Vesturland - 09.09.1933, Blaðsíða 2
70
VESTURLAN D
Frá öníirðingiim.
Flateyri 1 Önundarfirði og Pat-
reksfjörður eru þau kauptún hér
á Vestfjörðum, sem örast hafa
vaxið síðustu árin. Á Patreksfirði
er það togaraútgerð Ól. Jóhann-
essonar og þeirra feðga, sem
niestan þátt á í vexti kauptúnsins.
Á Flateyri veldur útgerðin líka
vextinum, sem eðlilegt er. En þar
eru nú margir vélbátar og llestir
sameign 2ja eða fleiri manna. 1929
voru að eins 3 litlir vélbátar á
Flateyri, en síðastíiðinn vetur
gengu þaðan 14 véibátar frá 8—14
smál. að stærð. Má áætla verð-
mæti hvers báts með útgerð um
16 þús. kr., að meðaltali.
Kunnugur maður áætlaraðgerðir
og nýbyggingar í landi á sama
tíma, auk þess sem bygt er í ár,
um 300 þús. kr. í ár eru bygð
þar 6 íbúðarhús, sum stór og
myndarleg, en önnur smærri. Auk
þess er h/f. Önundur að láta reisa
nýtt frystihús úr steinsteypu 18x20
m. að stærð. Á þar að nota ístii
frystingar,-en félag þetta á annað
vélfrystihús fyrir. Kaupfélag Ön-
firðinga hefir í sumar látið byggja
íiskgeymslu- og salt-hús úr járni
ög timbri 18x30 m. að stærð. Á
síðar að gera íiskplan framanvert
við húsið. Er þetta mannvirki eitt
hið myndarlegasta í sinni röð hér
vestanlands. Á sama tima hafa
Flateyringarræktað mikið umhverf-
is kauptúnið og fá nú töðufeng
sem samsvarar 15 kýrfóðrum af
nýræktuðu landi. Verður ræktunin
almennari með ári hverju. Kaup-
túnsbúer höföu á fóðrum s. 1. vetur
yíir 300 fjár.
Kaupfél. Önfiröinga hefir nú for-
göngu að stofnun mjólkurbús. Er
hugmyndin að byrja það fyrst f
srnáum stýl, en auka síðan eítir
því sem ástæður leyfa.
Á Sólbakka er starfrækt hin
myndarlega síldarverksmiðja Út-
vegsbankans. Hefir h/f Kveldútfur
leigt hana 2 síðustu árin. Hafa í
sumar 3 togarar Kveldúlfs lagt þar
upp að staðaldri og hinir eftir
ástæðurn.
Vélfræöiiiárnsskeið verður lialdið
á Flateyri nú 1 haust. Hafa þegar
sótt um 20 nemendur.
Qarðrækt er fremur lítil á Flat-
eyri, þó hefir Ásbjörn Bjarnason
lengi stundað þar garðrækt með
dugnaði og góðum árangri. Ættu
íleiri að fara að hans dæmi. En
sökum tíðra vorkulda hér vestra
er nauðsynlegt að h.afa vermihús,
þar sem garðræktin á að vera at-
vinnugrein. Qætu margir átt þau
í félagi. Yrði það bæði ódýrara
og hentugast að einn hefði þar
umsjón alla.
Samhliða þessum mikla vexti
Flateyrar hafa sveitirnarumhverfis
kauptúnið, báðu megin fjarðarins,
tekið miklutn utnskiftum. Veldur
þvi bæði stórbættur markaður í
kauptúriinu fyrir allarafurðirbænda
og að sveitamenn sækja mikla at-
vinnu i kauptúnið á öllum tíma
árs, en þó einkunt á vorin, og át
vaxta það I sveitinnl. Sér þess ó-
rækan vott, þvl bæði hafa húsa-
kynni batnað mikið, ræktun auk-
ist stórlega og girðingar meira en
menn hcfðu látið sig dreyma um
fyrir fáum árum. Hafa margir
bændur sýnt mikinn dugnað um
umbætur á jörðum sínum, en þó
enginn framar en merkisbóndinn
Jón Sveinsson á Innri-Veðrará. Er
það reglulegt þrekvirki, sem þar
hefir verið unnið. Jafnhliða auk-
inni ræktun hefir notkun sláttuvéla
útbreíðst mikið og eru nú 11 sláttu-
vélar I Mosvallahreppi einum.
bað er hressandi á slíkum tim-
um og nú eru að ferðast um Ön-
undarfjörð. Þar heyrist enginn
kreppusónn eða svartsýni um fram-
tíðina; þar sjást engar iðjulausar
hendur og jarðyrkjan með dráttar-
vél þeirra var litlu minni í vor, en
áður heíir verið.
Bændur hafa nú alment tekið
upp þá nýbreytni, að sá garð-
ávöxtum í flögin fyrsta árið. Hefir
það borið ágætan árangur og er
unaðslegt að sjá þessa nýju akra
I túnunum.
(Smámsaman munu birtast í bl.
pistlar frá öðrum sveitum nærendis).
ísfirzku skátarnir,
sem sóttu alþjóðamót skáta I Qöd-
öllö í Ungverjalandi komu heim
með Brúaifossi, nema Ágúst Leós
scm kom mcð Dettifossi. Fóru
skátarnir af skipinu á F'lateyri og
komu landveg hingað.
Ti! sSlu
eru ncðantaldar eignir í Hnífsdal:
2 hndr. í jörðinni Heimabær
(sbr. fasteignamat Neöri-Hnífsdalur
IV.), hálft íbúðarliús, hálft fjós,
hlaða og áburðarhús, hálf verbúð,
ennfremur fiskhús, skúr og timbur-
hús, hálft fiskplan.
Nánari upplýsingar gefa
Valdemar Þorvarðssan
kaupmaður f Hnifsdal og
Páll Halldórsson,
Qrettisgötu 81, Reykjavík.
Bækur.
Eg ýti úr vör
heitir ljóðabók, sem Bjarni M.
Qíslason hefir nýlega gefið út og
er að koma á bókamarkaðinn. Höf.
er ungur sjómaður, ættaður af
Barðaströnd, og hefir átt við óblíð
kjör að búa, en býr óslökkvandi
Ijóðþrá i brjósti. Er bók hans hin
rnyndarlegasta af byrjanda að vera
og efni ljóðanna fjölbreytt og vel
með farið. Lifsskoóun skáldsins er
björt og hrein, sem trúir á sigur
þess góða i mönnunum, þannig
segir hanni kvæðinu: Eg er öreigi:
Við leitum að hvíld
frá löstum og harmi,
en himnariki
er I hvers manns barrni.
Bókina endar höf. með kvæði,
sem hann kallar: Á víð og dreif.
Eru þar margarfallegar ferskeytlur,
t. d. þessar, er bókin endar á:
Heim á leið minn hugur fer,
hlýjar kveðjur annast.
— Þú inátt heilsa þar frá mér
þeim sem við mig kannast.
Þó að bylgjan brjóti knör,
beri rnig að landi,
eg mun aftur ýta úr vör,
engu kvíða strandi.
Bókin á skilið að vera keypt og
lesin. Um hana leikur hressandi
æskublær og viða skarpar lýsingar.