Vesturland - 15.11.1951, Qupperneq 4
Úr foæ og foyggð.
Treg aflabrögð.
Nokkrir trillubátar stunda nú
sjóróðra héðan. Afli hefir verið
mjög tregur að undanförnu. Er
þar orðið áhyggjuefni manna, sem
þessa atvinnu stunda, hversu afli
hefir brugðizt undanfarin ár. Þó
að aflahrotur komi einstaka sinn-
um, þá standa þær mjög stutt yfir.
Aflaleysiö vilja þeir kenna hinum
mikla togaraflota, sem er á veið-
um skammt undan og hirðir
hverja nýja fiskigöngu sem kem-
ur. Þó eru menn bjartsýnni en áð-
ur á, að úr muni rætast í þessum
efnum, aðallega fyrir það, að öll
dragnótaveiði hefir verið bönnuð
í Djúpinu. Ef um afla væri að ræða
hér inndjúps, væri það til mikilla
hagsbóta fyrir kaupstaðinn, því að
allmargir trillubátar eru til hér á
staðnum, sem mundu verða gerðir
út í góðu árferði. Gæti það kom-
ið sér vel fyrir atvinnulausa Is-
firðinga, sem því miður eru alltof
margir. — Aðeins einn bátur er
gerður út héðan á dragnótaveiðar,
en það er m.b. Ver. Afli hefur ver-
ið mjög tregur.
Knattspyrnufélagið Vestri 25 ára.
Þann 5. ágúst s.l. átti knatt-
spyrnufélagið Vest.ri 25 ára af-
mæli. S.l. laugardag efndi félagið
til glæsilegs fagnaðar í tilefni af
þessu afmæli. Við það tækifæri til-
kynnti bæjarstjóri, að bæjarstjóm
hefði ákveðið að færa félaginu 10
þús. kr. að gjöf í viðurkenningar-
Marshallfé til Vestfirðinga.
Framhald af 1. síðu.
iðnaður, ef ekki úr innlendum hrá-
efnum, þá úr aðfluttum. ísland
verður þar engin undantekning.
Fossaflið er varanlegast allra
orkulinda. Virkjun þess í ríkum
mæli er því bezta og varanlegasta
atvinnutryggingin, sem hægt er að
veita almenningi. Stórfelldar virkj-
anir fyrir suma hluta landsins, en
rafmagnsleysi í hinum er því sama
og eyðing byggða þeirra lands-
hluta, sem rafmagnslausír eru.
Þess vegna verður aldrei hægt að
verja það, ef ekki verður undinn
bráður bugur að heildarvirkjun
fyrir þá landshluta, sem enn mega
heita rafmagnslausir, og slíkar
virkjanir látnar ganga fyrir um
Marshallfé, ef framhald verður á
slíkum fjárveitingum.
Þingsályktunartillaga þessi mið-
ar að því að undirbúa slíka virkj-
un eða virkjanir fyrir þann hluta
landsins, sem hún fjallar um.
Það skal sérstaklega tekið fram,
að á s.l. sumri voru fyrir frum-
kvæði þm. Barðstrendinga athug-
uð virkjunarskilyrði í nokkrum
vatnsföllum í Barðastrandarsýslu.
Sýnir sú athugun, að þar er fyrir
hendi nægileg vatnsorka fyrir það
hérað.
XXVIII. árgangur. 15. nóvember 1951. 16. tölublað.
Staksteinar.
Það var uppi fótur og fit í her-
búðum kratanna á ísafirði. Þeim
hafði borizt í hendur skeyti frá
foringjanum, þar sem hann til-
kynnti komu sína þann sama dag.
Nú voru góð ráð dýr. Það var eng-
inn í vafa um hvert erindi foringj-
ans væri. Og það mátti svo sem
gera ráð fyrir, að svona færi. Kom-
ið fram í miðjan nóvember og öll
októberlaun hans ógreidd.
En eitthvað varð að gera
og það tafarlaust. Boðað var
skyni fyrir vel unnin störf í þágu
íþróttanna og skal fénu varið til
eflingar íþróttalífinu á ísafirði.
Einnig barzt félaginu fagur silfur-
bikar frá k.s.f. Herði og formaður
Skíðafélagsins tilkynnti að Vestra
yrði einnig færður bikar að gjöf.
Upphaflega var það aðeins knatt-
spyrna, sem félagið lagði stund á,
en á síðari árum hefir félagið
einnig haft aðrar íþróttir á stefnu-
skrá sinni. Fyrsti formaður félags-
ins var Kjartan Ólafsson, kaup-
maður hér í bæ. Núverandi for-
maður Vestra er Friðrik Bjarna-
son. — Vesturland óskar félaginu
gæfu og gengis í framtíðinni.
Frá Þingeyri.
Mikil atvinna hefir verið á Þing-
eyri í sumar. Hefir verið unnið
kappsamlega að undirbúningi í
sambandi við komu togarans, sem
hreppurinn hefir fest kaup á, og
væntanlegur er til kauptúnsins um
áramót. Hefir verið unnið að bygg-
ingu mjölskemmu og þróa, en
fiskimjölsverksmiðja er þar fyrir.
Ennfremur hefir lýsispressu verið
komið fyrir. Togarinn, sem Þing-
eyringar hafa fest kaup á, er
Júpíter, hinn aflasæli togari
Tryggva Ófeigssonar. Kaupverð
togarans er 1100 þús. kr. Togarinn
er nú í slipp, þar sem gagnger við-
'gerð fer fram á honum, m.a. verð-
ur sett í hann olíukynding. Þing-
eyringar binda miklar vonir við,
að togarinn muni verða lyftistöng
fyrir atvinnu- og efnahag þorps-
ins. Hafa þeir og sýnt, að þeir
gera sér vel Ijóst, að um verulega
atvinnubót af slíku atvinnutæki er
ekki að ræða, nema auðið sé að
vinna úr sem mest af aflanum í
landi. Hafa þeir sýnt góðan skiln-
ing á því, með því að reisa at-
vinnutæki með það fyrir augum
og gætu hvað það snertir orðið
öðrum til fyrirmyndar. — í sumar
hafa Þingeyringar ennfremur. ráð-
ist í lagningu vatnsveitu. Er það
mikið mannvirki. Er vatnið leitt
skyndi til leynilegs fundar á skrif-
stofu bæjarstjóra. Og nú stóðu sjö
hnípnir kratar yfir peningakass-
anum, og horfðu tómlátum augurn
á krónur 21,75 í .smáu, sem hann
hafði að geyma. Og þetta var svo
sem ekki skuldlaus eign, það var
öðru nær. Þessum fjármunum
hafði þegar verið ráðstafað. Með
þeim skyldi bæta úr brýnustu þörf-
um fimm fjölskyldna, sem bærinn
hefði á framfæri sínu. Einn fund-
armanna fór í örvæntingu sinni að
um fimm kílómetra leið til þorps-
ins. Standa vonir til, að þeim
framkvæmdum verði að mestu
lokið í haust.
Frá Leikfélagi fsafjarðar.
Gamanleikurinn „Stundum og
stundum ekki“, verður væntan-
lega sýndur á vegum félagsins í
byrjun desember. Hin nýkjörna
stjórn félagsins er: Samúel Jóns-
son, foiTnaður, óskar Aðalsteinn,
ritari, Páll Guðmundsson, gjald-
keri. Meðstjórnendur: Arngr. Fr.
Bjarnason og Jón Halldórsson.
Varaformaður: Haukur Ingason.
Hjúskapur.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Halldóra Sigurjóns-
dóttir frá Hafnarfirði og Óli J.
Sigmundsson, skipasmiður, Isaf.
S.l. laugardag voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Ólöf Ólafs-
dóttir, Kirkjubæ, og Guðmundur
Ólason, sjómaður, Isafirði.
Ennfremur voru gefin saman í
hjónaband ungfr. Ágústa Magnús-
dóttir og Ólafur Halldórsson, bif-
reiðarstjóri, Isafirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Kristín Jóns-
dóttir, Súðavík, og Oddur örnólfs-
son, Isafirði.
Togararnir.
ísborg kom frá Þýzkalandi 4. þ.
m. og fór á veiðar þriðjudagskvöld
ið þann 6. þ.m. Tafðist skipið hér
á annan sólarhring vegna bilunar
á katli. Hefir hún verið á veiðum á
Halanum fyrir Bretlandsmarkað,
en afli hefir verið fremur tregur.
Sólborg landaði saltfiski og
mjöli úr Grænlandsferðinni í Es-
bjerg í síðustu viku. Landaði hún
um 226 tonnum af saltfiski og 20
tonnum af fiskimjöli, en áður
hafði hún losað 19,5 tonn af lýsi
í Reykjavík. Er aflaverðmætið því
alls um 830 þús. kr. Sólborg kom
til Reykjavíkur á mánudagskvöld-
ið og fór í slipp þar. Er hún vænt-
anleg til Isafjarðar á morgun.
blaða í gömlum skýrslum frá dög-
um G. G. Hagalín. — Skósmiður-
inn þurrkaði móðuna af gleraug-
unum og sagði: „E-e-er e-ekkert
til, sem mætti se-e-e-selja?“
í svipinn glaðnaði yfir mönnum,
en svo syrti að aítur. Nei, það var
víst ekkert. Einn stakk þó upp á
að selja öskubílinn, sem eitt sinn
hafði verið rætt um að kaupa. Sú
tillaga var felld.
Flugvélagnýr heyrðist og ógur-
legu flemtri sló á fundarmenn. En
skyndilega þaut sá á fætur, sem í
skýrslunum blaðaði, og hrópaði:
„Við seljum nokkrar Dísir!“ og
allir urðu ofsakátir, nema skósmið-
urinn. Hann þagði, en auðséð var
á honum, að hann hefði eitthvað
viljað sagt hafa, ef honum hefði
verið liprara um tungutakið. Var
nú þegar farið að semja auglýs-
ingu, þar sem auglýstar voru til
sölu, þegar í stað, tíu Dísir. En
brátt dró ský fyrir sólu. Skósmið-
urinn, sem fylgist betur með hlut-
unum en flestir aðrir, sagði:
„Hva-hva-hvaða Dísir?“ „Nú,
tíu af þessum fjörutíu, sem hann
Hagalín ætlaði að kaupa fyrir and-
virði togarans Skutuls". „Æ-æ-ætl-
aði“, sagði skósmiðurinn. Þetta
orð kom sem þjófur úr heiðskíru
lofti, og eyðilagði allt. Við þau
könnuðust þeir allir svo vel.
Nú heyrðist hratt fótatak í
ganginum og allt í einu byrtist
foringinn í dyrunum, hnarrreistur
að vanda, eins og glerhani í búð-
arglugga. Hvessti hann augum á
viðstadda og síðan á opinn pen-
ingakassann á borðinu. Án þess að
mæla orð frá munni rétti hann
fram höndina. Hinn kjarkmesti af
fundarmönnum taldi skjálfandi
fram tuttugu krónur í reiðu fé,
sem hann lagði í lófa foringjans,
með þeim huggunar- og afsökun-
arorðum, að þetta dyggði a.m.k.
fyrir góðum hárskurði. Foringinn
snerist á hæli og yfirgaf fundar-
menn, sem eftir stóðu með kr. 1,75
í kassanum og með fimm fjöl-
skyldur á framfæri, fyrir utan sín-
ar eigin.
Hjónaef ni:
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Sigríður Halldórsdótt-
ir, verzlunarmær og Þorvarður
Guðjónsson, bifvélavirki, Rvik.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Hólmfríður Pálsdótt-
ir, Skála við Kaplaskjólsveg, Rvík
og Páll Sigurðsson, Nauteyri.
Höfnin.
Allvel miðar nú áfram hafnar-
gerðinni nýju. Fyrir nokkru var
lokið við að fylla upp ofan við
stálþilið, svo nú er hægt að ganga
frá akkerisstólpum og því sem
steypa þarf á kantinum. Undan-
farna daga hafa allmargir verka-
menn úr atvinnubótavinnu bæjar-
ins unnið við að grafa fyrir akk-
erisstólpum, en að staðaldri vinna
þar aðeins fimm menn. ’