Vesturland - 16.06.1949, Síða 4
XXVI. árgangur 16. júní 1949. 16. tölublað.
Ráðherra og sendiherra.
Dean Acheson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Philip C.
Jessup „allsherjar sendiherra“ ræðast við. — Þeir eru nú tveir
fremstu stj órnmálamenn Bandarikjanna.
Aðalfundur Iðnaðarmannafélagsins
Úr bæ og byggð.
Sigurður Bjarnason
alþingismaður kom í'yrir
skömmu til bæjarins.
Tónlistaskóla Isaf jarðar slitið.
Fyrsta kennsluári Tónlista-
skóla ísafjarðar var lokið s.l.
mánudag. Skólinn tók til starfa
10. okt. s.l. Kennslugreinar
voru tónfræði, píanó- og orgel-
leikur. Um 30 nemendur stund-
uðu nám í skólanum í vetur.
Skólastjóri var Ragnar Ii.
Ragnar, sem kenndi pianóleik,
en Jónas Tómasson kenndi
orgelleik. Veikindin í vetur
háðu mjög starfi skólans.
Við skólauppsögn töluðu
formaður Tónlistafélagsins,
Jóhann Gunnar Ólafsson, bæj-
arfógeti og skólastjórinn Ragn-
ar H. Ragnar. Tólf nemendur
komu fram og léku 2—3 pínó-
lög hver og tókst prýðilega.
Tónlistaskólinn er borinn uppi
af einstaklingum. Bæjarstjórn
lsafjarðar hefur veitt honum
6 þús. kr. styrk, en hinsvegar
fékkst enginn styrkur l'rá Al-
þingi.
Gagnfræðaskóla Isaf jarðar
var sagt upp 1. júní s.l. Fast-
ir kennarar við skólann voru
13 og stundakennarar 4. Skól-
inn starfaði í 3 bekkjum og
8 deildum. 172 nemendur
gengu undir próf, en allmargir
nemendur hættu námi vegna
mænuveikinnar í vetur, en
skólanum var lokað^frá 11.
janúar til 3. marz af völdum
liennar. 52 nem. luku prófi i
fyrsta bekk, 49 í öðrum bekk
og 56 luku gagníræðaprófi og
15 nemendur gengu undir
landspróf. Hæstu einkunn við
gagnfræðapróf hlaut Garðar
Halldórsson 9,03, en Friða
Hördal hlaut hæstu einkunn
skólans 9,35.
Vaxandi útgerð í Hnífsdal
Vélbáturinn Smári frá Húsa-
vík var nýlega kéyptur til
Hnífsdals. Smári er 39 srnál. að
stærð, byggður í Danmörku
fyrir 2 árum. Hann var gerður
út frá Sandgerði í vetur og
varð þriðji aflahæsti bátur á
vertíðinni. — Frainkvæmdar-
stjóri Smára er Hjörtur Guð-
mundsson útgerðarmaður.
Komu bátsins var fagnað af
fjölda manns og með hátíð-
legri móttökuathöfn . Ræður
fluttu Einar Steindórsson, odd-
viti, Ingimar Finnbjörnsson,
útgerðarm. og framkvæmda-
stjóri bátsins Hjörtur Guð-
mundsson. Fögnuðu ræðumenn
því, að stærri og betri bátar
eru nú að koma í plássið. Nýr
bátur 37 tonn, sem smíðaður
var á Norðfirði á vegum ríkis-
stjórnarinnar er væntanlegur
Á aðalfundi Iðnaðarmanna-
félags Isfirðinga, 10. júni s.l.
var stjórn félagsins endurkjör-
in, en hana skipa: Sigurður
Guðmundsson formaður, Sam-
úel Jónsson ritari og Ágúst
Guðmundsson gjaldkeri. Vara-
stjórn skipa: Marsellius Bern-
harðsson fonnaður, Kristján
Tryggvason ritari og Sigurður
Ásgeirsson gjaldkeri. I skóla-
nefnd Iðnskólans eiga þessir
sæti: Kristján Tryggvason,
Páll Guðmundsson og Þórður
Jóhannsson.
Iðnaðarmannafélagið hafði
skipað 5 manna, nefnd til að
í haust og er h.f. Haukur eig-
andi hans.
Hjörtur Guðmundsson benti
á það í ræðu sinni, að núver-
andi hafnarskilyrði torvelduðu
mjög útgerð stærri báta frá
IInífsda.1, og lagði áherzlu á að
bryggjan yrði lengd hið fyrsta
og jafnframt breikkuð. Er í
ráði að lengja bryggjuna um
40 m. og standa vonir til að
byrjað verði á þvi verki í sum-
ar.
Fjórir bátar verða gerðir út
frá Hnífsdal í sumar, Páll Páls-
son, Mímir, og Smári á línu, en
Jóakim Pálsson með dragnót.
Frystihúsið hefur fastráðið um
15 karlmenn í allt sumar. I
ráði er að stækka frystihúsið í
sumar.
Ólafur í Skálavík sjötugur.
Þann 13. þ. m. varð Ólafur
Ólafsson bóndi í Skálavík sjöt-
gera tillögur til úrbóta á raf-
orkumálum bæjarins. Nefndin
klofnaði í málinu og lágu tvö
nefndarálit fyrir fundinum til
umræðu og ályktunar. Miklar
umræður urðu mn málið.
Samþykkti fundurinn tillög-
ur minnihluta nefndarinnar,
sem Samúel Jónsson bar fram.
Auk Samúels töluðu þeir
Kristján Tryggvasonn, Jón
Gauti og Þórður Jónsson fyrir
tillögunni. Vegna rúmleysis
verða samþykktir fundarins og
frásögn af umræðunum að
bíða næsta blaðs.
ugur. Þessa merka bónda verð-
ur getið nánar liér í blaðinu
síðar.
Ingimar Bjarnason
látinn.
Fyrir skönnnu er látinn
Ingimar Bjarnason oddviti og
sýslunefndarmaður í Iinifsdal.
Hann hafði átt við alllanga
vanheilsu að búa er hann lést.
Með Ingimar Bjarnasyni er
merkur maður til moldar
genginn. Hann var hinn mesti
þrekmaður og stundaði lengi
sjómennsku og skipstjórn. I
mörg ár var hann sýslunefnd-
armaður og oddviti í Hnífsdal
og hafði margháttuð afskipti
af málum byggðarlags síns.
Ingimar var maður mikill
vexti í hvívetna hinn gei’filcg-
asti. Hann var vel greindur
maður, góðgjarn og glaðlynd-
ur. — Hann var jarðsettur í
Hnífsdal s.l. þriðjudag, liinn
14. júní að viðstöddu fjöl-
menni.
Knattspyrnufélagið Ilörður
30 ára.
Þann 27. mai s.l. átti knatt-
spyrnufélagið Hörður 30 ára
afmæli. Svo sem nafnið bendir
til var það upphaflega stofnað
til að æfa hina vinsælu knatt-
spyrnuíþrótt. En með árunum
hefur Hörður vaxið og dafnað,
bæði að félagafjölda og við-
l'angsefnum, og er nú stærsta
íþróttafélag Vestfjarða. Allar
helztu íþróttagreinar sem iðk-
aðar eru hér á landi eru á
starfsskrá félagsins, svo sem
knattspyrna, handknattlcikur
og frjálsar íþróttir.
Þá hefur Ilörður myndarleg-
an skíðaskála í smíðum uppi á
Seljalandsdal og er mjög vak-
andi áhugi hjá félögum Harð-
ar fyrir skíðaíþróttinni, sundi
og fimleikum.
Isfirzk æska hefur á þessum
30 árum átt þess kost að iðka
margskonar íþróttir á vegum
Harðar og liefur félagið því
lagt fram mikinn skerf til að
auka líkamlega og andlega
heilbrigði æsku Jiessa bæjar í
góðum og liollum félagsskap.
Hörður minntist afmælis síns
með íþróttamóti og glæsílegu
afmælishófi. — Bauð félagið
frj álsíþróttamönnum úr I. R.
hingað vestur til keppni um
hvítasunnuna. Meðal I. R.-inga
var hinn glæsilegi iþróttamað-
ur Finnbjörn Þorvaldsson, sem
er gamall Harðverji.
Þrátt fyrir óhagstæll veður
náðist góður árangur á mótinu.
Afmælishófið var haldið ann-
an í hvítasunnu í Alþýðuliús-
inu og sátu það um 120 manns.
Margar ræður voru fluttar og
félaginu bárust ýinsar góðar
gjal'ir. Þessir töluðu:
Högni Þórðarson, formaður
Harðar, Helgi Guðmundsson
bakaram., Ingólfur Steinsson,
fararstjóri I. R.-inga, Finnur
Finnsson forni. Vestra, Sigurð-
ur Halldórsson, bæjarstjóri og
Sverrir Guðmundsson banka-
gjaldkeri.
Vesturland árnar Herði mik-
ils starfs og góðs gengis á kom-
andi árum.
17. júní hátíðahöldin.
' Úliskemmtun hefst kl. 2 e. h.
við Gagnfræðaskólann. Kvöld-
skemmtun kl. 8,30 e. h. í Al-
þýðuhúsinu. Dansleikir kl. 11
e. h. í Alþýðýuhúsinu (gömlu
dansarnir) og á Uppsölum
(nýju dansarnir).
Skömmtun aflétt.
Á fundi rafveitustj órnar í
gær var ákveðið að aflétta
skömmtun á rafmagni.
1