Vesturland - 05.08.1933, Qupperneq 3
VESTURLAND
43
Vesturland.
gj Útgef.: Sjálfstæðisfél. Vesturlands. g
= Ritstjóri: Arngr. Fr. Bjarnason. s
H Útkomud.: miðvikud. og laugard. g
Verð til áramóta 4 kr. i|
’ =§ Gjaldd. 15. sept. í lausas. 15 aura. g
H Augl.verð 1.50 cm. eind.
j§ Stærri augl. eftir samkomulagi. g
^íllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllllllllllllllllllF
Fréttip.
Norska bakaríið
hefir nú sett upp einn ai nýtízku-
skápum fyrir kökubúðir. Eru allar
fínni kökur geymdar inniiokaðar
undir gleri, svo flugur eða ryk
komist ekki að þeim.
Knattspyrnu
þreytti kn.f. Hörður við skjpverja
af danska varðsk. Fylla s. 1. sunnu-
dag. Sigraði Hörður með 5:1.
Skipstrand.
Finskt vélskip, „Suomen Lakki“
(o: finska kiían), 170 rúmlestirað
stærð, skipstj. Sjastrand, strar.daði
utanvert við Krossavík á Fjalla-
skaga í Dýrafirði 27. f. m. kl. 11,47.
Hafði farið úr Rvík nákvæmlega
sólarhring áður. Niðaþoka var er
skipið strandaði, en birti örfáum
mínútum eftir að það varð land-
fast. Finska skipið „Kalapoika"
kom á strandstaðinn daginn eftir
til þess að freista að ná skipinu
út, en þá var koininn í það svo
mikill sjór, að þýðingarlaust þótti
að freista sliks og var alt lauslegt
ílutt úr skipinu yfir I Kalapoika.
Á skipinu voru 12 manns og
björguðust allir.
Skip þetta ætlaði að stunda
sildveiðar hér við land í sumar
og var eign finska útgerðarmanns-
ins, H. A. E. Yring kammerráðs,
sem hefir haft nokkur skip til síld-
veiða hér við land þrjú síðustu
sumur.
Svo er að sjú sem skip þetta
hafi verið sérstakur hrakfallabúlk-
ur, því á leiðinni hingað tillands
misti það 15 smál. vélbát, er það
hafði í eftirdragi og er það var
á leið til síldveiða norður kendi
það grunns á Reykjarfirði nyrðra,
en komst þó á flot aftur og var
svo lekt, að nauðsynlegt þótti að
Fyrirliggjandi:
H e s s i a n ,
Bindigarn og
Saumgarn.
aðgerð á skipinu færi fram. Hélt
það til Rvfkur til aðgerðar, en er
þangað kom settist það skakt f
skipabrautina og braut hana nokk-
uð og var þvi sett fram aftur, en
fékk bráðabirgðaraðgerð, er duga
skyldi í sumar. Kom skipið beint
úr aðgerð er það strandaði.
Skemtisamkoma
var haldin að tilhl. U. M. F. Mýra-
hrepps að Núpi í Dýraf. 23. f. m.
Hófst hún með guðsþjónustu, er
sr. Sigtryggur Guðlaugsson flutti.
Ræður héldu skólastjórarnir Björn
Guðmundsson og Sveinn Gunn-
laugsson, en Hcigi Valtýsson
kennari flutti kvæði. Sundnáms-
skeið hefir verið að Núpifrá2.—23.
júlí og sóttu það 12stúlkurog 18
piltar; höfðu nemendur sundsýn-
ingu þennan dag.
Umsóknarfrestur
um héraðsskólann að Núpi I Dýra-
firði er útrunninn 15. þ. m. Ættu
þeir, sem hugsa til að stunda nám
í skólanuni á komandi vetri, að
senda umsóknir sínar sem íyrst.
Sundlaug Súgfirðinga
var vigð s. 1. sunnud. (30. f. m.)
að viðstöddu miklu fjölmenni. —
Ræður héldu: sr. Halldór Kolbeins;
Sturla Jónsson, form. íþróttafél.
Stefnis, sem hefir haft forgöngu
um byggingu sundlaugarinnar;
Ólafur J. Ólafsson (frá Botni) og
Sigurður Runólfsson sundkennari.
Gunnar M. Magnús kennari flutti
snjalt kvæði, tileinkað íþróttafél.
Stefni. Siðan var sundsýning hjá
nemendum og frjálst sund.
Laugin er hin snyrtilegasta að
öllum frágangi og mikil menning-
arbót fyrir Súgfirðinga og nðra
nærsveitamenn, sem notað geta
þau ágætu skilyrði sem þarna eru
fyrir hendi.
1. þ. m. hófst nýtt sundnáms-
H/úsnæði.
Tvær fbúðir, hentugar fyrir litl-
ar fjölskyldur til leigu frá næstu
mánaðamótum.
Guðm. Pétursson.
skeið við laugina og eru nemend-
ur aðallega úr Önundarfirði.
Blóma- og trjáræktarfél. ísfirð-
inga ællar að halda skemtun í
Tunguskógi á morgun, ef veður
leyfir. Til skemtunar verður svona
sitt af hvoru, eins og gengur:
Ræðuhöld, upplestur og leikir og
dans á stórum nýjum palli — og
svo ágætar veitingar.
Félag þetta er eitt mesta nyt-
semdariélagið, sem hér starfar, og
vinnur ótrauðlega að þvi að fegra
og prýða skrúðgarð bæjarins. —
Tekjurnar af þessari skemtun
ganga allar til þess að auka, fegra
og prýða garðinn og þarf því ekki
að efa, að bæjarbúar stuðli að
tekjudrjúgri skemtun S þetta sinn,
eins og undanfarið. Félagsstjórnin
þakkar fyrirfram stuðninginn og
það sem ýmsir bæjarbúa hafa lagt
fram til veitinganna.
Smokkveiði.
Útlit er fyrir, að smokkfiskur ali-
mikill sé nú kominn hér við Vest-
firði. Hefir hann þegar gengið
nokkuð inn í Djúpið og fóru nokkr-
ir vélbátar úr Hnifsdal og Bol-
ungavík til smokkveiða í fyrri nótt
og öfluðu sæmilega. 1 smokkfisk
rak hér á Poliinum í fyrrakvöld.
Tíðarfar.
Enn er sama gæzku- og gróðrar-
tíðin. Er grasvöxtur hér vestra
meiri en elztu menn muna.
Messað
verður hér í kirkjunni kl. 2 á
morgun.