Vesturland

Árgangur

Vesturland - 30.11.1946, Síða 1

Vesturland - 30.11.1946, Síða 1
VESTURLAND BLAÐ VESTFIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA ! XXIII. árgangur. Isafjörður, 30. nóv. 1946 47. tölublað. Isafjörður þarf aukna raforku. Rafveitustjórn ráðgerir stórtækar fram- kvæmdir i raforkumálum. Bygging hitaaOstöðvar á ísafirði. Full nýting Nónhornsvatnsvirkjnnarinnar. Rafveitustjórn telur brýna nauðsyn þess að bæta úr því neyðarástandi sem hér hefir ríkt á undanförnum ár- um í raforkumálum og er ætlun hennar sú að reisa hér hitaaflstöð og er miðað við tvær vélasamstæður 1155 hö. og 550 hö. og hefir rafveitustjóri áætlað að slík stöð muni kosta rúmar 1,3 milijónir króna. Þá er ætlunin að ljúka framkvæmdum við Nónhornsvatn og er áætlað að það verk muni kosta um 600 þús. krónur. Á fundi rafveitustjórnar 29. j úlí s. 1. kom til umræðu raf- orkuþörf Isfirðinga og á hvern hátt mætti tryggja það að hér verði nægilegt rafmagn allt ár- ið. Var rafveitustj óra falið að semj a rökstudda greinargerð um orlcuþörf Isfirðinga og benda á leiðir til úi’bóta í þess- um efnum. Á þessum sama fundi kom til tals bygging dies- elstöðvar og um það rætt að slík stöð yrði það stór að hægt væri að selj a Bolvíkingum raf- orku yfir vatnsskortstímann að vetrinum frá henni og hinn tíma ái’s frá vatnsvirkjunum okkar til þess að hagnýta hetur oi’kuframleiðslu þeirra. Þá var einnig rætt um að kælivatn frá slíkri aflstöð yrði hagnýtt til upphitunar. Á þessum sarna fundi var samþykkt að hefja samræður við hreppsnefnd Hólshrepps um sameiginlega lausn þessara mála og fór raf- veitustjóri og formaður raf- veitustjói’nar skömmu síðar til Bolungarvíkur og höfðu fund með i’afveitunefnd Bolungar- víkur um þessi mál. Leist nefndinni mjög vel á sam- vinnu og var ákveðið að láta gera stofn- og reksturskostnað- aráætlun fyrir háspennulínu frá Hnífsdal til Bolungai'vík- ur og dieselstöð ásarnt innan- bæjai'kei'fi sem hi’eppsnefndin gæti byggt ákvörðun á urn þátt- töku í fyrirtækinu. Á fundi rafveitusfjórnar 21. ]). m. lagði rafveitustjói’i fram sína greinargerð og benti á 5 leiðir til úrbóta: 1. Aukin miðlunarýirki í Fossavatni og Nónhomsvatni. 2. Hitaaflstöð. 3. Crbætur á miðlunarvii’kj- um Nónhornsvatns og bygging hitaaflstöðvar á Isafii-ði. 4. Orbætur á miðlunai’vii’ki Nónhoi’nsvatns — og 5. Virkjun Fossár í Hóls- hreppi. Gi’einai’gerð rafveitustj óx'a er löng og ítarleg og er ekki í’úm til að fara nxjög ítax’lega í hana hér, en ég vil þó skýra það helzta er þar kernur fram, þó séi’staklega þær leiðir er í’afveitustjórn valdi að fax*nar yrðu, en þær eru bygging hita- aflstöðvar á Isafirði og áfram- haldandi framkvæmdir við Nónhoi’nsvatn. Um byggingu liitaaflstöðvar segir að liún gæti stai’fað sem toppstöð fyrir Fossavatn og Nónhoi’nsvélax'n- ar og ásamt því vei’ið varastöð. Slík aflstöð gerði það að hag- nýta mæth miklu betur rennsli Fossavatns og Nónhornsvatns yfir þann tíma, sem ekki þarf að óttast vatnsskort. þótt ekki yi’ði beitt miðlunarskilyrði. Og það að hitaaflstöð hefir það fram yfir vii’kjun vatns- falla, sem ekki hafa mikla uppistöðumöguleika að alltaf má auka toppaflið og að engin oi’ka frá slikri stöð fer til spill- is í kyrrstöðu. Stofnkostnaður slíkrar stöðv- ar yx’ði miklu ódýrai’i á hvert framleitt hestafl og einnig að hagnýta má kælivatn vélanna til upphitunar. En sá ókostur er að rekstur slíkrar stöðvar mun verða mun dýrari lield- ur en vatnsvirkj ana vegna orkugj afans (olíu). Nauðsynlegt er að stærð hitaaflstöðvar se miðuð við mest uppsett afl vatnsvélanna, til þess að hún geti starfað senx vai'astöð, ef á þarf að halda, auk þess sem hún stai’faði sem toppstöð. Vélar hitaaflstöðvarinnar ])yi’ftu *að vei’a tvær eða jafn- vel þrjái’, til þess að geta sem bezt nýtt afl þeirra eftir því hver viðbótarorkan þyrfti að vera. Þessa stöð er sjálfsagt að byggja hér á Isafii’ði en ekki við rafstöðina i Engidal, því orkuflutningstap yrði þá minna.. Oliufoi-ðahúr mætti setja í beint samband við forðabúr olíusalaima. Hús þyrfti að byggja fyrir stöðina hvort cð hún væri hér eða í Engidal og yrðu þær fram- kvæmdir vafalaust ódýrai-i hér í bænum. Og loks að með því að byggja stöðina hér er hægt að nýta kælivatn vélanna til upphitunar t. d. upphitunar á sundhöll eða skólum. Aftur mun mannahald vera meira ef stöðin er hér, því þá þai’f sérstakan vélavörð, en vélaverðirnir i Engidal gætu > annazt vélgæzlu stöðvai’innar, ef hún væri þar, ásamt gæzlu vatnsvélanna. Þegar hafa borist nokkur til- boð í dieselstöð og er eftirfar- andi kostnaðaráætlun gerð í samræmi við eitt af þessum til- boðum. Þessi áætlun er miðuð við tvær vélasamstæður 1155 hest- afla með 800 kw. rafal 6600 volta, og 550 hestafla 380 kw. rafal 6600 volta, ásamt töflu- útbúnaði og öðru tilheyrandi, og það að stöðin sé byggð á Isafirði: Stofnkostnaður: Tvennar vélasamstæður, hreyfill og rafall m. tilh. skv. tilboði .... 530,000,00 Annar rafmagnsútbún- aður ásamt krana og varahl. skv. tilboði .. 330,000,00 Flutningsgj. og tollar .. 95,000,00 Vélahús ............. 170,000,00 Undirstöður véla .... 70,000,00 Uppsetning véla o. fl. . . 77,000,00 ca. 5% ófyrirséð .... 64,000,00 Samtals kr. 1,136,000,00 Reksturskostnaður: Vextir, afborganii', manna- hald, viðhald og stjórn kr. 148,300,00 á ári og auk þess má reikna með að hver framleidd Framhald á 2. síðu. Baldur Johnsen: Verður nýtt elliheimili byggt á næsta ári? Eitt af mestu nauðsynjamál- um þessa bæjar er fullkomið nýtízku Elliheimili. Um það er ekki að efast, að Elliheimilið, sem hér er nú er löngu orðið allt of lítið, og að möi’gu leyti ófullkomið,- þótt það auðvitað forði frá stór- vandræðum. Isfirðingum er fyrir löngu orðið ljóst, að hér er lirbóta þöi'f, að hér þarf í náinni framtíð að rísa upp dvalar- staður, sem gæti orðið gamla fólkinu ánægjulegt heimili, sem því væri keppikefli að komast á þegar lcvöldar að. I samræmi við þennan áliuga Isfirðinga fyrir Elliheimili, hefur nokkur undanfarin ár verið starfandi nefnd á vegum Bæjarstjórnarinnar til undir- búnings málinu. Nefnd þessi, „Byggingar- nefnd Elliheimilis á Isafirði“, hefir'þegar komið sér saman um fyrirkomulag stofnunar- innar. Ætlast er til að stofnunin taki um 60 vistmenn, þ. e. 3svar sinnum fleiri en nú. og geti þeir valið í milli fjölbýlis- herbergja, tvíbýlisherbergj a og einbýlisherbergj a. Tvíbýlisherbergin eru sér- staklega ætluð öldruðum hjón- um. Einnig mun verða um að ræða 2 herbergi til íbúðar fyr- ir hjón. Allur útbúnaður á að vera hinn fullkomnasti. Lestr- arherbergi, setustcfa og horð- salur. Byggingunni hefur verið ætl- aður staður á sjúkrahústúninu ofanverðu, ef það reynist Framhald á 2. síðu.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.