðvild
íslenskra blaða, að þau taki upp
þessar leiðréttingar — og lesenda
„Skálholts“, að þeir lagfæri text-
ann samkvæmt þeim?
Bls.
23. hvað þá í þessu augnabliki
— á þessu augnabliki.
24. inspection — inspectione.
26. klukkusveinn - klukkusveinn-
inn.
31. Jón Jónsson sendi — sendir.
42. hafa minir elskuðu foreldrar
— elsku foreldrar.
57. þessi orð hafa áheyrn —
áheyrn biskups.
59. var visvitandi — er visvit-
andi.
60. leggja hana undir sinn vilja
— beygja hana undir o.s.frv.
61. minni heimskulegu báráttu
við holdsins syndugu fýsnir
— minni heimulegu baráttu
o. s. frv.
62. þótt hún hefði gull og hun-
ang í tungu sinni — á tungu
sinni.
69. halda áfram að ganga i þess-
ari vímu — þessari pínu.
79. Þau eru ung, og hann hefir
langan vilja — hún hefir
langan vilja.
97. í sinum fínlegu másaugum —
pirulegu másaugum.
131. leggur hitastrókur út frá gló-
andi ofnhúsinu —leggur hita-
strokur o. s. frv.
133. gengur yfir altari — gengur
fyrir altari.
134. Guðs verðugur þjónn — Guðs
óverðugur þjónn.
165. Hálfri stundu síðar var hringt
— er hringt.
199. Eina morgunstund — Ein
morgunstund. €
204. von miðjanna — von niðj-
anna.
208. unglegur en með fjörutíu og
sjö ár að baki — unglegur
enn með o. s. frv.
217. blása til þings — láta blása
til þings.
232. helzt því sem óbundið er —
ófengið er.
312. hverfur fyrir næsta hólbarðið
— hæst hólbarðið.
S. st. Khöfn, í sept. 1931.
Guðmundur Kamban.
Tíðin
hefir verið mjög stirð undan-
farið, svo sjaldan hefir gefið til
fiskjar.
Afli er mjög tregur hér vestra
ennþá.
Carl Löve
vitavörður á Horni kom hér ný-
lega snöggva ferð til bæjarins og
átti Vesturland tal við hann. Unir
hann hag sínutn hið besta þar
nyrðra og hefir víst ekkert í
hyggju að skifta um aðsetur þó
hann ætti kost á.
Sagði Löve að mjög hefði sér
brugðið við húsbændaskiftin. En
eins og kunnugt er, var hann vél-
gæzlumaður við ishús Samvinnu-
félagsins hér áður en hann fór
sem vitavörður að Horni. Finnur
Jónsson framkvæmdastjóri hefði
að visu viðurkennt og hrósað sér
fyrir starf sitt við vélarnar en í
þokkabót rekið sig frá starfinu.
Th. Krabbe vitamálastjóri hefði
nýskeð komið til sín að Horni til
eftirlits og verið hinn ánægðasti
með starf sitt sem vitavarðar og
þakkað sér fyrir; „en sá var mun-
urinn að hann rak tnig ekki fyrir
það“ sagði Löve.
Annars gat Löve ekki iiógsam-
lega lofað allt atlæti það, erhann
hefir haft hjá vitamálastjóra, enda
munu allir vitaverðir landsins hafa
sömu sögu að segja.
Kaupdeila á Hvamms-
tanga.
Þegar þetta er ritað (laugardag-
inn 10. okt.) stendur enn yfir
kaupdeila sú á Hvamrrstanga er
hófst þar fyrir nokkru.
Fáment verkamannafélag er á
Hvammstanga og er aðdragandi
kaupdeilunnar sá að félagið hafði
krafist þess að við fram- og upp-
skipun yrði greitt um klukkustund
1 kr. í dagvinnu og 1,25 í nætur
og helgidagavinnu; ennfremur að
dagvinna reiknaðist ekki lengri en
10 klst. og að félagsmenn sætu
fyrir öðrum með vinnu.
Þegar „Brúarfoss" kom þann 1.
þ. m. til Hvammstanga til þess
að taka þar kjöt fyrir kaupfélagið,
neitaði kaupfélagsstjórinn, Hannes
Jónsson alþm., að verða við kaup-
kröfu félagsins. Vildi hann greiða
90 aura um klukkustund og hafa“
12 stunda dagvinnu. Var svo
byrjað að skipa vörum út og fékk
Hannes nóg af mönnum i vinnu
fyrir það kaup er hann bauð.
Hamlaði óveður útskipuninni, en
að öðru leyti gekk hún greið-
lega.
Verkamannafélagið á Hvamms-
tanga sneri sér nú til „Verkamála-
ráðs“ Alþýðusambandsins og leit-
aði aðstoðar þess og lagði „Verka-
málaráðið“ fyrir verkamannafé-
lögin á Siglufirði, Akureyri, Seyð-
isfirði og Norðfirði að neita að
skipa vörum út í „Brúarfoss“ fyr
en samkomulag væri orðið á
Hvammstanga, og jafnfrarnt til-
kynnti „Verkamálaráðið“ Eim-
skipafélaginu þessar ákvarðanir.
Er þessi árás á hag Eimskipa-
félags íslands hin heimskulegasta
þar sem kaupdeilan á Hvamms-
tanga var með öllu óviðkomandi
Eimskipafélaginu, sem tekur móti
vörunum við skipshlið en greiðir
aðeins vinnu við þær um borö
og hafði Eimskipafélagið þegar
sagt afgreiðslumanninum (Hann-
esi Jónssyni) að greiða fyrir vinn-
una um borð samkvæmt taxta
verkamannafélagsins.
Samkvæmt símtali við Reykja-
vik í dag hefir þetta gerst í kaup-
deilunni síðan:
Þegar „Súðin“ kom til Hvamms-
tanga í fyrradag (fimmtudag) hafði
skipið ca. 30 smálestir af vörum
þangað og var þegar byrjað á
að skipa þeim upp En þegar
búið var að flytja f Iand einn bát
og verið var að láta vörur I ann-
an neituðu skipverjar á „Súðinni“
að láta meiri vörur af hendi.
Höfðu þeir þá fengið sfmskeyti
frá Sjómannafélagi Reykjavíkur,
sem bannaði þeim að afhenda
vörurnar úr skipinu. Virtist flestum
þetta koma úr hörðustu átt þvi
formaður Sjómannafélagsins er
Sigurjón Á. Ólafsson, sá hinn
sami og er afgreiðslmaður rfkis-
skipanna.
Eftir þvl sem Hannes Jónsson
hefir sagt frá snýst kaupdeilan á
Hvammstanga nú um misklíð þá
sem orðið hefir út af því að verka-
tnannafélagið þar vill ná samn-
ingum um að engir fái þar vinnu
aðrir en verkafélagsmeðlimirnir og
mun hann ekki fús til þeirra samn-
inga.
Lagt hefir verið verkbann á
„Brúarfoss“ á Seyðisfirði og hefir
skipið þvl engar vörur getað tekið
þar, en á sama tíma er unnið
þar fullum fetum við losun og
hleðslu „Island“, sem einnig ligg-
ar þar. Á Norðfirði varð að flytja
vörur þær um borð f „Island“,
sem fara áttu með „Brúarfoss“,
því þar var sama verkbannið á
„Brúarfoss".
Eins og áður er sagt, er kaup-
deila þessi alls ekki við Eitnskipa-
félagið þar sem það fylgir taxta
verkatnannafél. að því leyti er
þvf við kemur, sem sé með greiðslu
fyrir vinnu um borð. Félagið
launar afgreiðslutnenn sfna á
hverjum stað og er upp- og út-
skipun félaginu óviðkomandi. Er
ljóst dæmi hér á ísafirði upp á
það að skipafélögin hafa engan
veg eða vanda af upp- og útskip-
un, og úti um land mun vfða
haga svo til að vörumóttakendur
sæki jafnvel sjálfir og flytji vörur
sínar um borð í skipin.
Það er því bersýnilegt að hér
er á ferðinni enn ein tilraun af
mörgum til þess að eyðileggja
Eimskipafélagið, enda hafa Bolsar
ávalt sýnt félaginu fullan fjand-
skap og ekkert tækifæri látið ó-
notað til að gera þvf þann óskunda
er það hefir mátt.
Skrípaleikur Sigurjóns Á. Ól-
afssonar, forinanns Sjómannafé-
lags Reykjavíkur og afgreiðslu-
manns rfkisskipanna, er einn þátt-
urinn í þessari kaupdeilu, sem
virðist ætla að verða handhægt
vopn þeim er koma vilja Eitn-
skipafélaginu fyrir kattarnef sern
fyrst. Enda er svo að sjá sem
maður sá viti nokkurn veginn
hvað hann tná sfn mikils gagn-
vart ríkisstjórninni. Óttast hann
sýnilega ekki íhlutun stjórnarinn-
ar eða afskifti hennar af þessu
máli Eimskipafélaginu til hags-
bóta. Mun það og rétt athugað
þvi ekki hefir ríkisstjóinin gert
neitt til að miðla málum í kaup-
deilunni.
Engum hugsandi manni bland-
ast hugur um það að Eimskipa-
félagið á hér enga sök og að
hér hefir verið hafin einhver hin
ósvffnasta árás, sem heyrst hefir,
á Eimskipafélagið ogtilveru þess,
árás sem er vel sæmandi hverj-
um föðurlands og drottinssvik-
ara.
Besta skákin.
Áður hefir verið skýrt frá því
hér f blaðinu, að dr. Aljechin
taldi fyrstu skákina er hann tefldi
við Ásmund Ásgeirsson einkenni-
legasta og besta þeirra skáka er
hann tefldi hér.
Þeim lesendum Vesturlands til
gamans, er unna skáktafli, birtir
blaðið hér skák þessa:
Hvitt: Svart:
DR. ALJECHIN: ÁSM. ÁSGEIRSS.:
1. e2—e4 e7—e6
2. Rbl—c3 d7—d5
3. d2—d4 Rg8—f6
4. Bcl—g5 Bf8—e7
5. BgöxRfó Be7xBf6
6. Rgl—f3 0—0
7. e4—e5 Bf6—e7
8. h2—h4! Hf8—e8
9. Bfl—d3 c7—c5
10. Bd3 x h7 ! f Kg8 x h7
11. Rf3—g5 f Be7 x Rg5
12. h4 x Bg5 f Kh7—g8
13. Ddl—h5 Kg8—f8
O 1 o o ■^* Kf8—e7
15. g5—g6 a7—a6
16. g6 x f7 He8—f8
17. d4xc5 Rb8—d7
18. Hdl x d5 ! Dd8—a5
19. Dh5—g5 t Ke7 x Í7
20. Hhl—h7 Hf8-g8
21. Hd5—d4 Da5 x c5
22. Hd4 x Rd7 ! ! t Bc 8 xHd7
23. Rc3—e4! ! Dc5—b4
24. Re4—d6 t Kf7—f8
25. Dg5—f61 Gefið.
' Taflið er ekki langt en glæsf
lega teflt á báðar hliðar.
Frá ísafirdi.
„Nova“
kom hingað að sunnan þann
7. þ. m. um kvöidið og fór aftur
daginn eftir. Með skipinu kom frá
Reykjavik Finnur Jónsson fram-
kvæmdastjóri. Fór hann í land
á Flateyri og kom hingað land-
veg. Héðan tók sér far með skip-
inu til Siglufjarðar O. Tynes og
til Noregs Sverre Tynes og frú.
„Doon“
breskt eftirlitsskip, kom hingað
slðastl. fimtudag og lá hér við
bæjarbryggjuna þar til það fór
aftur I gær.
„Fylla“
kom hingað s. 1. laugardag frá
Aðalvík með Guðmund Páluiason
vitavörð Straumnesvitans, sem
hafði fyrir nokkrum dögum dottið
á leið frá vitanum og slasast í
fæti. Fóturinn er ekki brotinn en
læknirinn telur Guðmund geta átt
nokkuð lengi i þessu. Var hann
lagður hér á sjúkrahúsið.