Vesturland

Årgang

Vesturland - 03.06.1939, Side 3

Vesturland - 03.06.1939, Side 3
VESTURLAND 89 Vegavinnukaupið. Það er oft vitnað til þess hve há laun íslenzka rikið greiði starfsmönnum sínum. Hafa marg- ir fárast út af þessu og þótt keyra fram úr hófi. Víst er líka það, að draumur margra er sá, að fá stöður hjá rfkisvaldinu. Þeir, sem vinna út um land að vegagerðum, hafa þó aðra sögu af rikisvaldinu að segja. — Þar borgar ríkið lægsta kaup, sem þekkist á landinu, I sambærilegri vinnu. Vegavinnukaupið var 1934 á- kveðið 90 aurar á klst. og hefir haldist óbreytt siðan. Vera má, að þetta hafi þótt sæmilegt kaup þá, en ftestir munu sammála um, að það sé oflftið nú. Bæði hafa flestar nauðsynjarhækkað á þessu tfmabili og auk þess hefir kaup- gjald vlðast hækkað frá þvi sem það var 1934. Þeir, sem vinna að vegagerð hér I nágrenni bæjarins, fá þann- ig 40 aurum minna fyrir hverja vinnustund en ísfirzkir verkamenn sem vinna I bænum. Pinst okkur það æði mikilt munur á kaupi, ekki sizt af þvi, að vegavinnan er oft erfið og vossöm. Ekki sizt þar sem unnið er fram áfjöllum eða iangt frá mannabygðum, oft við lélegan aðbúnað. Það er auðsætt mál, að verði kaup hækkað ber fyrst og fremst að hækka við þá, sem hafa lægst kaup, t. d. I vegavinnunni. Má það teljast undravert, að ekkert skuli á þetta hafa verið minst að undanförnu, og að ekkert skuli hafa verið gert til þess að kippa þessu í lag. Væri ekki úr vegi, að alþýðusamtökin gengjust fyrir því, að vegavinnukaupið yrði hækkað í 1 kr. á klst. Má ganga út frá þvi, sem nokkurn veginn visu, að flestir vegavinnumenn standi á bak við að þetta verði gert sem fyrst, svo að ekki þurfi að koma til óeiningar eða árekstra út af þessu. Væri mjög æskilegt, að hlut- aðeigendur segðu álit sitt um þetta og gengjust fyrir að því yrði kipt I lag. Andrés Bjarnason. Kristín Jónsdóttir, kona Benedikts R. Steindórs- sonar skipstjóra hér, andaðist á Sjúkrahúsinu i gær. Kristin var atgerfis- og myndar-kona, um þritugt. Hjónaefni: Frk. Elísa Ellasdóttir, frá Nesi I Grunnavík, og Simon Helga- son stýrimaður. Frk, Unnur Her- mannsdóttir, Þúfum Reykjarfjarð- arhreppi, og Ólafur Ólafsson starfsmaður á sýsluskrifstofunni. Frk. Nanna Hermannsdóttir og Jón Jónsson (frá Hvanná) skrif- stofumaður. Sjómannadagurinn er á morgun, og verður dag- skrá hans á þessa leið: Kl. 10,30 árd. Messa ,i kirkjunni. Sr. Páll Sigurðss. prédikar. Að lokinni messugerð verð- ur lagður blómsveigur á leiði Eiriks Finnbogasonar, kveðja frá nokkrum félögum hans og samstarfsmönnum. Kl. 12,30 e.h. Skemtunin sett af svölum Alþýðuhússins. — Ræða G. G. Hagalín Sjómannakórinn syngur. Kl. 13,30 e. h. Knattspyrnuleikur milli sjómanna og Vestra. Kl. 15,30 e.h. Kappróður milli skipshafna af stærri bátunum. Kl. 17,00 e. h. Skemtun i Alþýðu húsinu. Ræður flytja: Har- aldur Guðmundsson skipstj., Sigurður Pétursson vélstj. og Eirlkur Einarss. hafns.m. Sjómannakórinn syngur milli ræðuhaldanna. Að loknum ræðuhöldunum syngur Jón Hjörtur Finn- björnsson 2 erindi úr há- tíðaljóðum sjómanna, sem birt eru hér fremst I blaðinu, með hinu nýja lagi Emils Thoroddsens. Kl. 20,00e.h. Kvikmyndin: Sjó- maður í landgönguleyfi. Kl. 22,00 e.h. Dans. Gömlu og nýju dansarnir. Allur ágóði dagsins rennur I sundlaugarsjóð. Vegagerðir í ísafjarðar- sýslum í sumar. í sumar verður aðallega unnið I ísafjarðarsýslum að framleng- ingu eldri vega, og mest unnið á þessum stöðum: Súgandafjarðarvegi, um 8 þús. kr., Langadalsvegi, um 4 þús. kr., Skálavlkurvegi (frá Bolungavlk til Skálavlkur) um 5 þús. kr. Einnig verður talsvert unnið að vegagerð um Rafnseyrarheiði. Samfelt bílvegasamband umsuð- urhluta Vestfjarða mun þó ekki fást fyr en 1940. Fæðist seint, en þokast I áttina. Lýður Jónsson, sem verið hefir vegaverkstjóri hér vestra undan- farin ár, er nú verkstjóri við Suðurlandsbraut (Krýsivlkurveg). Við störfum hans tekur Hildi- mundur Björnsson verkstjóri frá Stykkishólmi. Er hann þegar byrjaður á viðhaldi þjóðvegarins I Önundarfirði. Verkstjóri við sýsluvegina í Norður-ísafjarðar- sýslu verður Sigurvin Eyjólfsson. Knattspyrnufélagið Hörður minntist 20 ára afmælis sfns með samsæti, er hefst kl. 9 I kvöld I Alþýðuhúsinu. Formaður félagsins er Sverrir Guðmunds- son gjaldkeri. Útlit bæjarins. Eg hefi orðið þess sérstaklega var nú I vor, að forráðamenn bæjarins og blöðin hafa haft orð á þvl, að útlit húsanna hvað málningu og annað snertir sé orðið afleitt og fari versnandi með ári hverju, enda sjá allir að svo er. En eg er ekki viss um, að bæjarstjórn og aðrir ráða- menn bæjarins hafi gert sér grein fyrir því hve mikið mætti laga til fyrir þann nýja fasteignaskatt, 40—50 þús. kr., sembærinn tek- ur nú af svonefndum húseigend- um, sem flestir þyrftu sjálfir að nota þá peninga til viðhaldshús- um sínum. Mér hefir einnig dott- ið I hug, hvort ekki myndi nú eiga að nota þessa tniklu peninga til að viðhalda svo eignum bæj- arins og stofnana hans, að þær væru til fyrirmyndar utan og inn- an, en það er þvi miður ekki svo að sjá. Það stóð nýlega I blað- inu Skutull, að ísafjörðursé veiði- stöð. Það er rétt, að hér er út- gerð mest á Vestfjörðum og að i flestum húsum hér búa sjómenn og verkamenn, en eg held að I engri annari veiðistöð sé tekinn neinn svipaður verbúðarskattur sem hér. Og menn hljóta þvi að spyrja: Til hvers er þessi fast- eignaskattur notaður? Það veit eg ekki. En flestir myndu óska, að skatturinn væri afnuminn, svo menn gætu aftur farið að halda við húsum sfnum og girðingum, eða að skatturinn verði verulega lækkaður. En ef ekkert fæst í þessa átt vildi eg biðja háttvirta bæj- arstjórn að athuga, hvort ekki væri rétt að nota þennan skatt alveg sérstaklega til þess að framkvæma eitthvað af þvf, sem bænum má verða til gagns og prýði, svo sem sundlaug, varan- legar götur o. s. frv. Annars hefir mitt kjörorð 1 16 ár verið þetta: Málið meira! Finnbjörn málari. Ný gjöf í björgunaskútu- sjóð Vestfjarða. Ragnar Jóhannsson, skipstjóri á Huginn I. færði nýlega frú Láru Eðvarðsd., form. kvenna- deildar Slysavarnafélagsins hér, 160 króna gjöf frá skipshöfn sinni I björgunarskútusjóð Vestfjarða. Stjórn kvennadeildarinnar þakk- ar hlutaðeigendum kærlega gjöf- ina og það ræktarþel til björg- unarskútumálsins, er hún lýsir. um að leggja skolprör i sumar og haust, ættu að semja sem fyrst við Höskuld, þvi þar eru þau ódýrust og bezt. Gamanl. Húrra krakki. Síðasta leiksýning á gaman- leiknum Húrra krakki hér var á 2. hvítasunnudag. Voru þá tvær sýningar, báðar vrðhúsfylli; urðu jafnvel margir frá að hverfa. — Áhorfendur létu margvíslega hrifn ingu i ljósi. f lok sfðari sýningar á 2. hvítasunnudag flutti frú Sig- riður Jónsdóttir, form. leiknefnd- ar kvenfél. Brynju, ávarp til hr. Haraldar Á. Sigurðssonar. Þakk- aði honum fyrir hönd leikhús- gesta ógleymanlegar ánægju- stundir og óskaði honum allra heilla. Einnig þakkaði Sigrlður hr. Óskari Borg fyrir ágæta leik- stjórn og leik, sem og öðrum leikendum, og færði Haraldi og Borg fagra blómvendi, sem þakk- lætisvott Brynju og leikhúsgesta. Alls var Húrra krakki sýndur 10 sinnum að þessu sinni. 8 sinnum hér og 2var sinnum I Bolungavfk. Messulaus Hvítasunna var að þessu sinni hér á ísa- firði. Mun það óefað eins dæmi sfðan kirkja var fyrst reist hér á Skutilsfjarðareyri, að ekki hafi verið messað hér á Hvítasunnu- hátfð, sem frá fyrstu kristni hefir verið ein af stórhátíðum kirkj- unnar og jafnframt sérstök sigur- hátfð vorsins 1 norðlægum lönd- um. — Mun margur bæjarbúi, er hugsað hefir til messufjöldans i vetur, talið að betra væri minna og jafnara. Frk. Sigríður Jónsdóttir, sem 5 undanfarin ár hcfir starf- að I bókaverzlun Jónasar Tóm- assonar hér, tók sér far héðan með Gullfossi 1. þ. m. áleiðis til Danmerkur, þar sem Sigrlður tekur þátt I móti og námskeiði fyrir starfsfólk I bókaverzlunum. Er námskeið þetta í samstarfi við danska bóksalafélagið, en nor- ræna félagið hefir forgöngu þess. Námskeiðið verður haldið að Hindsgavl á Fjóni 19.—25. þ. m. Tollstöð ísafjarðar. í vörugeymsluhúsum hafnar- sjóðs við bæjarbryggjuna hefir verið innréttuð tollstöð, sem ný- lega er tekin til notkunar. Vil kaupa rfmu um slðasta fund Grettis sterka Ásmundssonar og Ásdfs- ar á Bjargi, móður hans, orkta af Oddi Jónssyni. Rfman er prentuð hér á ísafirði 1886. Viti einhver kunningja minna um rfmu þessa, treysti eg þvf að þeir geri mér viðvart. Eintiig er mér kært að fá upplýsingar um höfundinn. Arngr. Fr. Bjarnason. Prentstofan ísrún.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.