Vesturland - 24.07.1951, Side 1
XXVIII. árgangur jj
Isafjörður, 24. júlí 1951.
11. tölublað.
Kratarnir á
Rafmagnshækkunin er of mikil.
Svona eiga skrifstofumenn að vera.
í síðasta tölublaði Skutuls gefur
að líta mikla og þvælulega grein
um síðustu gjaldskrárbreytingu
rafveitunnar, skrifaða af hinum
„dugmikla“ skrifstofumanni henn-
ar, Guðmundi G. Kristjánssyni.
í þessari langloku sinni reynir
hann með vanmátta tilburð'um aö
ráðast á formann rafveitustjórnar,
Matthías Bjamason og sálufélaga
hans, eins og hann kallar það, en
þar mun hann eiga við kommún-
ista. Reyndar er nú G.G.Kr. sjálf-
ur í nánum og innilegum sálufé-
lagsskap við þessa sömu menn,
kommúnistana, núna og virðist
kunna allt annað en illa við sig
þar.
Það, sem G.G. Kr. ræðst á for-
mann rafveitustjórnar fyrir, er
það, að hann skuli ekki hafa hækk-
að rafmagnsverðið nóg.
Fyrir ári síðan lagði þáverandi
bæjarstjómarmeirihluti til, að
, gjaldskrá rafveitunnar yrði hækk-
uð nokkuð, en þá hafði hún ekki
verið hækkuð neitt í 5 ár, eða allt
frá því að kratarnir fói'u með
stjórn bæjarins.
Miklar umræður urðu um þessa
hækkun þá, og gerðu kratarnir
allt, sem þeir gátu til þess að ó-
frægja hana á allan hátt. Meira að
segja gekk þessi frómi skrifstofu-
maður G. G. Kr. manna mest fram
í því að gera hækkun þessa sem
allra tortryggilegasta í augum al-
mennings, og reyndi eftir því sem
hann gat að telja fólki trú um, að
hún væri alltof mikil. Það er und-
arlegt lánleysi og liggur við að segja
megi glópska, sem fylgir þessum
blessuðum manni, því að núna,
ekki nema ári seinna er hann að
burðast við að skamma formann
rafveitustjórnar fyrir að hafa
ekki hækkað rafmagnið nógu mik-
ið. 1 fyrra var rafmagnshækkun
formanns í'afveitustjórnar alltof
mikil', en núna er hún ekki nóg, á-
lítur þessi langlokuhöfundur. Hvað
á nú eiginlega svona hringavitleysa
að þýða, hjá manni, sem á að vera
nákunnugur öllu viðvíkjandi raf-
veitunni, sem alið hefir hann við
brjóst sér í 14 ár?
Reynslan frá gjaldskrárbreyt-
ingunni 1950 sýnir, að sú raf-
magnshækkun var ekki nóg, enda
taldi formaður rafveitustjómar þá
strax, að líklega myndi hún tæp-
lega nægja. En það var G.G.Kr.
sem taldi hana alltof háa og útbás-
unaði að hún væri svívirðileg árás
á bak alþýðu þessa bæjar.
Þá var öldin önnur.
Þessa skoðun skrifstofumanns
rafveitunnar jöpluðu svo kratamir
hver eftir öðrum í langan tíma, og
skrifuðu um hana grein í Skutul,
þar sem segir orðrétt:
„Það má með sanni segja að
þessum herrum (þ.e. þáverandi
bæ j arst j órnarmeirihluta) f lökrar
ekki við að velta síauknum út-
gjöldum svo hundruðum þúsunda
skiptir yfir á herðar almennings
þó kunnugt sé, að greiðslugeta
fólks hefur aldrei verið minni en
nú.
Eftir upplýsingum, sem formað-
ur rafveitustjórnar, Matthías
Bjarnason, gaf á bæjarstjórnar-
fundinum nemur þessi hækkun nú
á þessu ári milli 2—300 þús. kr.
og er það þungbær baggi ofan á
allt annað. Eins og áður segir er
ástæðan fyrir þessari miklu hækk-
un vægast sagt mjög hæpin og
tortryggileg“.
Þannig var hljóðið í krötunum
þá, en nú er annað hljóð komið í
strokkinn. G.G.Kr. og sálufélagar
hans töldu ástæðurnar fyrir raf-
magnshækkuninni í fyrra „vægast
sagt mjög hæpnar og tortryggi-
legar“ og talar um að þáverandi
bæjarstjórnarmeirihluta „flökri
ekki við að velta síauknum útgjöld-
um“ á almenning. En eftir ár
skammast þessir sömu menn með
G.G.Kr. í broddi fylkingar yfir því
að þessi „síauknu útgjöld“ hafi
ekki verið nógu há, og knýja nú
flótta.
fram stórfellda hækkun, sem meira
að segja er allmiklu hærri en
sjálfur rafveitustjórinn taldi nauð-
synlega. Það væri gaman að fá að
vita við hverju þessum mönnum
flökrar. Áreiðanlega flökrar þeim
ekki við að mergsjúga alla alþýðu
þessa bæjar, það er augljóst af
verkum þeirra.
Rafmagnshækkun krata og
kommúnista er furðuleg ósvífni.
Hinum fína skrifstofumanni raf-
veitunnar væri nær að verja tíma
sínum í þágu þess fyrirtækis, sem
hann lifir á, heldur en að eyða
honum í marklaus blaðaskrif og
gera sjálfan sig þannig beran að
öðrum eins endemis hringlanda-
hætti og kom fram í síðustu Skut-
ulsgrein hans. Hingað til hefir það
viljað brenna við, að ekki hefir
verið gengið frá reikningsuppgjöri
rafveitunnar fyrr en liðnir hafa
verið fimm eða sex mánuðir frá
áramótum, og reikningamir fyrir
árið 1949 vóru ekki lagðir fram
fyrr en í ágúst 1950. Má nærri geta
hver áhrif þetta hefir á allan
rekstur fyrirtækisins, þegar ekki
er hægt að gera sér neina grein
fyrir því, hvernig reksturinn geng-
ur, fyrr en seint og síðar meir.
Menn gætu líka freistast til að
halda, að G.G.Kr. hafi í raun og
veru ekkert vitað hvað hann var
að segja í fyrra, er hann réðzt með
skömmum á þáverandi bæjarstjórn
armeirihluta, lítur út fyrir að enn
vaði hann reyk í öllu skrafi
sínu og skrifum um þessi mál.
1 öllum hringlandahætti og vaðli
G.G.Kr. og hans nóta eru kommún-
istar trúir og dyggir fylgismenn.
Hingað til hafa þeir þó talið sig
vera fulltrúa hinna snauðustu. En
forsprakkar þeirra virðast alger-
lega hafa gleymt öllum boðorðum
lærifeðra sinna, og mega teljast
góðir ef þeir eru ekki nú þegar
búnir að fá ákúrur þaðan. Það er
aðeins eitt sem kommúnistar hér
virðast fylgja fastlega, en það er:
Verum krötunum trúir, enda hafa
þeir nú algerlega horfið frá já-
kvæðri stefnu í bæjarmálunum, og
fylgja nú dyggilega afturhaldi
kratanna, eins og tryggur hundur
eltir húsbónda sinn.
G.G.Kr. þvælir um það á einum
stað í „ritsmíð“ sinni að áfallnar
afborganir og vextir, sem hvíla á
rafveitunni séu hátt á 300. þúsund.
En sá góði maður verður einnig að
minnast þess að rafveitan á úti-
standandi næstum því þessa sömu
upphæð í ógreiddum rafmagns-
gjöldum, sem að miklu leyti eru
hjá bænum. Ef bærinn greiðir
þessar skuldir getur rafveitan vel
staðið við sínar skuldbindingar,
eins og líka vera ber.
Skutulsgrein G.G.Kr. afsannar á
engan hátt þau rök, sem færð voru
í síðasta tölublaði Vesturlands
fyrir því, að rafmagnshækkunin
er að minnsta kosti 100 þús. kr. of
mikil, og því stendur það óhaggað,
að núverandi meirihluti krata og
kommúnista er ber að því að ætla
að sjúga út úr rafmagnsnotendum
100 þús. kr. hærri upphæð en nauð
synlegt getur taiizt.
HVAÐ LlÐUR
UTSVÖRUNUM?
Niðurjöfnunarnefndin mun
liafa lokið niðurjöfnun útsvara
fyrir um það bil mánuði síðan,
en þau hafa ekki enn verið birt.
Ekkert hefir verið látið upp-
skátt um það, hvað valdið hefir
þessum drætti, en hins vegar
eru menn þess vel minnugir, að
kratamir héldu því mjög fram
í vetur, áður en þeir komust í
samfélag við kommúnista, að ó-
gerlegt væri að jafna niður
hærri upphæð á bæjarbúa en
einni og hálfri milljón króna.
Væntanlega er skoðun þeirra
á þessu óbreytt, en sjáum hvað
setur. Einhverntíman kemur
útsvarsskráin, varla er hætt við
öðru.
----------— ——»
Héraðsmót sjálfstæðis-
manna í Reykjanesi.
Félag ungra sjálfstæðismanna í
Norður-ísaf jarðarsýslu hefir á-
kveðið að halda héraðsmót sjálf-
stæðismanna í Reykjanesi þann 5.
ágúst n.k. Dagskrá mótsins hefir
enn ekki verið ákveðin, en mun
verða með svipuðu sniði og undan-
farin ár.