Vesturland - 03.07.1965, Side 6
6
a/ksvmtZJiXH SaHGFSXÆtDSMXXfl
Blihfaxi rcyniM vel
Sundmeistaramót Islands
Hin nýja flugvél Flugfélags
íslands, Blikfaxi, hefur reynzt
mjög vel í innanlandsfluginu.
1 „Faxafréttum“, blaði fyrir
starfsfólk FI, segir svo:
„Blikfaxi reyndist hinn bezti
gæðingur, kvillalaus og flug-
viss, vakur og fjörmikill. Frá
því að hann hóf áætlunarflug
16. maí s.l. og fram til mán-
aðamótanna flutti hann 1604
farþega, sem er 21% af heild-
arflutningi innanlands í maí-
mánuði.
„Við skulum þvi ætla að
okkur sé óhætt að brosa að
I dag fer fram á íþrótta-
vellinum á ísafirði knatt-
spyrnuleikur í 2. deild Islands-
mótsins milli íþróttabandalags
Vestmannaeyja og Iþrótta-
bandalags Isafjarðar. Leikur-
inn hefst kl. 4 e.h.
Staðan í B-riðli 2. deildar
Islandsmótsins er nú þannig,
að Vestmannaeyingar eru
efstir með 8 stig og eiga eftir
að leika þrjá leiki. Isfirðingar
eru næstir í riðlinum og eiga
líka eftir þrjá leiki. Auk leiks-
ins við Vestmannaeyinga í dag
Framhald af 5. síðu.
starfað í rúm tvö ár, og gekk
reksturinn vel á s.l. ári. Fram-
kvæmdastjóri er Valgerður
Guðjónsdóttir.
Þann 27. marz s.l. efndi fé-
lagið til hátíðahalds í Góð-
templarahúsinu, í tilefni aí
því, að Alþjóðadagur fatlaðra
var í fyrsta skipti haldinn há-
tíðlegur hér á landi.
Hátíðahöldin voru mjög
fjölsótt hér á Isafirði. For-
maður félagsins, Ingibjörg
Magnúsdóttir, flutti ávarp og
kynnti starf FIMITIC. Högni
Þórðarson bæjarfulltrúi hélt
ræðu um öryrkjamál og sókn-
arpresturinn í Bolungarvík, sr.
Þorbergur Kristjánsson, flutti
erindi. Auk þess voru ýmiss
skemmtiatriði.
VII. þing Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra var
haldið á Sauðárkróki um
hvítasunnuna og sóttu það
fjórir fulltrúar frá ísafirði.
Núverandi stjórn Sjálfs-
bjargar á Isafirði skipa:
Ingibjörg Magnúsdóttir, form.
Helga Marsellíusd., varaform.
framhaldssögunni, sem hefst
í þessu blaði, þótt hún sé í
rauninni ósköp dapurleg og
vona að hún tilheyri liðinni
tíð. Hún er eftir hinn ágæta
teiknara Sigmund. Sagan um
hann Jón: I. þáttur . . .“
Fylgir síðan teikning af
manni að tala í síma og stend-
ur þar undir: „Því miður ó-
fært.“
Jón þessi er ekki nánar
nafngreindur, ,en ísfirðingum
finnst að þeir kannist eitthvað
við manninn.
eiga Isfirðingar eftir að keppa
við Breiðablik í Kópavogi og
Víking í Reykjavík. Leikurinn
við Breiðablik fer fram á Isa-
firði, en leikurinn við Víking
fer fram í Reykjavík.
Takist Isfirðingum að sigra
í þessum leik, eru miklar líkur
á því að þeir komist í úrslit
í deildinni. Þess má geta að
í fyrri leiknum sigruðu Vest-
mannaeyingar með 6 mörkum
gegn 4
S.
Drenyjalúðrasveil
úr Keílavík
lék á Isafirði
Með strandferðaskipinu Esju
er nú í hringferð um landið
lúðrasveit drengja frá bama-
skólanum í Keflavík. Lúðra-
sveitin skemmti Isfirðingum
með leik sínum á Silfurtorgi
og var þar margt manna
þrátt fyrir óhagstætt veður.
Var gerður mjög góður róm-
ur að leik sveitarinnar.
Lúðrasveit þessi var stofn-
uð 1961 og hefur Hermann
Eiríksson skólastjóri verið
eins konar framkvæmdastjóri
sveitarinnar, en stjómandi frá
upphafi hefur verið Herbert
Hriberschek Ágústsson. Stofn-
endur sveitarinnar voru 20
drengir og hafa haldið hópinn
síðan, en einn komst þó ekki
með í þessa ferð.
Pálína Snorradóttir, ritari.
Guðm. Guðmundss., gjaldkeri.
Sig. Th. Ingvarss., vararitari.
Sundmeistaramót Islands
fór fram í Reykjavík dagana
10., 12. og 13. júní s.l.
Knattspyrnufélagið Vestri
sendi 7 keppendur á mótið,
Einar Einarsson, Björn Birgis-
son, Tryggva Tryggvason,
Kolbrúnu Leifsdóttur, Jónu
Magnúsdóttur, Guðmundu
Jónasdóttur og Fylki Ágústs-
son, sem jafnframt var farar-
stjóri.
Fyrsta dag mótsins var
keppt í 1500 m. skriðsundi
(meistaramótsgrein) og vom
keppendur aðeins 4. Þar
keppti Einar Einarsson og
stóð hann sig með prýði; setti
hann fjögur ný sveinamet,
bætti þrjú met Tryggva
Tryggvasonar frá í fyrra og
auk þess eitt 10 ára met.
Annan dag mótsins var
keppt í Sundlaug Vesturbæjar,
sem er útilaug. Veður var
mjög fagurt, sólskin og logn.
Fyrst var 100 m. skriðsund
karla, þar vom þrír keppendur
frá Vestra. Tryggvi Tryggva-
son náði beztum tíma Vestra-
manna, 1.08.1, Einar Einars-
son 1.09.2, sem er hans bezti
tími og Bjöm Birgisson 1.10.4
sem er hans bezti tími í 25 m.
laug.
1 100 m. bringusundi synti
Fylkir Ágústsson, Islands-
meistarinn frá í fyrra. Sigraði
hann einnig nú á 1.13.8, sem
er annar bezti tími, sem Is-
lendingur hefur náð í grein-
inni. Annar í sundinu var Is-
lands- og Norðurlandamethaf-
inn Hörður B. Finnsson á
1.14.9.
1 100 m. baksundi synti
Guðmunda Jónasdóttir á
1.27.7, sem er hennar lang-
bezta í 25 m. laug.
I 200 m. bringusundi kvenna
synti Kolbrún á 3.17.0 og varð
4. í sundinu.
I 3 X 50 m. þrísundi kvenna
varð Vestrasveitin 2. á 1.56.0.
I 4 x 100 m. fjórsundi karla
synti sveit Vestra á 5.20.8 og
var 3.
Síðasta dag mótsins var
keppt í 8 greinum. Fyrsta
greinin var 100 m. flugsund
karla. Þar sigraði Davíð Val-
garðsson ÍBK á 1.02.7, sem er
bezta afrek Islendings skv.
stigatöflu.
1 100 m. bringusundi kvenna
varð Kolbrún Leifsdóttir 3. á
sínum bezta tíma 1.29.2.
I 400 m. skriðsundi karla
keppti Einar Einarsson og
bætti hann í því sundi þremur
nýjum metum við „metasafn"
sitt, setti hann met í 200 m.
2.36.7, 300 m. 4.00.4 og 400 m.
5.26.3.
I 200 m. bringusundi karla
háðu Fylkir Ágústsson og
Árni Þ. Kristjánsson SH harða
keppni og sigraði Ámi á 2.42.6
en Fylkir synti á 2.44.6.
I síðustu grein mótsins 4x
200 m. skriðsundi karla, sendi
Vestri sveit. Fyrsta sprett
synti Einar Einarsson á 2.35.2
nýju sveinameti. Gamla metið
átti hann sjálfur, sett fyrr um
daginn. Var Einar því búinn
að setja 8 ný met á tveimur
keppnisdögum og má það telj-
ast mjög gott. Sveitin synti á
10.39.8 og var 3.
Eftir mótið bauð Sundsam-
bandið til kaffidrykkju, og við
það tækifæri þakkaði hinn ný-
kjörni formaður S.S.Í. Isfirð-
ingunum fyrir komuna og
óskaði þeim til hamingju með
frammistöðuna.
Eftir fyrri dag meistara-
mótsins var haldið þing S.S.Í.
og var þar m.a. tekið fyrir
bréf frá Í.B.Í. um að fá að
halda unglingameistaramót í
sundi hér á Isafirði í haust og
var það samþykkt einróma.
Verður því unglingameistara-
mót í sundi haldið hér um
miðjan september n.k.
Þriðjudaginn 15. júní var
haldið innanfélagsmót í sundi
í Sundhöll Hafnarfjarðar. —
Einar Einarsson setti þar tvö
ný sveinamet. Kolbrún Leifs-
dóttir setti nýtt telpna- og
stúlknamet í 100 m. flugsundi
á 1.26.4.
Guðmunda Jónasdóttir keppti
í 400 m. baksundi og setti tvö
ný Vestfjarðamet.
Fylkir og Hörður B. Finns-
son skildu hnífjafnir í 50 m.
bringusundi, syntu á 34.3.
Fylkir varð 2. í 100 m.
fjórsundi á 1.13.8 og Einar
varð 4. á 1.21.0.
Dörf á urari
póslferðum
Vesturland hefur verið beð-
ið að vekja athygli á því, hve
póstsamgöngur milli Isafjarð-
ar og Patreksf jarðar eru léleg-
ar. Þeim er nú þannig háttað,
að allur póstur til Patreks-
fjarðar er sendur til Reykja-
víkur, þar sem nær engar
póstferðir eru milli ísafjarðar
og Patreksfjarðar. Kann að
vera að þessi aðferð komi að
gagni að því er varðar bréfa-
póst, en kvartað er undan því,
að bögglapóstur, blöð o.fl. sé
oft mjög lengi á leiðinni.
Enda þótt engar áætlunar-
ferðir séu milli ísafjarðar og
Patreksfjarðar á landi eða í
lofti, virðist sem auðvelt ætti
að vera að haga þessum póst-
flutningum á annan veg yfir
sumarið. I hverri viku eru
áætlunarferðir frá Reykjavík
til ísafjarðar og jafnframt til
Patreksfjarðar. Auk þess fara
flutningabílar oft í viku milli
Isafjarðar og Reykjavíkur
og milli Patreksfjarðar og
Reykjavkur.
Allir fara þessir bílar um
Vatnsfjörð og hafa viðkomu
þar. Virðist það æskileg lausn
á þessu vandamáli, að yfir
sumarmánuðina yrði höfð
bréfhirðing í Vatnsfirði, sem
yrði þá tengiliðurinn milli Isa-
fjarðar og Patreksfjarðar og
reyndar á þetta einnig við um
Bíldudal og Tálknafjörð.
Með þessu móti myndi póst-
þjónustan vafalaust batna til
stórra muna á milli þessara
staða. Þessari hugmynd er hér
með skotið til ráðamanna
póstsins til velviljaðrar athug-
unar.
Nýlega var sagt hér í blaðinu frá starfsemi Eyraspari-
sjóðs á Patreksfirði. Þessi mynd af húsakynnum spari-
sjóðsins átti að fylgja greininni, en varð útundan vegna
rúmleysis og birtist nú hér, Jiótt seint sé.
□ -
ísfirðingar og Vestmanna-
eyingar keppa í II. deiid I dag