Vesturland - 05.05.1951, Blaðsíða 4
w
VJ sjsn® n/esvFwzouRH saúGFsaræ&jsmxjm
XXVIII. árgangur.
TBB
5. maí 1951.
6. tölublað.
Piltur og Stúlka.
Keppa 5 ísfirðingar a
Olympíuleikunum
næsta vetur?
Haukur ó. Sigurðsson og
Jón Karl Sigurðsson.
Skíðasamband íslands hefir nú
mælt með því við íslenzku olymp-
íunefndina, að þrír Isfirðingar
keppi í göngu á vetrarolympíuleik-
unum á Holmenkollen næsta vetur.
Eru það þeir Ebenezer Þórarins-
son, Gunnar Pétursson og Oddur
Pétursson. Einnig hefir hún lagt
til, að Þingeyingarnir Jón Krist-
jánson, ívar Stefánsson og Matth-
ías Kristjánsson taki þátt í göngu-
keppninni. Norski skíðakennarinn
Johannes Tenmann hefir lagt til,
að ísfirðingarnir þrír keppi í 18
km_ göngu og einnig að þeir verði
í boðgöngusveit íslendinga, ásamt
Þingeyingnum, Ivari Stefánssyni.
Bræðumir Jón Karl og Haukur
Ó. Sigurðssynir hafa undanfarið
verið við æfingar hjá sænska
svigkennaranum Hans Hanson.
Jón Karl er nú á förum til árs-
dvalar í Svíþjóð. Eru líkur til að
þeir bræðurnir muni keppa í svigi
og bruni á Vetrar-olympíuleikjun-
um næsta vetur. En ennþá hefir
ekki verið fullráðið, hvaða íslend-
ingar taka þátt í svig- og brun-
keppninni.
Frú Elín Þorbjarnardóttir.
Framhald af 2. síðu.
þessum tímamótum frú Elínar
mun hugur barna hennar, sem og
annara ástvina og vina, færa hlýju
í bæ. — Frá mér og mínum bið ég
þig Elín að taka á móti hugheilum
óskum um gott leiði, áfram út í
það ókomna. J. G.
GÓLFDtJKUR nýkominn.
Verzlun Elíasar J. Pálssonar,
Isafirði.
MALIÐ MEIRA.
Hefi málningarvörur og vegg-
fóður. — Sanngjarnt verð á vinnu
og efni.
Finnbjörn málari.
Leikfélag Isafjarðar hafði sýn-
ingar á sjónleiknum „Piltur og
stúlka“, eftir Emil Thoroddsen,
12.—17, apríl s.l. Sjónleikurinn er
saminn upp úr samnefndri sögu,
eftir Jón Thoroddsen. Marga van-
kanta er á leikritinu að finna,
samanborið við söguna. Aðal-
persónumar Indriði og Sigríður
verða einskonar leikbrúður, sem
stjómað er af aukapersónum í
leikritinu, en sérstaklega er endir-
inn þó snubbóttur.
Indriði var leikinn af Sigurði
Jónssyni. Gerði hann hlutverki
sínu ágæt skil. Naut söngur hans
sýn vel, lögin falleg og meðferðin
góð. Sigríður er leikin af Selmu
Samúelsdóttur. Gerði hún hlut-
verki sínu einnig allgóð skil, en
hefði þó mátt vera öllu innilegri
og blíðari. Gróu á Leiti lék frú Álf-
heiður Guðjónsdóttir, og gerði hún
hlutverki sínu sérstaklega góð skil
og sýndi okkur vel í gerfi Gróu
hina sígildu kjaftakerlingu.
Aðrir leikendur voru :Haukur
Ingason, Steinþór Kristjánsson,
Marías Þ. Guðmundsson, Martha
Ár'nadóttir, Þórleifur Bjarnason,
Rósa Þórarinsdóttir, Jón Jónsson,
Þann 10. apríl s.l. bárust okkur
þau sviplegu tíðindi, að Jón Val-
geir Magnússon hefði látizt af
slysfömm, er togarinn Isborg var
á leið til lands af veiðum. Helfregn
hans kom sem reiðarslag. — Veiði-
ferðinni var lokið, og skipið komið
á leið til lands, en þá bar dauðann
að fyrirvaralaust. Á einu augna-
bliki urðu þrjú lítil böm, sem biðu
þess óþreyjufull, að faðir þeirra
kæmi heim, föðurlaus. Á skjótan
og óvæntan hátt voru þau svipt
föðurlegri ástúð og umhyggju.
Vonir þeirra brugðust óvænt. Svo
hrapalega slær maðurinn með ljá-
inn.
Jón Valgeir Guðmundur Magn-
ússon var fæddur á Dvergasteini í
Álftafirði 14. maí 1905. Sonur
hjónanna Sigríðar Friðriksdóttur
og Magnúsar Guðmundssonar. Jón
Valgeir ólst upp í foreldrahúsum
til fermingaraldurs, en þá fluttist
hann hingað til ísafjarðar. 1 októ-
ber 1938 kvæntist hann eftirlifandi
konu sinni, Sveinfríði Hannibals-
dóttur frá Kotum í Önundarfirði,
og eignuðust þau 3 börn, sem öll
eru á lífi.
Um fermingaraldur fór Jón Val-
geir að stunda sjóinn, og var hann
Kristín ólafsdóttir, Jakobína
Pálmadóttir, Björn Guðmundsson,
Geirþrúður Charlesdóttir, Lára
Magnúsdóttir, Hólmfríður Jóns-
dóttir, Albert K. Sanders, Guðm.
Bárðarson, Theódór Jónsson og
Sig. Th. Ingvarsson.
Leiðbeinandi var Þórleifur
Bjarnason. Undirleik annaðist
Elísabet Kristjánsdóttir. Lögin í
leiknum eru eftir Emil Thorodds-
sen, nema „Ó fögur er vor fóstur-
jörð“. Sigurður Guðjónsson sá um
leiktjöld. Það hefur nú komið í
ljós, að við eigum allgóðum leik-
kröftum á að skipa og væri því at-
hugandi fyrir Leikfélagið, hvort
ekki mætti koma á svið a.m.k.
tveim leikritum á næsta ári.
Lúðrasveit ísafjarðar lék á milli
þátta. Sveitin er skipuð piltum,
sem stundað hafa nám hjá Tón-
listarskólanum í vetur og er
undravert hvaða árangri hún hef-
ur náð á ekki lengri tíma. Á kenn-
ari hennar og stjórnandi, Harry
Herlufsen, ásamt Tónlistarskólan-
um, þakkir skilið og er vonandi að
piltarnir haldi áfram að æfa og
veiti okkur ísfirðingum marga
gleðistund í framtíðinni.
sjómaður ávallt síðan eða sam-
fleytt í rúm 32 ár. Lengst af þeim
tíma var hann á mótorbátum, en
frá því um haustið 1948 var hann
háseti á togaranum ísborg. Ég
kynntist honum fyrst, þegar hann
kom á ísborg, og er það eitt víst,
að þá kynntist ég góðum dreng.
Jón Valgeir var vinur vina sinna,
grandvar til orðs og æðis. Hann
var ákveðinn og einbeittur í skoð-
unum og fastur fyrir, en jafn-
framt falslaus og sérstaklega ein-
lægur. Hann var stéttvís maður og
lét sig hagsmunamál stéttar sinn-
ar mikið varða. Hélt hann óhikað
fram skoðunum sínum, þótt þær
brytu í bága við skoðanir forystu-
mannanna, ef hann taldi það henta
hagsmunum sjómannastéttarinnar.
Jón Valgeir var að eðlisfari létt-
ur í lund og kunni vel að skemmta
sér.
Við, samstarfsmenn þínir,
hörmum fráfall þitt og geymum
minninguna um góðan og skemmti
legan drerig. Við vottum konu þinni
og bömum og ástvinum öllum
innilega samúð og hluttekningu.
Guð blessi þeim minningu þína.
J P.H.
Vann „Svigbikar
kvenna.“
Karólína Guðmundsdóttir
S.l sunnndag fór fram svig-
keppni um Svigbikar kvenna og
Grænagarðsbikarinn. Keppnin var
skemmtileg og hörð. Karólína
Guðmundsdóttir vann nú í þriðja
sinn í röð Svigbikar kvenna og þar
með til eignar. Bikar þessi var gef-
inn af Smjörlíkisgerð Isafjarðar.
Grænagarðsbikarinn vann Jóhann
R. Símonarson eftir harða keppni
við Einar Val Kristjánsson.
Úrslit í svigi kvenna: '
sek.
1. Karólína Guðmundsd. H. 68,8
2. Martha B. Guðmundsd. H. 69,1
3. Jakobína Jakobsdóttir H. 82,1
4. María Gunnarsdóttir H. 132,7
úrslit í svigi karla:
1. Jóhann R. Símonars. H. 120,7
2. Einar V. Kristjánsson H. 121,4
3. Guðm. Helgason S. 124,0
4. Ebenezer Þórarinsson Á 124,3
5. Oddur Pétursson Á. 129,3
6. Halldór Sveinbjarnars. S. 134,8
7. Guðm. Finnbogason Á_ 139,8
8. Margeir Ásgeirsson Þ. 140,3
9. Jón K. Sigurðsson H. 140,3
10. Hallgr. P. Njarðvík H. 141,1
-------O--------
Btv. lsborg landaði 30. apríl s.l.
280 tonnum af fiski. Um helming-
ur aflans var karfi, en hitt þorsk-
ur. Fór aflinn að mestu leyti í
salt og hraðfrystingu hér á ísa-
firði. Nokkuð af aflanum fór í
Hnífsdal og Súðavík. Hefur Isborg
landað nær 600 tonnum í s.l. mán-
uði hér á ísafirði, auk þess landaði
hún um 85 tonnum í Reykjavík.
Leiðrétting. — I síðasta tölublaði
Vesturlands misritaðist „Guðm. F.
Kristjánsson", en átti auðvitað að
vera Guðm. G. Kristjánsson.
Frú Ásthildur Magnúsdóttir,
Vinaminni, ísafirði, átti fimmtugs-
afmæli 2. maí s.l.
Jón Valgeir Magnússon
MINNINGARORÐ.