Vesturland - 03.07.1965, Side 7
7
l'ríllir nr Rtykliólasviit
Nýlega ræddi Vesturland
við Jóhann Jónsson oddvita í
Mýrartungu og spurði hann
tíðinda úr Reykhólasveit. Jó-
hann sagði að sauðburður
hefði gengið vel, en kalt hefur
verið í veðri og þurfti lengi að
gefa fé inni. Kuldar hafa verið
og þurrkar miklir mestallan
júní og yfirleitt er spretta lé-
leg nema á stöku stað, þar sem
blettir voru friðaðir og
snemma borið á.
Selveiði hefur gengið rétt
sæmilega og æðarvarp mun
hafa verið svipað og undan-
farin ár. Eins og undanfarin
ár hefur Lúðvík Magnússon
frá Bæ leitað eftir mink og
tófu. Hefur aðeins eitt tófu-
greni unnizt og minnkur virð-
ist með minna móti.
Kúastofninn í Reykhóla-
sveit er heldur að aukast og
mjólkursala, en öll mjólkin er
seld í Búðardal. Að vísu lögð-
ust mjólkurflutningar niður
frá því snemma í desember og
til janúarloka og stundum
eftir það þurfti að ryðja veg-
inn í Gilsfirði. Þar eru vegar-
kaflar, sem ólokið er og eru
oft torfærir að vetrinum. Kafl-
anum frá mæðiveikihliðinu í
sunnanverðum firðinum er ó-
lokið og verður þar strax erfið
færð í fyrstu snjóum. Að
norðanverðu eru langir kafl-
ar, sem eru illa færir, þó mikið
hafi verið unnið að endurbót-
um á veginum í fyrra hjá
Slitrum, við Garpsdal og Gróu-
staði.
Til þess að tryggja örugga
mjólkurflutninga þarf að laga
veginn að sunnanverðu og frá
Slitrum og út fyrir Gilsfjarð-
armúla og reyndar fleiri kafla.
Iiefur vegavinnuflokkur að
undanförnu verið að vinna að
þessu.
Jarðrækt byrjaði með seinna
móti í Reykhólasveit í vor
vegna klaka í jörðu, en nú
eru þrjár ýtur og hjóladrátt-
arvél með tætara að starfi hjá
jarðræktarsambandinu og er
ræktun talsvert mikil.
Heimsókn Dýrfirðinsafélagsins
Þingeyri, 2. júlí.
Um síðustu helgi efndi Dýr-
firðingafélagið í Reykjavík til
hópferðar til Þingeyrar og
voru um 110 manns í förinni.
Kom hópurinn hingað á föstu-
dagskvöld og fór að morgni
mánudags. Gestirnir fóru víða
um byggðina, enda var veður
mjög gott og vel til ferðalaga
fallið. Meðal annars var farið
að Núpi og á Ingjaldssand og
víðar.
Hreppsnefnd Þingeyrar-
hrepps bauð gestunum öllum
til borðhalds í samkomuhúsinu
á laugardagskvöldið og bauð
Árni Stefánsson oddviti gest-
ina velkomna og stýrði hófinu.
Þar talaði einnig formaður
Dýrfirðingafélagsins í Reykja-
vík, Svavar Helgason, sem
þakkaði móttökur. Að borð-
haldi loknu var stiginn dans
fram eftir nóttu.
JÓ
laiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiu
T I L B O Ð
óskast í húseignina Stekkj-
argötu 33 í Hnífsdal. Allar
nánari upplýsingar veittar í
síma 598. Tilboð óskast send
fyrir 15. júlí til
GUÐNA ÁSMUNDSSONAR
Hníl'sdal.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini
Stofnað
verkstjórafélag
Þann 14. júní s.l. var hald-
inn á ísafirði stofnfundur
Verkstjórafélags ísafjarðar
og nágrennis. Voru stofnendur
þess 23 að tölu og nær félags-
svæðið yfir norðanverða Vest-
firði frá Dýrafirði. Tilgangur
félagsins er að vinna að hags-
munamálum félagsmanna og
hefur félagið gerzt aðili að
Verkstjórasambandi íslands
og lífeyrissjóði þess.
Stjórn félagsins skipa þessir
menn: Páll Janus Þórðarson,
Suðureyri, formaður, Viggó
Norðquist, ísafirði, ritari, Jón
Kristmannsson, Isafirði, gjald-
keri. í varastjórn eiga sæti
Guðmundur M. Jónsson, Isa-
firði, Guðmundur Páll Einars-
son, Bolungarvík og Halldór
Pálsson, Hnífsdal.
ísfirðingar
sigra i skák
Sl. laugardag fór fram bæja-
keppni í skák á ísafirði og
leiddu þar saman hesta sína
Isfirðingar og Akumesingar.
Var teflt á 14 borðum og fóru
leikar þannig, að Isfirðingar
sigruðu, hlutu 8 vinninga, en
Akurnesingar fengu 6.
Um kvöldið var svo hrað-
skákkeppni milli bæjanna og
var teflt á 13 borðum. Þar
urðu úrslit þau, að Akumes-
ingar unnu, fengu 88V2 vinn-
ing, en Isfirðingar 80 V2 vinn-
ing. Hæstur einstaklinga í
hraðskákkeppninni var Matt-
hías Kristinsson frá ísafirði
með 12 vinninga.
Gáfu kross á
Mýrarkirkju
Þingeyri, 2. júlí.
Um síðustu helgi var Mýra-
kirkju færður kross að gjöf
til minningar um hjónin Sig-
ríði Gunnjónu og Bjarna Sig-
urðsson frá Lambadal og böm
þeirra Sæmund og Ámýju.
Gefendur krossins eru afkom-
endur og venzlafólk þessara
hjóna og komu um 30 þeirra
í heimsókn til Dýrafjarðar og
voru viðstaddir þegar kross-
inn var vígður við guðsþjón-
ustu í Mýrakirkju s.l. sunnu-
dag.
JÓ
M E S S A
verður í Isafjarðarkirkju
n.k. sunnudag kl. 2 e.h.
ISAFIRBI
Pottar, 11/2—16 lítra.
16 lítra suðupottur, aðeins kr. 714,00.
Philips-raímagnsþeytararnir komnir aftur
Sjómannakonur!
Eiginmennirnir eru farnir aftur á síldina. Styttið
ykkur stundir og lærið að mála listaverk með „Testor“
olíumálverkakerfinu. Fjölbreytt úrval.
Vanti yður tækifærisgjöf, þá lítið inn í NEISTA.
Auglýsing
frá bæjarstjórn ísafjarðar.
Samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar er hér með
ítrekað, að reikningar á bæjarsjóð ísafjarðar og stofn-
anir lians verða framvegis því aðeins teknar til greina,
að þeir séu samþykktir af forráðamönnum bæjarstofn-
ana.
Ennfremur er þeim eindregnu tilmælum beint til
þeirra fyrirtækja og einstaklinga, sem viðskipti eiga
við bæjarsjóð lsafjarðar, að reikningum verði framvísað
a.m.k. mánaðarlega.
Isafirði, 1. júlí 1965.
BÆJARSTJ ÓRI.
Lansar stöðar
hér við embættið:
Staða fulltrúa III. flokks.
Staða ritara (vélritun).
Umsóknir sendist í skrifstofuna.
Bæjarfógetinn á Isafirði, 30. júní 1965.
Síýritnannaskólinn í Vestmannaeyjum
Umsóknir um skólavist fyrir næsta vetur skulu
sendar sem fyrst og fyrir 1. ágúst til skólastjóra. —
(sími 1871 Vestmannaeyjum). ^
Fyrsti og annar bekkur hefjast 1. október.
Undirbúningsnámskeið hefst 15. september fyrir þá,
sem ætla að taka inntökupróf í 2. bekk.
Þeim nemendum, sem þess óska, verður útvegað fæði
og húsnæði.
Skólinn er búinn öllum nýjustu siglingar- og fiski-
leitartækjum eins og:
DECCA-ratsjá
LORAN-tækjum
KODEN -1 j ósmiðunarstöð
ATLAS-dýptarmæli
SIMRAD-fiskrita
SPERR Y-s j álf stýritæki.
Auk þess eru í skólanum öll nýjustu viðtæki Lands-
símans og miðunarstöðvar.
1 verklegri kennslu í sjómennsku er lögð mikil áherzla
á bætingar veiðarfæra og þekkingu á síldarnótum.
Hermann Eyjólfsson, skólastjóri.