Vesturland - 13.02.1951, Blaðsíða 4
Pétur Pálsson
á Kirkjubóli
65 ára.
1 dag, 11. febrúar, er Pétur Páls-
son á Kirkjubóli 65 ára.
Pétur á Kirkjubóli er sonur séra
Páls Ólafssonar, alþingismanns og
Arndísar Pétursdóttur, Eggertz.
Séra Páll Ólafsson var sonur séra
Ólafs Pálssonar, alþingismanns og
dómkirkjuprests. Kona séra Ólafs
Pálssonar var Guðrún Ólafsdóttir,
jústizrads í Viðey Stephensens.
Arndís Pétursdóttir Eggertz var
systir þeirra brœðra Guðmundar og
Sigurðar Eggertz.
Af þessu má sjá að í hvoruga ætt-
ina standa að tilveru Péturs
neinir veifiskatar. Pétur ber það
líka með sér, að hann stendur ekki
á grannstoðum úrkynjaðra ætta.
Pétur ólst upp og mótaðist í föð-
urhúsum til 28 ára aldurs. Árið 1914
hóf hann sjálfstæðan búskap að
Bjarnastöðum, og var þar til 1921,
að hann flutti á jörðina Hafnardal
og þar bjó hann í 25 ár. Síðustu 5
ár hefur hann verið á Kirkjubóli í
Skutulsfirði. Pétur hefir verið
kenndur við Hafnardal.
Það er bæði gagn og gaman að
kynnast samtíðarmönnum eins og
Pétri Pálssyni. Pétur er glaður og
traustur alvörumaður. Ekki hefir
hann dýrkað Mammon um dagana.
Veraldarauðurinn er því ekki stór.
Allt fyrir það er Pétur auðugur.
Hann hefir safnað auð endurminn-
inganna, er lýsir og yljar sál hans
meir en gullkistur margar dýrk-
endum Mammons.
Birtan, gleðin og það góða í líf-
inu er það, sem Pétur hefir mótast
af, — hið neikvæða sem vart mun
hugsanlegt að 65 ára reynsla hafi
ekki orðið fyrir — geymir Pétur í
fylgsnum sem aðrir hafa ekki að-
gang að.
„Æfin liefir verið fljót að líða“,
sagði Pétur er hann var spurður í
tilefni þessa afmælis. „Mér finnst
ekkert vera komið enn“, sagði hann
einnig. Þetta er rétt. Almanaksárin
telja sjaldnast hinn rétta aldur
mannsins, heldur lífið sjálft hið
innra sem liið ytra, óháð tíma. Pétri
hefir hlotnast sú hamingja, að hann/
hefir liaft hæfileika til að laga sig
eftir aðstæðum.
Þótt snjór og inflúenza hefti för
margra er vildu heimsækja Pétur í
dag, munu stofur hans samt óma af
glöðum gestum, — það mun Pétur
sjá um — og hún Sigríður, hans
góði „innanríkisráðherra“.
Hérmeð mínar beztu ái’naðarósk-
ir Pétur minn.
Góður kunningi.
--------0-------
ísbjörn
seldi afla sinn i Fleetwood s.l.
fimmtudag. Var hann með 650 kits,
sem seldust fyrir 1422 sterlings-
pund, sem er mjög slæm sala.
mmm
3jsn® DfeszFFmzx&H sdHsFS3iEs»smjofn
XXVIII. árgangur.
13. febrúar 1951.
3. tölublað.
Svigkeppni um Ármannsbikarana:
Hörður sigraði í eldri flokki
Hnífsdælingar í yngri flokki.
Sveitakeppni í svigi um Ár-
mannsbikarana fór fram s.l. sunnu-
dag í Stórurð. Þátttaka var inikil í
þessari keppni og sýnir að skíða-
íþróttin stendur hér nú með mikl-
um blóma. Árangur var yfirleitt
góður hjá keppendum, en þó skorti
margan úthald, enda var brautin
löng. Keppnin sýndi þó, að fsfirð-
ingar eiga afbragðs svigmenn og
svigmannsefni. Isfirðingar eiga nú
framundan harða og tvlsýna keppni
á væntanlegu landsmóti um beztu
svigsveit Islands. Er að vænta að
Jón Karl Sigur'össon
undir hana verði vel æft. Athygli
vakti frammistaða Hnífsdælinga og
þó sérstaklega Harðar Árnasonar í
eldri flokki. Hnífsdælingar unnu
nú í annað skipti í röð sveitakeppn-
ina í drengjaflokki. Til leiks í eldri
flokki voru skráðir 28 þátttakendur
og í yngri flokki 24.
Úrsiit í eldri flokki:
1. A-sveit Harðar 6:52,1 mín.
2. Ármann, Skutulsf., 7:10,2 —
3. A-sveit Skíðaf. ísaf. 7:39,7
4. B-sveit Skíðaf. ísaf. 8:13,9 —
5. B-sveit Harðar 8:21,0 -—
6. Sveit Þróttar 8:42,0 —
I A-sveit Harðar voru: Jón Karl
Sigurðsson, Haukur Ó. Sigurðsson
og Hallgrímur Njarðvík.
Beztum brautartíma náðu:
1. Jón Karl Sigurðsson H. 2:06,5
2. Oddur Pétursson Á. 2:09,0
3. Gunnar Pétursson Á. 2:13,2
4. Haukur Ó. Sigurðsson H. 2:19,6
5. Hörður Árnason Þ. 2:20,0
6. Hallgrímur P. Njarðvík H. 2:26,0
7. Sigúrður Jónsson S.I. 2:27,3
8. Guðmundur Helgason S.f. 2:30,0
9. Einar Valur Kristjánss. II. 2:34,2
10. Jóhann Símonarsson H. 2:36,8
Brautin var 600 m. löng. Hæðar-
mismunur 250 m., portin 36.
Úrslit í yngri flokki:
1. Sveit Þróttar, Hn.d. 4:13,8 mín.
2. A-sveit Harðar 4:28,0 —
3. Ármann 6:04,9 —
4. B-sveit Harðar 6:07,2 -—
Beztum brautartíma náðu:
1. Björn Helgason Þ. 1:18,1
2. Óskar Benediktsson Þ. 1:19,0
3. Elías Helgason H. 1:21,2
f sveit Þróttar voru: Björn Helga-
son, Óskar Benediktsson og Helgi
Geirmundsson.
Brautin var 300 m. löng. Hæðar-
mismunur 150 m., portin 24.
ÍSBOIiG.
sigldi með afla sinn til Bretlands
fyrir helgina, og fór skipið beint af
miðum. Seldi hún afla sinn í
Aberdeen í gær og dag, en ekki hef-
ir enn frétzt um söluna. Var aflinn.
mestmegnis þorskur. Markaðurinn í
Brellandi var heldur lakari seinni
hluta síðustu viku, en féll svo al-
gjörlega eftir helgina. Var yfirfullt
af fiski í öllum hafnarborgum Bret-
lands í gær og dag, og er búizt við,
að svo verði næstu daga.
Messað í Hnífsdal
n.k. sunnudag.
Barnamessa kl. 11 f. h.
Alm. messa kl. 2 e.h.
S Þriðjudag og Miðvikudag
| kl. 9:
| Tumi litli
| Ágæt mynd. Tekin eftir sögu 1
| Mark Twains
| Fimmtudag kl. 9: |
Ástartöfrar
Norsk stórmynd. I
= Síðasta sinn. 1
iiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiuii
Sextugur.
Hjörtur Guðmundsson, útgerðar-
maður á Brekku í Hnífsdal, varð
sextugur þann 2. febr. s.l.
Iljónaefni.
Þann 4. febr. s.l. opinberuðu trú-
lofun sína frk. Helga Þórðardóttir,
Jóhannssonar, úrsmiðs, og Hall-
grimur P. Njarðvík.
Nýr lœknir.
Tómas Árni Jónasson, TóinasSon-
ar, bóksala, hefir nýlega lokið
kandídatsprófi við Háskóla fslands.
Hlaut hann 1. eink., 151% stig.
Tómas Árni er nú aðstoðarlæknir á
Landakoti.
Ándlát.
Magnús Vagnsson, yfirmatsstjóri
á Siglufirði, andaðist í gær. Magnús
er gamall ísfirðingur en hefur ver-
ið búsettur á Siglufirði hin síðari
ár. Hann var formaður Vestfirð-
ingafélagsins á Siglufirði.
Ögœftir og ördegöu.
Undanfarið hafa gæftir verið
mjög slæmar og afli sáratreg’ur, svo
að ördeyða mó héita. Hefir aflinn
undanfarið verið 1—2 smálestir á
bát, og hefir fiskurinn verið sér-
staklega smór. Hefir megnið af afl-
anum stundum verið handfiskur
undir 12 tommum. Vertíðarfiskur
sést ekki.
Fiskur liækkar í veröi.
Samkv. auglýsingu verðlags-
skrifstofunnar frá 6. febr. liækkar
bolfiskur um 2 aura, flakaður fisk-
ur með roði um 45 aura og bein-
laus og roðfleltur fiskilr um 78
aura. Er verð á hauslausri ýsu nú
kr. 2.10 kg., þorski kr. 1,90 kg. og
kola kr. 4,00 kg.
Aöalfundur
Skipstjórafélagsins „Bylgjan“ var
haldinn s.l. sunnudag, og var
stjórnin öll endurkosin, en hana
skipa:
Símon Helgason, formaður.
Gunnar Pálsson, ritari.
Jóh. Júlíusson, gjaldkeri.
Fundúrinn samþykkti einróma,
að kjósa Guðm. Júní Ásgeirsson,
skipstjóra á Þingeyri, heiðursfé-
laga.
S úöavi kurlæ kn is héraö.
Á fimmtudaginn s.l. samþykkti
t
Alþingi frumvarp um breytingu á
skipun læknishéraða. Gera lög
þessi ráð fyrir nýju læknishéraði í
stað tveggja. Er það Súðavíkurhér-
að, sem nær yfir þessa hreppa:
Súðavíkurhreppur, ögurhreppur,
Reykjarfjarðarhreppur, Nauteyrar-
hreppur, Snæfjallalireppur, Grunna
víkurhreppur og Sléttuhreppur. —
Læknissetur í Súðavík.
Ibúar héraðsins utan Súðavíkur-
hrepps eiga þó jöfnum höndum til-
kall til héraðlæknis á fsafirði.