Vesturland

Volume

Vesturland - 16.06.1961, Page 2

Vesturland - 16.06.1961, Page 2
2 VESTURLAND Eioar Ágúst Guðmundsson klæðskerameistari Minningarorð. Það voru mikil ótíðindi, sem mér bárust í önnur lönd, að Einar klæðskeri væri dáinn. Að vísu var mér fullkunnugt um að hiann hefði ekki gengið heill til skógar um árabil. Allt að einu kom andláts- fregn þessa ágæta manns mjög að óvörum. Svo hressilegur var hann í framgöngu og umsvifamikill við störf sín að trúlegra var að hon- um myndi endast líf og heilsa enn um hrið. Þó kann að vera að þessi háttvísi maður hafi dulið aðra veikindi sín, að hann hafi oft á tíð- um verið þjáðari en hann vildi vera láta. Enginn má sköpum renna og víst er um það ;að örlög- um sínum mætti Einar með höfð- íngsskap til orðs og æðis sem svo mjög einnkenndi hann aHa tíð. Einar Ágúst Guðmundsson var fæddur að Skáholti í Reykjavík 31. ágúst 1894 ,sonur Guðmundar Guð- mundssonar og konu hans Sigur- veigar Einarsdóttur. Ungur að ár- um flutti Einar til Isafjarðar þar sem hann hóf nám í klæðskeraiðn hjá Þorsteini Guðmundssyni, klæð- skerameistara. Að loknu námi þar sigldi Einar til Danmerkur til framhaldsriáms í iðn sinni og dvaldi ytra d fimm ár. Lauk hann þar meistaraprófi. Að lokinni Dan- merkurdvöl lá leið hans enn á ný til Isafjarðar, þar sem hann skömmu síðar stofnsetti klæð- skerafyrirtæki og karlmannafata- verzlun ásamt Kristjáni Tryggva- syni, klæðskerameistara. Að því vann hann alla tíð síðan til dán- ardægurs. Þann 30. apríl 1929 kvæntist Einar Þuríði Vigfúsdóttur, Gests- sonar járnsmiðs í Hafnarfirði og konu hans Steinunnar Jónsdóttur. Lifir hún mann sinn ásamt tveim uppeldisdætrum þeirra hjóna, Sig- rúnu, sem gift er Yngva Guð- mundssyni rafmagnseftirlitsmanni og Sigríði gift Jónasi Helgasyni, vélstjóra. Einar Guðmundsson var fríður maður sýnum og föngulegur. Hann var höfðinglegur í aUri framgöngu svo af bar, prúður og festulegur. Viðmótsþýður og elskulegur en fastur fyrir og aHharður í hom að taka ef honum var í einhverju mis- boðið. Á sínum yngri árum tók Einar allmikinn þátt í félagsstarf- semi á ísafirði, svo sem í leikstarf- semi og sönglífi staðarins og var í hvorutveggja mjög hlutgengur. Einar fylgdi Sjálfstæðisflokknum iað málum og varð þar engu um þokað. Þótti hann hinn bezti liðs- maður þar í sveit. Einar var mikill gæfumaður. Hann eignaðist hina ágætustu konu sem var honum samhent og einhuga í öUu ævistarfi. Heimili þeirra var eitt það myndarlegasta, sem ég hefi gist ,og ég fullyrði að allir þeir, sem því kyimtust, munu ljúka upp einum munni um að þeir hafi ekki á öðrum stöðum átt betra og elskulegra atlæti. HeimHið, börnin og síðar barna- bömin voru honum aUt í öllu. Þeim helgaði hann starf sitt og um- hyggju með þeim hætti, að hvergi veröur fundin á hin minnsta mis- smíð. Einar var mikijl eljumaður og stundaði ÖH störf sín af kostgæfni og heiðarleik. Það má hverjum manni augljóst vera að jafn náin samvinna um áratuga skeið sem var með þeim Einari og Kristjáni Tryggvasyni hefði ekki getað blessast nema fyrir það að þar áttu hlut að máli góðir menn og gegnir, heiðarlegir og tillitssamir. Ég hygg að vandfundin sé svo löng samvinna sem jafn ágæt hefur verið. Oflof er háð, en það munu eng- ir menn mæla, sem þekktu Einar klæðskera, að honum hafi verið lagt hér til né annarsstaðar, meira lof né fegurri vitnisburður en hann átti skilið. Ég þakka honum fyrir mig og mína, sérstaklega fyrir konuna mína, sem hann alla tíð var sem hinn elskulegasti faðir. Isafjörður hefir misst einn af sínum svipmestu og beztu borgur- um nú þegar Einar Guðmundsson er allur. Það er góð ósk til handa Isafirði að hann eignist marga slíka heiðursmenn til starfs á staðnum. Isfirðingar munu minn- ast Einars klæðskera með þökk og virðingu og svo mun um alla aðra sem eitthvað til þessa ágæta manns þekktu. Sverrir Hermannsson. Er við Isfirðingar, kveðjum nú einn okkar ágætasta samborgara, Einar Ágúst Guðmundsson, klæð- skerameistara, langar mig að senda honum örfá kveðjuorð, og þakka alla hans vinsemd og tryggð við mína f jölskyldu í þrjá tugi ára. Ég hafði oft heyrt Einars getið áður en ég flutti hingað og alltaf að góðu einu, og varð, sannarlega ekki fyrir vonbrigðum er ég kynnt- ist honum og hans góðu konu, Þuríði Vigfúsdóttur. Heimili þeirra hjóna var eitt hið gíæsilegasta hér í bæ, og gest- risni með afbrigðum — hvort held- ur að komið var til þeirna hér í bænum, eða í hinn fallega sumar- bústað þeirra í Tunguskógi. Og Kristmann 6. Jónsson tiskkaupmaöur Minningarorð Kristmann G. Jónsson andaðist í Landsspítalanum í Reykjavík 28. apríl s.l. og fór jarðarför hans fram frá ísafjarðarkirkju 9. maí. Kristmann veiktist í október s.l., en var alveg rúmliggjandi á heim- ili sínu frá fyrri hluta janúarmán- aðar og þangað til að hann var fluttur suður á Landsspítala síðari hluta marzmánaðar. Hann var fæddur 1. janúar 1906 í Kálfavík í ögurhreppi og voru foreldrar hans Guðbjörg Krist- mannsdóttir og Jón Björnsson. Að- það veit ég, að hans verður sárt saknað af öllum Skógarbúum. Þar er nú höggvið stórt skarð, sem ekki verður auðvelt ;að uppfylla. Skyldi ekki fleirum en mér þykja dapurlegra að ganga fram hjá Hafnarstræti 6 og fá ekki að sjá Einar oftar í búðinni sinni, kinkandi kolli með bros á vör. Ég var orðin því svo vön ,að líta inn um gluggann á leið minni fnamhjá, það var eins og það legði birtu og yl á móti manni er Einar leit út. Og ekki ósjaldan, kom hann út á tröppuna eða að vegfarandinn fór inn og spjallað var um daginn og veginn. Já, það er svo margs að minnast og allar eru minningarnar á einn veg, bjartar og hugljúfar, eins og maðurinn sjálfur. Enda hafði Ein- ar óvenju fagra og fágaða fram- komu. Hann var í senn virðulegur, en þó svo hlýlegur í viðmóti, að af bar. Það sannast hér eins og svo oft áður, að það er skammt á milli gleði og sorgar, milli lífs og dauða. Er við vinir þeirra hjóna sátum hið stórrausnarlega hóf, sem haldið var í tilefni sextíu ára afmæli frú- Framhald á 5. síðu. eins níu ára að aldri fór hann frá foreldrum sínum til Björns Guð- mundssonar, kaupmanns hér í bæ og þar ólst hann upp. Ungur gerð- ist hann verzlunarmaður í verzlun Björns Guðmundssonar og þar starfaði hann í mörg ár. Síðar eignaðist hann bát og rak smá- bátaútgerð í nokkur ár, en í all- mörg ár hefur hann haft með höndum fiskkaup og harðfiskverk- un. Kristmann Jónsson var heim- ilisvinur á heimili foreldra minna frá barnsaldri og náinn vinur Charlesar bróður míns öll þeirra uppvaxtarár og var hann talinn af öllum einn tryggasti og bezti vin- ur okkar sem okkur þótti innilega vænt um, eins og um góðan bróð- ir væri að ræða, enda sýndi hann okkur alltaf einstaka tryggð og vináttu til hinztu stundar. Kristmann Jónsson var myndar- legur maður, skyldurækinn í störf- um sinum og vildi og stóð eigin fótum og hvergi kunni hann betur við sig en við sinn eigin atvinnu- rekstur. Hann var hjálpsamur við aðra og vildi þeim vel sem minnst máttu sín. Fastur var hann fyrir í skoðunum og lét ekki hlut sinn þegar á hann var leitað. En innst inni bjó viðkvæmur og hjartahlýr maður sem naut vinsælda hjá þeim er honum kynntust en mest þeirra er bezt þekktu hann. Kona Kristmanns er Björg Jóns- bertsdóttur, Kristmann og Jens, sitt 1932 og hafa búið hér alla sína búskapartíð. Þau eiga fjóra syni uppkomna: Jón, verkstjóra hér í bæ, kvæntur Huldu Jónsdóttur, Guðbjörn, skipstjóra í Súganda- firði, kvæntur Ingibjörgu Frið- bertsdóttur, Kristmann og Jens, verzlunarmaður báðir í foreldra- húsum. Björg var manni sínum samhent og i'eyndist honum eins og bezt verður á kosið og stund- aði hann með sérstakri umhyggju í veikindum hans allt þar til að yf- ir lauk. Synir þeirra eru mynd- ar- og mannkostamenn og verður því eigi annað sagt, en að þau hjón hafi verið hamingjusöm í líf- inu. Með fráfalli Kristmanns er genginn góður borgari sem mjög er saknað af konu, sonum, öðru skylduliði og vinum, en eftir lifir minningin um góðan dreng og tryggan vin. Ég flyt Björgu, son- um hennar og öllu skyldfólki inni- legustu samúðarkveðjur mínar og minna. Vertu sæll Kristmann minn og Guð blessi þig í þínum nýju heim- kynnum. M. Bj.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.