Vesturland - 15.07.1933, Síða 1
VESTURLAND
X. árgangur.
ísafjörður, 15. júlí 1933.
8. tölublað.
Kosningin á morgun
„Vesturland" hefir til þessa litið
tekið til utnræðu kosninguna hér I
bænum.
Hafa sumir notað þetta til ófræg-
ingar um frambjóðanda Sjálfstæð-
isflokksins, Jóh. Þorsteinsson.
En „Vl.“ veit, að Jóhann er svo
gamall og góðkunnur isfirzkum
borgurum, að óþarft er að skrifa
um hann sérstakt blaðalof, likt og
hinn frambjóðandinn, Finnur Jóns-
son, lætur blað sitt flytja um sjálf-
an sig.
Að gefnu tilefni þykir þó rétt
að fara nokkrum orðum um þessa
tvo frambjóðendur, þvi niilli þeirra
stendur aðalslagurinn.
Öllum, sem þekkja Jóh. Þor-
steinsson, er það kunnugt, að hann
er mjög sanngjarn og samvizku-
samur maður, sem leggur gott til
allra mála. Reynir að skilja and-
stæðinga sína jafnt og meðhalds-
menn og reiðubúinn að fylgja
góðu máli, hver sem flytur það.
Framkoma Jóhanns í opinberum
málum hefir og verið svo drengi-
leg, að eg held að hann eigi eng-
an persónulegan óvin og er slíkt
fágætt á þessum tímum.
Jóhann hefir gengt hér margvls-
legum störfum og hefir þvi reynslu
og náinn kunnugleik á högum og
þörfum þessa kjördæmis og lands-
ins f heild sinni.
Hinir sömu kostir og einkent
hafa Jóh. Þorsteinsson i opinberri
framkomu hér, eru einmitt nauð-
synlegir hverjum þingmanni: sann-
girni, samvizkusemi og drenglyndi.
Enda er traustið á Jóhatini svo
alment hér f bænum, að fylstu
vonir eru um að hann náikosningu.
Á þingmálafundum þeim, setn
hér hafa verið haldnir, hafa yfir-
burðir Jóhanns greinilega komið
i ljós. Hann hefir talað um mál-
efnin vel og skörulega, en forðast
allan persónulegan fjandskap og
stéttaæsingar.
Jóhanrt kom hingað til Isafjarðar
á unga aldri og hefir dvalið hér
jafnan siðan; er alinn upp við
kjör alþýðu og gerþekkir hag
hennar. Hann myndi þvf á þingi
verða góður liðsmaður allra um-
bóta á högum alþýðu, engu síður
en þeir sem hærra gala.
Finnur Jónsson, frambjóðandi
Alþýðuflokksins, hefir dvalið hér í
bænum um 14 ára skeið ogverið
umfangsmikill í bæjarmálum. Strax
eftir komu sina byrjaði hann ásamt
samherja sinum, Vilm. Jónssyni,
að lofa alþýðu gulli og grænum
skógum, ef hún fylgdi þeirra for-
sjá. Fór svo að alþýða fékk þeim
völdin og dýrkaði sem gullkálfa,
en verulegar umbætur eru enn
ófengnar og þykist alþýða mjög
hafa getið i knefa tii iauna sinna.
Virðist og svo sem hnefi þeirra
Finns og Vilmundar sé albúinn í
höfuð þeirra, sem ekki vilja hlýða.
En þeir félagar hafa hlotið gnótt
fjár og mannvirðingar á kostnað
alþýðu.
Er alþýðu vorkunarlaust, að sjá
út um jafn götótta ábreiðu og þeir
félagar hafa notað.
Finnur heldur mjög á lofti stofn-
un Samvinnufél. og var helzt að
heyra á honum í gærkv. að hann
byði sig fram þess vegna og sama
hafði F. J. sagt á flokksfundi nýl.
En það er stórháskalegt og óvið-
eigandi að forstjóri Samvinnufél.
skuli draga atvinnustarfsemi þess
inn í harðvítugar pólitískar deilur
sem geta orðið félaginu tii falls.
Það mun þykja ókurteisi að
minnast ekki á frambjóðanda
kommúnista. Er hann ríkur af lof-
orðum til alþýöu eins og Finnur
áður, eu hjá báðuin mun jafn
langt til efndanna.
Sálarástandið.
Á þingmálafundinum 1 gærkveldi
þegar Finnur var að halda sví-
virðingarræðuna -um Jóh. Þor-
steinsson sagði einn áheyrenda:
„Það er eg vissumað Vilmundur
skammast sín fyrir Finn!“ Annar
nærstaddur áheyrandi svaraði:
„Nei, Vilmundur er kominn í það
sálarástand, að hann er breykinn
af Finni!“ — Til þess að fá skorið
úr þvi, hvor hefði á réttara að
standa, náðu þeir tali af Vilmundi
og spurðu hann að hvort hann
væri ánægður með Finn: „Eg er
hæstánægður með hann“, svaraði
Vilmundur. Eg sagði lika að sálar-
ástandi yðar væri svo varið, að
svo hlyti að vera, sagði áheyrandi.
Fór Vilmundur undirleitur af
þeim fundi.
Vísvitandi ósannindi
hljóta það að hafa verið hjá Finni
Jónssyni I gærkveldi, er hann var
að bera Jóh. Þorsteinssyni á brýn
samstarf um hlutabréfakaup í Raf-
lýsingafélagi ísafjarðar. Jóhann
kom ekkert nærri þeim kaupum
og var ekki .heima í bænum þeg-
ar stjórnarfundur fél. var um þau
halditin.
Aftur rennur lýgi, er sönnu
mætir, Finnur Jónsson.
Hluthafi í Rafl.f. ísafj.
Fósturbarnið.
Eitt af hinum pólitísku kven-
fósturbörnum Finns kom fram á
þingmálafundinum í gærkveldi og
og lýsli glögglega og skýrt frá-
falli Finns sem alþýðuforingja:
„Eg er fósturbarn Finns i pólitik',
sagði konan; „og þegar hann var
að kenna okkur áður sagði hann,
að við verkamenn og verkakonur
þyrffum ekkert að hugsa um hvort
atvinnufyrirtækin bæru sig eða
ekki; bara að heimta hærta kaup“.
Þetta mun vera rétt lýsing á
Finni fóstra.
i