Vesturland

Årgang

Vesturland - 03.07.1965, Side 1

Vesturland - 03.07.1965, Side 1
Samgöngubætur á landi meiri en nokkru sinni fyrr skv. framkvæmdaáætlun Vestfjarða 1 sumar verður unnið að stórfelldari framkvæmdum í sam- göngumálum Vestfjarða en fyrr eru dæmi. Alls nemur ríkis- framlag til vegagerðar og brúa á þessu ári 20 milljónum króna, sem veittar eru samkvæmt vegaáætluninni 1965—1968 og af láni því, sem tekið var lijá Viðreisnarsjóði Evrópuráðsins. Margar af þessum framkvæmdum eru þegar hafnar, eins og getið hefur verið liér í blaðinu, en aðrar verða unnar á sumr- inu. Vesturland hefur aflað sér upplýsinga um liinar einstöku fjárveitingar til vega og brúa og jafnframt hvernig fyrir- hugað er að liaga þessum framkvæmdum I sumar. V E G I R Til Vestfjarðavegar i Gilsfirði eru á þessu ári veittar sam- tals 450 þús. kr. og á að ljúka þar um 620 m. löngum kafla frá Slitrum að Mávadalsá. í fyrra var hafizt handa um að leggja nýjan veg á Vest- f jarðavegi sunnan hingmanna- heiðar og hefur nú verið und- irbyggður vegur í botn Mjóa- fjarðar. Þarf að bera allmikið ofan í þann veg og er ætlunin að vinna fyrir 800 þús. kr. í þessum vegi í sumar, en halda áfram að Auðshaugi næsta sumar. Alls er áætlað að þessi vegur kosti 15 milljónir króna. I Barðastrandarvegi verður unnið fyrir 1 milljón 220 þús. kr. og er þar um að ræða vegaframkvæmdir á leiðinni frá Patreksfirði inn á flug- völlinn á Sandodda við Sauð- lauksdal, en einnig verður Skersá brúuð í haust. Til Kollsvíkurvegar eru veittar 150 þús. kr. Til Bíldudalsvegar milli Patreksfjarðar og Bíldudals eru veittar á þessu ári 2,3 millj. kr. Búið er að leggja nýjan veg frá Patreksfirði um Mikladal upp á Kjöl og í fyrrahaust var að mestu lokið að ryðja upp vegi Tálknafjarð- armegin. Á nú að Ijúka þeirri vegagerð og einnig að vinna í ár við veginn yfir Hálfdán fyrir 900 þús. til 1 millj. kr., en á næsta ári er svo ætlunin að vinna fyrir tæpl. 3,3 millj. kr. við vegagerð yfir Hálfdán. Til Trostansfjarðarvegar eru veittar 500 þús. kr. Til Ingjaldssandsvegar um Sandsheiði eru veittar 125 þús. kr. á þessu ári og til Flateyrarvegar eru veittar 555 þús. kr. og verður þar haldið áfram vegagerð milli Sólbakka og Hvilftar. Til Súgandaf jarðarvegar eru veittar í ár 400 þús. kr. og verður lokið við kaflann um Kvíanes og væntanlega tekinn fyrir kafli á Botnsheiði frá Hvíldarkletti í áttina niður í Súgandaf jörð. Verður reynt að finna út hvernig vegurinn á að liggja í framtíðinni niður í fjörðinn, en þar eru þrengsli mikil og erfitt vegarstæði. Til Vestfjarðavegar yfir Breiðadalsheiði eru veittar í ár 2 millj. 620 þús. kr. Verður í sumar reynt að ljúka vegar- kaflanum, þar sem hætt var í fyrrahaust. Er ætlunin að taka sveig norður yfir ána hjá Kerlingarhól og snúa þar við og fara aftur suðuryfir og komast til baka neðst í Skóg- arbrekkum. Standa vonir til að þessi kafli, sem er um 1,8 km. langur, bætist við í sum- ar, en í fyrra var lagður um eins km. kafli um Kerlingar- hól. Hefur sá vegur reynzt vel og með betri vegi á þessum stað ætti að vera auðveldara að ná snjó af honum. Næsti áfangi á þessum vegi er að fá samband við veginn á móts við Efri-Breiðadal og siðasti áfanginn er 1,2 km. langur kafli niður á vegamót Flateyrarvegar. Ráðgert er að mæla fyrir jarðgöngum um Breiðadals- heiði í sumar. Árið 1958 voru gerðar hallamælingar vegna fyrirhugaðra jarðgangna, en ekkert hefur verið ákveðið hvar göngin eiga að liggja, en þau munu fara í gegnum Breiðadalsskarð og lækka veginn um ca. 100 m. og verða þannig í um það bil 500 m. hæð. Er búist við að göngun- um halli í átt til Önundar- fjarðar og með tilkomu þeirra verður hægt að sneiða hjá hin- um miklu snjóalögum í Kinn- inni báðum megin skarðsins. Úr slíkum jarðgöngum fæst mikið efni til fyllingar í vega- gerð. Enn hefur ekki verið gerð kostnaðaráætlun um þessi jarðgöng, en í sumar verða gerð jarðgöng við Stráka á Siglufirði og þykir sjálfsagt að bíða eftir reynslunni af þeim framkvæmdum. Til Bolungarvíkurvegar eru veittar 1,5 millj. kr. á þessu ári. Vegur þessi var opnaður haustið 1949 og hefur aldrei verið fullgerður. Vegurinn er alltof mjór og hætta mikil á grjóthruni. Talað er um að reyna að ýta upp breiðum stöllum, þar sem skriður eru fyrir ofan, sem tækju við grjóthruni, en slíkt hefur verið reynt á Ingjaldssands- vegi og á Gemlufallsheiði og hefur gefizt vel. Með þessu verður miklu minna grjóthrun á veginn sjálfan, en hreinsa þarf stallana af og til. Minnzt hefur verið á þann möguleika að byggja yfir veginn, en slíkt er af sérfróðum mönnum talin alltof dýr framkvæmd. Þá er ætlunin að breikka veg- inn með sprengingum við hamra á eins km. kafla. Til Djúpvegar frá Tunguá að ísafjarðarflugvelli eru veittar 1,5 millj. kr. á þessu ári til endurbóta á veginum og til að byggja brú á Úlfsá, sem verð- ur 7 m. breið og með gang- brautum til beggja hliða. Til Djúpvegar frá Hattar- eyri að Eyri í Seyðisfirði eru veittar ein millj. kr. og í Skötufirði 700 þús. kr. Til Vatnsfjarðarvegar í Mjóafirði eru veittar 100 þús. kr. og til Snæfjallastrandar- vegar 100 þús. kr. Til Strandavegar í Bæjar- lireppi eru veittar 100 þús. kr., hjá Hólmavík 350 þús. kr., Veiðileysuliáls til Djúpavíkur 680 þúsund, í Reykjarfirði 285 þús. kr. og frá Eyri í Ing- ólfsfirði að Ófeigsfirði 150 þúsund krónur. Til Drangsnesvegar eru í ár veittar 150 þús. kr. Tekið skal fram, að ekki verður unnið fyrir allt það fé, sem að framan er talið, þar sem í sumum tilvikum er um að ræða skuldir frá fyrra ári, en gera má ráð fyrir að til viðbótar fáist að einhverju leiti framlög til að vinna á þessu ári upp í framlög ársins 1966. Hefur nú þegar fengizt heimild ráðherra til þess að vinna í sumar í Gilsfirði fyrir 620 þús. kr., sem er fjárveit- ingin til þessa vegar á næsta ári. Þá hafa sýslunefndir Barða- strandarsýslu farið þess á leit, að leyft verði að vinna í sum- ar fyrir 2 millj. kr. af fram- lagi næsta árs í veginum sunn- an iMngmannaheiðar og á Bíldudalsvegi, m.a. til þess að jafna vinnu milli ára, því að gert er ráð fyrir svo miklum framkvæmdum á næsta ári. Er mál þetta nú í athugun. Þá er einnig verið að vinna að því að fá aukið framlag í vegi til þess að koma Árnes- hreppi á Ströndum í vega- samband á þessu ári. B R Y R Til brúargerða eru fjárveit- ingar á þessu ári sem hér seg- ir: Hjarðardalsá í Mjóafirði á Djúpvegi 391 þús. kr. Eyrará í Kollal'irði á Vestfjarðavegi 522 þús. kr. Austurá á Þing- mannaheiði 110 þús. kr. Þing- mannaá og Brunndalsá á Þing- mannadal samanlagt 300 þús. kr. Korpudalsá í Önundarfirði 100 þús. kr. Hnífsdalsá 475 þús. kr. Bæjará í Nauteyrar- hreppi 10 þús. kr. Framlög þessi eru veitt af brúarfé, en að auki er veitt fé til brúar yfir Úlfsá af vega- fénu, sem veitt er til vegarins inn á ísafjarðarflugvöll og og helmingur af kostnaði við brú yfir Hnífsdalsá er greidd- ur af vegafé. Af þeim tölum, sem hér hafa verið nefndar, sést að alls er ríkisframlag til ný- bygginga vega, viðhaldsfé ekki meðtalið, 15 mill. 685 þús. kr. á þessu ári og til brúa ein millj. 908 þús. kr. StSLUVEGIR Þá liafa verið ákveðin ríkis- framlög og heimaframlög til sýsluvega, sem skiptast þann- ig: (Talið í þús. kr.) N-ísaf jarðarsýsla: Ríkisframl. Heimaframl. Alls 157 151 308 V-lsaf jarðarsýsla: 254 140 394 V-Barðastrandarsýsla: 274 140 414 A-Barðastrandarsýsla: 94 46 140 Strandasýsla: 429 134 561 Samtals: 1.208 609 1.817 Þá er þess að geta, að fram- lag ríkisins til gatnagerðar i kauptúnum og kaupstað Vest- fjarðakjördæmis var í fyrra um 1,3 millj. kr. og er áætlað jafn hátt í ár.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.