Vesturland - 15.11.1949, Síða 1
w mm m§> afesvFmzxm sam íli'Jlj 3FS3m>)SMmtm
XXVI. árgangur Isafjörður, 15. nóvember 1949. j 36. tölublað.
Fjóiðungssamband Yestfirðinga.
Stofnþing Fjórðungssambands Vestfirðinga var haldið
hér á Isafirði dagana 8.—10. nóv. s.l. Tilgangur sambands-
ins er, að sameina sýslu- og bæjarfélög Vestfjarða um
menningar- og hagsbótamálefni þeirra, og stuðla að því,
'að félögin komi fram sem ein heid út á við, bæði þegar
um sameiginleg framfaramál er að ræða og einnig til
stuðnings velferðarmálum einstakra sýslu- og bæjar-
félaga.
Sérstaka áherzlu vill sambandið leggja á að vernda og
efla hagsmuni fjórðungsins á sviði menningar,- fjárhags,-
viðskipta- og atvinnumála. Einnig vill sambandið vinna
að varðveizlu sögulegra minja innan fjórðungsins og
annara þeirra tengsla milli fortíðar og nútíðar, sem hverri
menningarþjóð eru nauðsynleg.
I fjórðungsráð voru kosnir: Jóhann Gunnar Ölafsson, Jón H.
Fjalldal og Jóhann Salherg Guðmundsson. Ákveðið var að næsta
þing yrði á Hólmavík.
Að loknum fundarstörfum bauð bæjarstjórn Isafjarðar þing-
fulltrúum til kvöldverðar í Húsmæðraskólanum.
Tildrög.
Á sýslufundi N.-lsafjarðar-
sýslu 1948 vakti Sigurður
Bjarnason, alþingismaður, og
fleiri forvígismenn hér vestra
athygli á því, að tímabært væri
að V estf irðingaf j órðungur
myndaði f j órðungssamband
svipaðs eðlis og fjórðungssam-
ljand Norður- og Austurlands.
Á fundinum var kosin 3ja
manna undirbúningsnefnd er
vinna skyldi að stofnun fjórð-
ungssambands fyrir sýslu og
bæjarfélög í Vestfirðingafjórð-
ungi. I nefndinni voru kosnir:
Einar Guðfinnsson, Bolungar-
vík, Jón H. Fjalldal, Melgras-
eyri, Jóh. Gunnar Ólafsson og
Sigurður Bjarnason, forseti
bæj arstj órnar Isafj arðar.
Dagana 8.—10. þ.m. komu 12
fulltrúar frá sýslu og bæjarfé-
lögum á Vestfjörðum saman á
Isafirði, til þess að undirbúa
stofnun Fjórðungssambands
Vestfirðinga. Þessir fulltrúar
voru mættir á fundinum:
Fra sýlsúnefnd Strandasýslu:
Alfred Halldórsson, hrepp-
st j óri, Stóra-F j arðarhorni,
Sæmundur Guðjónsson, hrepp-
'stjóri, Borðeyri.
Frá sýslunefnd Norður-lsa-
fjarðarsýslu: Jóhann Gunnar
Ólafsson, sýslumaður, Einar
Guðfinnsson, Bolungarvík, Jón
H. Fjalldal, Melgraseyri.
Frá bæjarstjórn Isafjarðar:
Sigurður Halldórsson, bæjar-
stjóri, Halldór Ólafsson, rit-
stjóri og Hannibal Valdimars-
son, skólastjóri.
Frá sýslunefnd Vestur-lsa-
fjarðarsýslu: Hjörtur Hjálm-
arsson, kennari, Flateyri, Jó-
hannes Davíðsson, sjrslunefnd-
armaðiu-, Hjarðardal og Sturla
Jónsson, hreppstjóri, Suður-
eyri.
tír Barðastrandarsýslu: Sæ-
mundur Ólafsson, fortjóri,
Bildudal.
Þessar tillögur og ályktanir
voru samþykktar:
Verzlunar- og' viðskiptamál.
Fyrsta þing fjórðungsambands
Vestfirðinga gerir svohljóðandi á-
lyktanir um viðskiptamál:
1. Þingið lýsir óánægju sinni
yfir því fyrirkomulagi að megin-
þorri þeirra nauðynjavara, sem til
landsins eru fluttar skuli vera um-
skipað í Reykjavik, þar eð slíkt
veldur. verðhækkun á vörum til
allra þeirra, sem utan Reykjavíkur
búa. Skorar þingið á stjórnarvöld
landsins, að hlutast til um með
lagasetningu eða á annan liátt að
úr þessu verði bætt.
‘2. Þingið felur fjórðungsráði að
leita samninga við Eimskipafélag
Islands og Samb. ísl. Samminnufé-
laga um að þessir aðilar hagi fcrð-
um skipa sinna á vestfirzkar liafn-
ir á þann veg að komizt verði hjá
•uppskipun í Reylcjavík.
1 annan stað leiti fjörðungsráð
samstarfs við vestfirzka kaupsýslu-
menn og kaupsýslufyrirtæki um
hváð þeir telji vænlegt til úrbóta
í viðskiptamálum þessa landshluta.
3. Þingið telur allt of mikið fjár
magn og vinnuafl bundið í inn-
flutningsverzlun landsmanna og
teldi eðlilegt og æskilegt að ein-
staklingar og framleiðendur um
land alll mynduðu með sér inn-
kaupasamband er nyti sömu að-
stöðu og hefði sama hlutverki að
gegna fyrir þá, eins og Samb. ísl.
Samvinnufélaga fyrir kaupfélögin,
enda verði innflutningi til landsins
réttlátlega skipt milli þeirra aðila,
er annast innflutningsverzlun á
hverjum tíma.
4. Þingið bendir á þá stað-
reynd, að enginn landshluti leggur
eins miklar gjaldeyristekjur i þjóð-
arbúið, miðað við íbúatölu, og Vest-
firðir. Af þeim sökum gerir þingið
þá kröfu til gjaldeyrisyfirvaldanna
að Vestfirðingar séu ekki afskiptir
við úthlutun gjaldeyrisleyfa, eins
og reyjisla undanfarinna ára hefur
sýnl.
Landhelgismál.
Ársþing fjórðungssambands Vest-
firðinga skorar á Alþingi og ríkis-
stjórn að beita sér af alefli fyrir
stórfelldri stækkun landhelginnar
svo fljótt, sem kostur er á.
Ennfremur telur þingið að land-
lielgisgæzla við Vestfirði hafi und-
anfarin ár ekki verið svo góð, sem
skyldi. og telur nauðsynlegt, að hún
sé aúkin að miklum mun, einkum
að vor- og haustlagi.
Símamál.
Ársþing fjórðungssambands Vest-
firðinga skorar á póst- og síma-
inálastjórnina að láta þegar á næsta
ári fara fram gagngera endurbót á
langlínum um Vestfirði, svo sem
með því að leggja jarðstrengi yfir
heiðar og fjölga langlínum. Telur
þingið það ástand, sem verið hef-
ur i símamálum Vestfjarða algjör-
lega óviðunandi.
Raforkumái.
Ársþing fjórðungssambands Vest-
firðinga skorar á raforkumála-
stjórn ríkisins að liún láti þegar á
næsta ári rannsaka til hlítar mögu-
leika fyrir vatnsvirkjunum á Vest-
fjörðum, og bendir jafnframt á að
rafmagnsþörfin á þessu svæði fer
stöðugt vaxandi og er því brýn þörf
skjótra aðgerða í þessum málum.
Ársþingið lítur svo á að bygging
sameiginlegra raforkuvera fyrir
Vestfirði sé eitt hið mesta stórmál,
sem nú kallar að um framkvæmdir
á sambandssvæðinu.
Ársþingið vill í sambandi við
þessi mál láta það álit sitt í ljósi,
að það telur mjög æskilegt, að tek-
in yrði upp verðjöfnun á rafmagns
gjöldum um land allt, og telur það
eitt af frumskilyrðum fyrir afkomu
möguleikum hinna ýmsu lands-
hluta.
Ársþingið treystir því, að al-
þingismenn Vestfjarða liefji nú
þegar sameiginlega baráttu fyrir
hagkvæmri og skjótri lausn þess-
ara mála.
Yegamál.
Ársþing fjórðungssambands Vest-
firðinga_ skorar á Alþingi og vega-
málastjórn að leggja aukna áherzlu
á að koma byggðarlögum á Vest-
fjörðuin, sem enn skorlir vegi í
bifvegasamband bæði innbyrðis og
við aðalþjóðvegakerfi landsins, svo
og að bæta stórum um þá vegi, sem
þegar liafa verið lagðir, þar sem
þess er mest þörf.
Menntamál.
I. Tillaga um sjómannafræðslu.
Fyrsta þing fjórðungssambands
Vestfirðinga skorar á alla þing-
menn Vestfirðinga að beita sér nú
þegar fyrir lagasetningu um stofn-
un sjómannaskóla Vestfirðinga á
Isafirði.
II. Tillaga um menntaskóla.
Fjórðungsþingið lýsir yfir fylgi
sinu við þá stefnu í skólamálum að
menntaskólar verði reistir í öllum
landsfjórðunugm til þess að jöfnuð
verði, sem bezt má verða aðstaða
ungs fólks til langs skólanáms. Læt-
ur þingið það álit sitt í ljós, að sízt
af öllu megi efnahagur, ætterni né
fæðingarstaður ráða því hverjir
gerist embættismenn þjóðarinnar
eða eigi þess kost að njóta æðri
skólamenntunar.
St j órnarskr ár mál.
Ársþing fjórðungssambands Vest-
firðinga telur það til vanseradar
þingi og þjóð, að ekki hefur enn
verið samin fullkomin stjórnarskrá
íslenzka lýðveldisins.
Þingið samþykkir að fela milli-
þingsnefnd þeirri, er samþykkt hef
ur verið að kjósa, að móta tillögur
til grundvallar nýrra stjórnskipu-
unarlaga, er síðan verði lagðar fyr-
ir næsta fjórðungsþing til af-
greiðslu.