Vesturland

Árgangur
Tölublað

Vesturland - 03.03.1934, Blaðsíða 3

Vesturland - 03.03.1934, Blaðsíða 3
VESTURLAND 43 Verzlanii* fa bökunardropa og hárvötn þau setn við framleiðum hjá útibúi okkar á ísafirði með sama heildsöluverði og við seljum þessar vörur í Reykjavík. Spara því umbúðir og allan flutningskostnað við að kaupa á staðnum. Áfengisverzlun ríkisins. Nykomið: Þvotta margar fegundir og stærðir. Verzlun Björns Guðmundss. pottar b a I a r um markaði, telur fundurinn því íslenzkum framleiðendum nauðsynlegt að rikið taki upp einkasölu á kartöflum og noti heildsöiuágóðann til að hækka verð á innlendum kartöflum. Samþ. með 13 samhlj. atkv. 3. Fundurinn telur nauðsyniegt að nýmjólkursala sé skipulögð í héruðum, sem iiggja að sama markaði i þeim tilgangi að draga úr sölu ogflutningskostnaði.Samþ. i einu hljóði. 4. Á meðan núverandi örðug- leikar rikja um verð og markað fyrir framleiðsluvörur bænda, telur fundurinn nauðsynlegt að inn- flutningurjþeirra iandbúnaðarvara, sem framleiddar eru í landinu, svo sem: mjólkurafurða, eggja og kjötmetis sé ekki leyfður. Samþ. með 14 samhlj. atkv. Framh. Búnaðarfélag Ögurhrepps héit aðalfund sinn 2J. f. m. Alls voru unnin 1704 jarðabóta- dagsverk á s. 1. ári, sem heyra undir II. kafla jarðræktariaganna og auk þess 237 dagsverk í vega og húsabótum. Hæztir jarðabóta- menn eru: Magnús Guðmundsson Kleifum með 259 dagsverk, Helgi Einarsson Skarði með 182 dagsv., Guðmundur Magnússon Borg með 148 dagsv., Valdemar Sigvalda- son Blámýrum með 212 dagsv., Vernh. Einarsson Hvitanesi með 152 dagsv. Það er einkennandi, að jarðræktarframkvæmdir eru á öll- um býlum hreppsins og sýnir það almennari áhuga, en vera mun annarstaðar. Kartöflu- og rófnauppskera í hreppum jókst s.l. ár um 116 tn. og varð alls nú 317 tn. Kartöflur 160 tn.; rófur 157 tn. Stjórn búnaðarfélagsins skipa: Bjarni Sigurðsson Vigur, Gísli Sæmundsson Ögri og Helgi Ein- arsson Skarði. Félagið á inni í verkfærakaupasjóði 882,60 og í félagssjóði 192 kr. Samþ. að veria 150 kr. úr fél.sjóði til styrktar á- burðarkaupum félaga. Verkfæri og ýms áhöld á félagið fyrir um 1000 kr. Býli í hreppnum eru alls 19. Búfjáreign: 92 kýr, 96 hross og um 3600 sauðfjár. Alifuglarækt er nokkur og 3 refabú: Vigur, Litla- bæ og Ögurnesi. U. M. F. Vorblóm á Ingjaldssandi í Önundariirði mintist 21. f. m. 25 ára afmælis síns. Félagið er stofnað 22. marz 1908 og er elzta starfandi U. M. F. hér á Vestfjörðum. Fagnað þennan sóttu um 40 manns. Þar voru fluttir 2 fyrirlestrar, ræður, söngur o. fl. Starfssaga félagsins var rakin af Helga Guðmundss. Jóh. Davíðsson færði fél. frumorkt afmæliskvæði, sem sungið var. Einnig var leikinn smáleikur út af sögu E. H. Kvarans: Vistaskifti. Landsfundur bænda hefst í Reykjavík 10. þ. m. 3 fulltrúar sækja fundinn úr Naut- eyrarhreppi: Halldór Jónsson Arngerðareyri, Jón H. Fjalldal Melgraseyri og Sigurður Pálsson Nauteyri. Ný Sjálfstæðisfélög. Ný stofnuð eru Sjálfstæðisfélög í Ögurhreppi og í Súðavíkurhr. Eru samtök um það í fiestum hreppum N.-ísafjarðarsýslu, að efla og festa samstarf Sjálfstæðis- manna í sýsiunni. „Hávarður ísfirðingur" er nú að búa sig til fiskíveiða. f Guðmundur Sigurðsson ullarmaísmaður andaðist hér í Sjúkrahúsinu 1. þ. m. Guðm. var fæddur 5. júní 1873 á Dönustöð- um i Dalasýslu og fluttist hingað um síðastl. aldamót og hefir dvalið hér síðan. Guðm. var trúr og vandaður maður og eindreginn Sjálfstæðismaður í skoðunum. Guðm. hafði verið ullarmats- maður mörg ár hér í bænum. Hann var ókvæntur og barnlaus. Sjálfstæðisfélag ísfirðinga heldur skemtisamkomu í G. T.- húsinu hér næstk. mánudag (5. marz) kl. 8V2 síðd. Til skemtunar verður: Ræða (Gunnar Thorodd- sen), Einsöngur (Jón Hjörtur), Upplestur (Óskar Borg), Sjónleik- ur (Dalbæjarprestssetrið) og siðan verður dans. Félagsmenn vitji aðgöngumiða til féhirðis félagsins: frú Sigþrúð- ar Pálsdóttur. Kaupgjaldsmál. Verklýðsfélagið Baldur hér f bænum hefir samþykt að segja upp kaupgjaldssamningum þeinj sem nú eru í gildi. Slysavarnarsveit kvenna var stofnuð hér f bænum 25. f. m. Áður voru skráðir 169 kven-

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.