Vesturland - 18.07.1947, Síða 1
(
UIM®
&jsu® oJesírFWzoufiH 83úGFsarm$»sM?txm
XXIV. árgangur.
Isafjörður, 18. júlí 1947
26. tölublað.
Hafnarbakki. — Ihúðahúsabygging.
Framkvæmdum miðar vel áfram.
Unnið að smíði vinnupalla og uppfyllingu undir akk-
erisvegg í Neðstakaupstað.
Lokið við að steypa kjallarann í bæjarbyggingunni í
Fjarðarstræti og verið að slá upp mótum að fyrstu hæð
byggingarinnar.
Hafnarbakkinn í Neðsta-
kaupstað.
Byrjað var að vinna við
hafnarbakkann í Neðstakaup-
stað um mánaðarmótin maí og
júní í vor. Var byrjað á því að
reka niður staura í vinnupalla
og gekk sú vinna með afbrigð-
lun vel. Er riú unnið við frek-
ari smíði vinnupallanna, en
það er bseði mikið og erfitt
verk og sumt af því ekki fram-
kvæmanlegt nema úm stór-
straumsfjöru. En jafnframt er
svo unnið að uppfyllingu undir
fyrirhugaðan akkerisvegg, sem
járnþel hafnarbakkans verður
fest í.
Þegar lokið er vinnu við
vinnupalla og akkerisvegg,
verður hafist handa um að
reka niður járnþilið sjálft.
Verður væntanlega hægt að
byrja á því verki fyrir haust-
ið.
Verkstjóri við hafnarfram-
kvæmdir þessar er Marzelíus
Bernharðsson, skipasmiður, og
má það teljast mikið happ fyr-
ir bæjarfélagið, að hafa feng-
ið svo margreyndan og mikil-
hæfan verkmann, til þess að
standa fyrir þessum stórfelldu
framkvæmdum í hafnarmál-
um Isafjarðarkaupstaðar.
Munu flestir á einu máli um
það, að þar sé réttur maður á
réttum stað.
Bæj arby ggingarnar.
Eins og skýrt hefur verið áð-
ur frá hér í blaðinu, var á síð-
astliðnu ári grafið fyrir fyrstu
íbúðarhúsabyggingunni, sem
ákveðið hefur verið að ba>jar-
sjóður léti reisa. En auk þess
var á s. 1. hausti lokið við að
steypa undirstöðu þess.
Nokkur dráttur varð á því,
að hægt væri að hefjast handa
við bygginguna af fullurn
krafti strax í vor, þegar veður-
far leyfði, vegna þess hvað
lengi stóð á lögskipuðu og lof-
uðu láni frá rilcissjóði. Og enn
hefur þetta lán að vísu ekki
fengist, en ríkissjóður hins
vegar lagt fram til bráða-
byrgða kr. 100 þúsund og lof-
Qrð verið veitt fyrir áframhald-
andi fj árframlögum, þar til
ríkisstj órnin hefur tekið heild-
ar lán til þeirra framkvæmda,
svo sem lög mæla fyrir.
Er nú þegar búið að steypa
kjallara hússiris og byrjað að
slá upp mótum að fyrstu hæð
þess. Mun verða keppt að því,
að steypa upp lnisið og úti-
byrgja fyrir liaustið, svo að
hægt verði að vinna þar af
fullum lcrafti innanhúss á
komandi vetri.
Yfirsmiður við þessa stór-
byggingu er Felix Tryggvason,
húsasmiðameistari, sem þegar
hefur reynst mjög stjórnsam-
ur og efnilegur rnaður í sínu
fagi, er mikils góðs má af
vænta í byggingarmálum bæj-
arins í franvtíðinni.
I næsta blaði verður sagt frá
fleiri framkvæmdum bæjarins,
sem unnið er við eða eru í und-
irbúningi.
*
o-------
Marshall í París.
Á myndinni sést Marshall, núverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna næstyztur til vinstri.
Xil hægri liandar honum stendur Eisenhower hershöfðingi,
en til vinstri Byrnes fyrrverandi utanríkisráðherra og lengst til
hægri Omar Braðley hershöfðingi.
Mjmdin er tekin í París 6. október 1944, en þá var Marshall
foringi herráðs Bandaríkjanna.
Undanfarið hefur staðið yfir ráðstefna 14 Evrópuríkja í
París úm hjálpartilboð Marshalls til efnahagslegrar viðreisnar
Evrópu. Rússar og fylgilið þeirra i Austur-Evrópu vildu ekki
taka þátt í ráðstefnunni.
Fulltrúi Islands á ráðstefnunni er Pétur Benediktsson sendi-
herra.
Stúdentspróf.
I vor lauk stúdentsprófi við
Menntaskólann á Akureyri Ás-
geir Ásgeirsson frá Flateyri.
Nafn hans féll niður er sagt
var frá stúdentsprófi vestfirð-
inga hér í blaðinu fyrir
skömmu.
Áttræður.
Mánudagfnn 14. júlí síðast-
liðinn átti Þórarinn Gíslason
verkamaður, Aðalstræti 20 hér
i bæ áttræðis afmæli.
Snorra
hátíðin.
Á morgun, þ. 19. júli hefjast
í Reykholti í Borgarfirði mikil
hátíðahöld í tilefni af 700 ára
dánarafmæli Snorra Sturlu-
sonar, hins ágætasta sagnfræð-
ings og rithöfundar, er Island
hefir átt. En þann 23. sept. 1941
voru 700 ár liðin frá þvi að
Snorri var veginn.
Verður al'hjúpað likneski
af Snorra og framkvæmir Ól-
afur konungsefni Norðmanna
þá athöfn.
Margt stormenni innlent og
erlent verður viðstatt athöfn-
ina.
1 tilefni þessa atburðar birtir
Vesturland í dag á 2. og 3.
si$u grein um Snorra Sturlu-
son.-
Dr. Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, kom liingað
til bæjarins fyrir nokkru og
gerði athuganir í sambandi
við Nónhornsvatnsvirkjunina,
samkvæmt ósk rafveitustjórn-
ar. Mun hann hafa gefið skrif-
legt álit sitt í þessum efnum til
rafveitustjórnar og lagt fyrir
um frekari athuganir í þessu
sambandi. Vinna er nú þegar
hafin að eilihverju leyti í
sambandi við þær athuganir.
Verður nánara sagt frá þess-
um málum innan skamms hér
í blaðinu.
Til áskrifenda Vesturlands.
Þeir áskrifendur Vestur-
lands, sem eklci fá blaðið með
skilum, eru vinsamlega beðnir
að vitja þess á afgreiðsluna að
Uppsölum, þar sem mjög erf-
iðlega hefur gengið með að fá
börn til þess að bera út blaðið-
i sumar.