Vesturland - 31.07.1943, Blaðsíða 2
90
VESTURLAND
Óskar Jóhannesson, hreppstjóri.
Minningarorð.
VESTURLAND
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Siguröur Bjarnason, frá Vigur
Silfurgata 6. Sími 5.
Skrifstofa Uppsölum,
sími 19 3.
Verð árgangsins 10 krónur.
Afgreiðslumaður:
Jón Hjörtur Finnbjarnarson.
Skipagata 7.
talskra fascista. Stofnaði hann
blaðið með aðstoð fransks anð-
magns. Stefna Mussolinis sigr-
aði og Italía fór í striðið með
Frökkum og Bretum. 23. marz
1919 stofnaði Mussolini fyrstu
fascistasveitir sinar. Hann
taldi sig þá enn vera socialista
i skoðunum.
Flokkur hans efldist liröðum
skrefum og árið 1922 i október
streymdu fascistasveitirnar til
Rómar og brautin var rudd
fyrir valdatöku Mussolinis.
Stórveldisdraumur.
Megintakmark hans virðist
liafa verið það, að skapa ltalíu
stórveldisaðstöðu. Þessvegna
hóf hann Abyssiniu-styrjöldina
og þessvegna rcðst hann i það
ævintýri, sem nú hefur orðið
honum að falli, þátttakan í
styrjöldinni með Hitler og naz-
istum hans. Mussolini reiknaði
dæmi sitt skakkt. Hann hélt að
styrjöldin væri á enda í júni
1940, þegar að Þjóðverjar
höfðu vaðið yí'ir Frakkland, og
Bretland stóð eitt uppi, lamað
eftir hrakfarirnar i Flandern.
Hann rak rýtinginn í bak
Frakklands, sem var i sárum.
Þar með þóttist hann trvggja
sér áhi'ifarétt við friðarsamn-
inga þá, er hann liélt að fram-
undan væru, er Þjóðverjar
hefðu knúð fram uppgjöf
Breta.
En Fortuna Belli (striðs-
gæfan) reyndist honum fall-
fallvölt. Svo fallvölt sem raun
er á orðin, að ítalska þjóðin
liefur nú glatað öllum nýlend-
um sínum, hörmungar ófriðar-
ins hafa sótt hana heim í henn-
ar eigið land og sjálfur ógæfu-
smiðurinn, Mussolini, hefur
orðið að hröklast frá völdum.
Hvar er Mussolini?
Getum er að þvi leitt, livar
Mussolini muni nú dvelja. Er
talið að liann hafi þegar flutt
út á sveitasetur sitt, sem er í
nágrenni Rómaborgar. Ekki
er talið líklegt að hann hyggi
á landvist utan Italíu enda
í fá horn að leita fyrir hann.
I Þýzkalandi er látið í veðri
vaka að Mussolini hafi látið af
völdum sökum heilsubrests.
Talið er þó, að fall lians muni
draga nokkuð úr barátlu-
kjarki þýzku þjóðarinnar,
enda þótt Þjóðverjum hafi lít-
ill styrkur verið að liði hans,
og raunar trafali.
Hinn 22. þessa mánaðar var'’
til grafar borinn frá Þingeyr-
ar-kirkj u Óskar lireppst j óri
Jóhannesson.
Hann er fæddur á Þingeyri
26. febrúar 1897, og er því að-
eins hálffimmtugur, er hann
andaðist.
Foreldrar hans voru Jó-
liannes fyrrverandi hrepp-
stjóri og alþingismaður Ólafs-
son og kona hans, Ilelga Sam-
sonardóttir.
Standa að Óskari góðar ætt-
ir. Móðurætt hans er úr Norð-
urlandi, Húnaþingi, cn föður-
ættin héðan úr hreppi, hin svo-
nefnda Haukadalsætt, er lið
fram af lið hafa átt þar óðal og
aðsetur.
Föðurfaðir óskars, Ólafur
Jónsson, bóndi i Haukadal, var
mjög gáfaður og fjölhæfur
maður. Talaði meðal annars
lranska tungu svo,- að til var
tekið. Snarmenni hið mesta,
þjóðhaga smiður á járn og tré,
einkum rennismíði, hvala-
skutlari og selaskytta.
Ingibjörg, kona ólals Jóns-
sonar, var Jónsdóttir, bónda. í
Stapadal, Bjarnasonar á Dynj-
anda, Pálssonar. llún var fróð-
leikskona hin mesta á öll þj óð-
leg fræði. Gætir þessara eigin-
leika víða hjá niðjum þeirra,
sem nú eru orðnir fjölmargir.
Alnafni Ólafs, sira Ólafur
Jónsson, sáhnaskáld og prestur
á Söndum um 1600, deyr þar
1627, er forfaðir þessara Ilauk-
dæla. Óskar er 10. maður frá
honum i heinan karllegg. Og
liin mörgu Ólafa-nöfn, er gætir
svö mjög í ættinni, eru frá
honum runnin.
Svo stiklað sé á stóru, eru til
heimildir fyrir því, að síra
Ólafur var aftur 10. maður frá
Markúsi Gíslasyni i Bæ á
Rauðasandi; hann deyr 1196.
En þaðan skortir einn lið á
Fyrir skömmu birtust hér kaflar
úr bréfi frá „Strák í vegavinnu“.
Var hann óánægður með 8 stunda
vinnudaginn og óskaði þess að
mega vinna í 10 klst. á dag með
dagvinnukaupi. Ekki eru nú allir
á þessari skoðun. Nú fyrir skömmu
harst mér svoliljóðandi orðsending
frá vegavinnumönnum í Langadals-
veginum, þ. e. veginum, sem liggur
upp á Þorskafjarðarheiði:
„Að gefnu tilefni lýsum við þvi
yfir, að við höfum verið, og erum,
ánægðir með 8 stunda vinnudag og
höfum aldrei óskað breytinga“.
Þetta er nú þeirra skoðun.
Ég sagði hér um daginn að ég
hefði heyrt óánægjuraddir hjá
verkamönnum yfir.hinum stutla
vinnutíma og þarafleiðandi lægri
daglaunum í vegavinnunni.
Nú hefi ég sannfrétt, að t. d. í
fullan tug til Skútaðar-
Skeggja, „ágætismanns" í Nor-
egi. Hann var faðir Skinna-
Bjarnar landnámsmanns, föð-
ur Miðfjarðar-Skeggja.
Óskár heitinn var llestum
þeim hugstæður, er náin kynni
höfðu af honum.
Fornmenn mundu hala
kveðið svo að orði, að hann
væri fríður sýnum og vel að
manni gerr. En auk þess var
hann vinsæll og hversdagslega
orðvar skapdeildarmaður. Iiið
síðartalda aflaði honum virð-
ingar. Yrði hánn fyrir aðkasti
brynjaði hann sig með þybhni
oð fáskiptni. En engan vissi ég
fjarri því en hann að bera eit-
ur i eggjar eða vega á bak
mönnum. Greindi hann vel og
með smekkvisi á milli þess vel-
sæmis, er óábyrgur einstakl-
ingur getur leyft sér, og hins,
er ekki var embættismannin-
um samboðið. Varð þetta einn-
ig svo i reyndinni, að hann var
eftirlátssamari við sjálfan sig
cn skyldustörfin.
Hann var skapfeslumaður í
opinberum störfum, vék ekki
frá því, er hann hafði tekið á-
kvörðun um og hann taldi rétt
vera, hver sem í lilut átti.
Áfrýjaði þar fjemur til sam-
vizku sinnar og dómgreindar
en þess, hvað kæmi sér bezt.
Gekk þá jafnan sínar eigin
götur og hirti þá lítt um íhlut-
un annara né andúð. Sltytt
kalla menn stærilæti. En það
er það stærilæti, sem ætti að
vera jafn eftirsótt, sem, eins
og það er fágætt.
Væri lians hins vegar vitjað
af smælingja, fullum þegn-
skap, háttvisi eða velvilja,
fannst „hjarta með, sem undir
slær“.
Fjölhæfni var honunl í hlóð
borin. I engan skóla hafði
hann gengið eða fengið fræðslu
önundarfjai'ðai’veginum, sem unn-
ið liel'ur verið að undanfarið, hefur
verið unnið 10 tíina á dag með
dagvinnúkaupi. Og að því er mér
hefur verið sagt, var það í sam-
ræmi við óskir vegavinnumann-
anna sjálfra.
En sleppum í bili deilunni um
8 stunda vinnudaginn í vegavinn-
unni. Mín skoðun er sú, að liann
sé yitleysa, sem að minnsta kosti
skapraun sé að, ekki sízt fyrir
vegavinnuverkamenn. Verkamenn
greinir á um nauðsyn hans. Látum
svo vera.
En vegurinn yfir Þorskafjarðar-
lieiði þarf að koma sem fyrst. Það
eru allir sammála um. Og Vestfirð-
ingar mega líka vera sammála um
það, að þeir hafa fengið dugandi
mann, þar sem Lýður Jónsson er,
lil þess að standa fyrir verkstjórn
við þcssa vegagerð.
hjá neirium, fram yfir það,
sem barnaskólar geta veitt.
Samt var hann með sjálfs-
menntun búinn að vinna sig
upp í það, að rita móðurmál
sitt ln-eint og lýtalaust. Tala og
lesa enska tungu sér að fullu
gagni, svo og Norðurlandamál-
in. Fylgjast svo með skatta-
málum og sveitarstj órnarlög-
gjöf síðari • ára, sem hann
þurfti á að halda, að ekki har
út af. Og síðast en ekki .sízt,
vann hann nálega helming æfi
sinnar störf sin einhendur. Af
slysi, skotsári, missti hann
handlegg hægri handar og
varð eftir það að gera allt með
vinstri hundar vinnu.
Ilann var húsamálari, þótt
ekki hefði hann iðnbréf. Mál-
aði talsvert eftir að hann var
orðinn einhendur. Um tíma
hafði hann ofan af fyrir sér
með flutningum innan fjarðar.
Stýrði þá báti, vél og ferju með
vinstri hendi. Hann hafði
þjálfað sig svo á vinstrihand-
arskrift, að hann hafði náð
sömu tækni og skriftarhraða
og meðan hinnar hægri naut
við. öll bréf hans og skýrslur,
sem hann ekki vélritaði, eftir
að liann varð hreppstjóri, svo
og bókfærsla, eru allt vinstri-
handar verk. Má þar segja, að
verkið lofi meistarann.
Ókvæntur var hann alla æfi,
en einn son lætur hann eftir
sig, uppkominn.
Þingeyringar og sveitungar
hans sakna ]æss, að sjá honum
aldrei bregða fyrir hér oftar.
Þeir sakna hins þögula og
prúða manns, sem engan bað
vægðar, en var þó öllum góð-
ur. Barðist við örlög sín einn
og leiddi sjálfur sjálfan sig.
Þeir minnast og þakka sam-
vízkusemi, vinsemd og sam-
fylgdar allrar.
Hann bugaðist ekki en brasl
— „í bylnum stóra síðast“.
Ólafur Ólafsson.
Sjötug:
Frú Helga Tómasdóttir
Þann 17. þ. m. varð sjötug
frú Helga Tómasdóttir, kona
Magnúsar Ólafssonar prent-
smiðjustj óra.
Frú Ilelga er hin mætasta
kona og hefur unnið mikið
lífsstarf. Hafa þau lijón átt 9
börn og alið þau upp.
Það er mál allra þeirra, er
kynnzt liafa frú Ilelgu, að hún
sé prýðilega gefin kona. Sem
húsmóðir hefur hún reynst af-
burða þrekkona. Meðal sam-
borgara sinna nýtur hún vin-
sælda og trausts. Vesturland
vill með þessum fáu línum
óska henni alls farnaðar í
framtíðinni.
LEIÐ RÉTTIN G .
1 síðasta blaði var misprentað
föðurnafn Dagbjartar Majassonar
lireppstjóra í Grunnavikurhreppi.
- Á FÖRNUNI VEGI -
tír vegavinnunni. — Yfirlýsing úr Langadal.