Vesturland - 16.06.1961, Page 6
6
VESTURLAND
ísafjörður 16. júni 1961.
Leiksýningar
hlnwmcja'ihátíb a& /ZaJjHseijli
/7. fúm' /96/
Jón Sijjurðsson 17. júní 1811 -17. júní 19!il
DAGSKRA:
Kl. 14,00 Hábíðin sett. Sturla Jónsson, hreppstjóri.
Ó, gnð vors lands, ó, lands vors guð.
Matthías Jochumsson skáld. Lag: Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
Minni Jóns Sigurðssonar. Ásgeir Ásgeirsson, fórseti.
Söngur.
Jón Sigurðsson í Ijóðum hirðskálda sinna.
Flytjandi: Halldór Kristj ánsson, bóndi.
Minni Jóns Sigurðssonar. Guðm. Ingi Kristjánsson, skáld.
Söngur.
Minni Islands. Jón Ölafsson, prófastur.
Söngur.
HLÉ.
Kl. 17,00 Iþróttasýning. Stjórnandi Sigurður Guðmundss.
Skemmtiþáttur. Ásmundur Guðmundsson.
Þjóðdansar.
Dans. Hljómsveit Baldurs Geirmundssonar.
Hátíðinni stitið.
Söng annast Kirkjukór Þingeyrar. Stjórnandi: Baldur
Sigurjónsson.
Framkvæmdastjóri hátíðarnefndar er Sturla Jónsson.
Finnbjorn Hermannsson
M i n n i n g .
Gullna hliðið.
Ungmannafélag Bolungarvíkur
og Kvenfélagið Brautin settu á
svið Gullna hliðið eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi.
Leikritið sýndu þeir nokkrum
sinnum í Félagsheimilinu í Bolung-
arvík, á ísafirði og víðar um Vest-
firði.
Þótti Bolvíkingum takast mjög
vel með leikinn. Leikinn setti á
svið Gunnar Bóbertsson Hansen.
Aðalpersónur í leiknum eru Jón
kotbóndi, sem leikinn var af Sig-
urði E. Friðrikssyni, Kerling Jóns,
sem leikin var af Ósk Guðmunds-
dóttur og Óvinurinn, sem leikinn
var af Benedikt Þ. Benediktssyni.
Aðrir leikendur, sem fóru með
smærri hlutverk voru: Björn Jó-
hannesson, Hildur Einarsdóttir,
Halldór Halldórsson, Karvel
Pálmason og Gunnfríður Rögn-
valdsdóttir.
Gjöf in:
Leikfélag ísafjarðar lék leikrit-
ið Gjöfina eftir Mary Lumsden.
Leikstjóri var Eyvindur Erlends-
son.
Persónur og leikendur voru:
Sir David Crossley, augnlæknir:
Haukur Ingason. Lafði Elísabet
Læknaskortur . . .
Framhald af 8. síðu.
þessarar tillögu telja því, að
einskis megi láta ófreistað til þess
að ráða fram úr þessu vandamáli.
Hugsanleg úrræði.
Meðal þeirra úrræða, sem þeir
telja að til greina geti komið í
þeim efnum, eru hagstæðari kjör
lækna í hinum afskekktustu og fá-
mennustu læknishéruðum, full-
komnari og betri læknisbústaðir í
þessum héruðum, betri samgöngu-
tæki til þess að ferðast um hin
strjálbýlu héruð og ráðning lækna-
stúdenta í ríkara mæli en áður hef-
ur tíðkazt til þess að gegna til
bráðabirgða störfum í þessum lítt
eftirsóknarverðu læknishéruðum.
Ennfremur telja flm., að til greina
geti komið ráðning erlendra lækna
eða hjúkrunarmanna til þess að
annast læknisþjónustu eða hjúkr-
unarstörf til bráðabirgða í þessum
héruðum. Sú leið mun að vísu með
öllu ókönnuð, en ekki virðist þó úr
vegi að rannsaka hana áður en til
fullkominnar uppgjafar kemur
gagnvart þeim vanda, sem hér er
við að etja.
Ellihcimili í strjálbýlinu.
Þá hefur sú hugmynd einnig
Crossley: Laufey Maríasdóttir.
Júlía: Ebba Dahlmann. Justin
Allister: Kristjana Jónsdóttir. Frú
Saunders, ráðskona Crossleyhjón-
anna: Hulda Gígja.
Leikritið er gott og hefur leik-
stjóra tekizt vel við sviðsetningu
þess, og fóru leikendur vel með
hlutverk sín. Leikurinn var sýnd-
ur hér á ísafirði og í mörgum
þorpanna á Vestfjörðum.
Orustan á Hálogalandi:
Leikflokkur frá íþróttafélaginu
Stefni og Kvenfélaginu Ársól í
Súgandafirði sýndi leikritið Orust-
an á Hálogalandi. Leikur þessi er
mörgum kunnur og er hvívetna vel
tekið.
Leikstjóranum Erling E. Hall-
dórssyni þótti takast vel leikstjórn.
Persónur og leikendur voru:
Hermann Hermannz: Hermann
Guðmundsson, Vilmundur Sveins-
son: Guðmundur A. Elíasson,
Zakaríus Torfason: Jón Kristjáns-
son, Anne Lísa Hansen: Kristín
Friðbertsdóttir, Hekla: Sigrún
Sturludóttir, Angela : Lovísa Ibsen,
Haukur Friðbertsson og Elín Giss-
urardóttir léku börn Hermannz-
hjónanna og Sollu lék Maríanna
Hallgr í msdótti r.
verið sett fram, að stofnun elli- og
örorkuheimila á hentugum stöðum
í strjálbýlinu með fastráðnum
læknum gæti einnig orðið til þess
að auka möguleikana á útvegun
lækna í hin læknislausu héruð.
Virðist eðlilegt og sjálfsagt að at-
huga, hvort sú hugmynd sé fram-
kvæmanleg.
Það er skoðun flm., að hér sé
um mikilvægt heilbrigðis- og
mannúðarmál að ræða. Fólkið í
hinum st.rjálbýlustu héruðum á
ekki síður rétt á því en annað fólk
í landinu að njóta læknishjálpar,
þegar slys eða veikindi ber að
höndum. Þess vegna ber samfélag-
inu að horfast í augu við þá stað-
reynd, að hér er sérstakra og rót-
tækra ráðstafana þörf.
U o o
Staksteinar
Framhald af 8. síðu.
framsóknarmenn hafa hingað til
villt á sér heimildir. Þeir þykjast
ýmist vera bændaflokkur, mið-
flokkur eða vinstri flokkur eftir
því, sem bezt hentar hverju sinni.
Þeir eru úlfurinn í sauðargærunni.
Finnbjörn Hermannsson, verzl-
unarmaður á ísafirði andaðist í
Fjórðungssjúkrahúsinu hinn 7.
apríl s.l. Hann var fæddur að Læk
í Aðalvík 20. júní árið 1878 og
var hann því tæplega 83 ára þeg-
ar hann lézt. Foreldrar Finnbjörns
heitins voru Hermann Sigurðsson,
bóndi, og Guðrún Finnbjarnardótt-
ir, kona hans. Hann fluttist til
Hesteyrar árið 1896 og starfaði
þar hjá útibúi Ásgeirsverzlunar til
árisins 1902 er hann flutti til ísa-
fjarðar. Þar starfaði hann hjá
sömu verzlun allt þar til hún var
seld árið 1918. Þá fluttist hann
aftur til Hesteyrar og gerðist
verzlunarstjóri hjá Hinum samein-
uðu íslenzku verzlunum.
Til ísafjaröar fluttist hann aft-
ur árið 1922 og átti þar heima allt
til dauðadags.
Eftirlifandi kona Finnbjörns er
Elísabet Jóelsdóttir frá Valshamri
á Mýrum. Eignuðust þau hjónin
fimm börn og eru fjögur þeirra á
lífi, Margrét, gift Kristjáni
Tryggvasyni, klæðskerameistara á
ísafirði, Sigurður, múrarameistari
í Reykjavík, kvæntur Vilhelmínu
Vilhjálmsdóttur, Jón Hjörtur,
prentari í Reykjavík, kvæntur
Jensínu Sveinsdóttur og Ámi, við-
skiptafræðingur í Reykjavík,
kvæntur Guðrúnu Gestsdóttur.
Finnbjörn heitinn stundaði
verzlunar og skrifstofustörf þau
ár, sem hann var búsettur hér á