Vesturland - 15.01.1966, Page 4
4
acH® sfc&irFmzxjm satiGFssÆ&isxnxm
Ráðstefna um fjármál
sveitarstjórna
Tæknideild stofnuð við
Iðnskóla ísafjarðar
Dagana 22.-—24. nóvember-
s.l. var haldin í Reykjavík ráð-
stefna um fjármál sveitar-
félaga. Til ráðstefnunnar var
boðað af stjóm Sambands ísl.
sveitarfélaga í samvinnu við
félagsmálaráðuneytið, Hag-
stofu íslands og Efnahags-
stofnunina. Ráðstefnan var
fjölsótt, sátu hama um 100
fulltrúar víðs vegar að, þar
af 12 frá Vestfirðingafjórð-
ungi.
Formaður sambandsins,
Jónas Guðmundsson setti ráð-
stefnuna og fór nokkrum orð-
um um aðdraganda hennar og
tilgang. Gat hann þess meðal
annars, að þetta væri fyrsta
ráðstefna sinnar tegundar,
sem boðað væri til. Hann bauð
og sérstaklega veikomna gesti
ráðstefnunnar, Eggert G.
Þorsteinsson, félagsmálaráð-
herra og Magnús Jónsson,
fjármálaráðherra.
Fyrsta málið á dagsskrá
fjallaði um fjármálaleg sam-
skipti ríkis og sveitarfélaga og
var fjármálaráðherra fram-
sögumaður. Rakti ráðherra
helztu lagaboð og reglur, sem
þetta efni varða og benti á
nauðsyn þess, að endurskipu-
leggja þyrfti mál þessi frá
grunni, enda reglurnar svo
margslungnar, að ekki væri
nema á fárra vitorði eða færi
að kunna skil á öllum út-
reikningum, er þessi samskipti
varða. Taldi ráðherra rétt að
um þessi efni yrðu settar ein-
faldari reglur, t.d. á þann veg,
að ríkissjóður sjái einn um á-
kveðnar framkvæmdir eða
verkefni, sem nú eru kostuð
sameiginlega af ríkissjóði og
sveitarsjóðum, en sveitarsjóðir
taki í þess stað einir að sér
kostnað við önnur verkefni.
Um þessi mál urðu allmiklar
umræður og voru ræðumenn
sammála fjármálaráðherra um
nauðsyn þess, að löggjöf varð
andi greiðslur vegna sameigin
legra verkefna ríkis og sveitar
félaga verði endurskoðaðar.
Þá kom mjög fram, að ekki
væri viðunandi, að stjómvöld
settu nýjar reglur, er varða
framangreind samskipti eða
almennt fjárhagsmál sveitar-
félaga, eftir að sveitarfélögin
hefðu lögum samkvæmt geng-
ið frá fjárhagsáætlun þess árs,
og reglurnar gætu varðað.
Einnig var því mótmælt, að
reglur, er snerta málefni er
varða sveitarfélögin, eru oft-
lega settar án nokkurs sam-
ráðs við sveitarfélögin eða
stjóm Sambands ísl. sveitar-
félaga.
Næst flutti Bjami Bragi
Jónsson, deildarstjóri í Efna-
hagsstofnuninni, framsögu-
erindi um fjármál og áætlunar
gerð sveitarfélaga. Fjallaði
erindið m.a. um hlutdeild
sveitarfélaganna í fjárfesting-
arframkvæmdum þjóðarbúsins
hin síðari ár.
Á öðrum degi ráðstefnunnar
voru fyrst á dagskrá lánsfjár-
mál og tekjustofnar sveitar-
félaga. Hafði Hjálmar Vil-
hjálmsson, ráðuneytisstjóri í
félagsmálaráðuneytinu, fram-
sögu. Um þessi mál urðu
miklar umræður og kom þar
m. a. fram mikill áhugi fyrir
því, að frumvarp það sem
ríkisstjórnin lagði fyrir Al-
þingi um Lánasjóð sveitar-
félaganna verði ekki látið
daga uppi, en sveitarfélög-
unum heimilað að stofna
banka eða sparisjóð, sem
hefði þau meginverkefni að
veita sveitarfélögum lán til
stofnframkvæmda og enn-
fremur að greiða fyrir rekstr-
arlánum til þeirra, en eins og
kunnugt er, þá er nú engin
lánastofnun í landinu, sem
telur sér skylt 'að gegna þessu
hlutverki. Varðandi tekju-
stofnalögin bentu menn á
ýmsa anmarka og ágalla, sem
endurskoða þyrfti og leiðrétta
að fenginni reynslu.
Á síðdegisfundi flutti félags
málaráðherra framsöguerindi
um samstarf ríkis og sveitar-
félaga um húnæðismál. Rakti
ráðherrann þróun þessara
mála og ræddi reglur þær, sem
nú gilda um þetta efni, m.a. í
lögum um verkamannabústaði,
lögum um húsnæðismálastjórn
og um útrýmingu heilsuspill-
andi húsnæðis, svo og í stjóm-
arfrumvarpi því, sem nú
liggur fyrir Alþingi og flutt
er í samræmi við yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar vegna samn
inga verkalýðsfélaganna um
kjaramál á s.l. sumri. Urðu
nokkrar umræður um þessi
mál og svaraði ráðherra fyrir-
spurnum sem fram komu.
Á síðasta degi ráðstefn-
unnar flutti Guðlaugur Þor-
valdsson, deildarstjóri í Hag-
stofu íslands erindi um árs-
reikninga sveitarfélaga, en
síðdegis þann dag var viðræðu
fundur, þar sem þátttakendum
gafst kostur á að ræða við
stjórn Sambands ísl. sveitar-
félaga um efni og árangur
ráðstefnunnar. Voru þar sam-
þykktar með samhljóða at-
kvæðum eftirfar. ályktanir:
I. „Ráðstefna Sambands ísl.
sveitarfélaga um fjármál
sveitarfélaga, haldin í
Reykjavík 22.—24. nóv-
ember 1965, flytur stjóm
sambandsins, ráðherrum og
stofnunum þeim, er staðið
hafa að ráðstefnunni, beztu
þakkir fyrir boðun ráð-
stefnunnar og framkvæmd
hennar og telur nauðsyn-
legt, að framhald verði á
slíkum ráðstefnum.
Ráðstefnan ályktar að fela
stjórn sambandsins:
1. að beita sér fyrir því við
ríkisstjórn, að komið verði
á fót samvinnunefnd ríkis
og sveitarfélaga, er endur-
skoði löggjöf varðandi
greiðslur vegna sameigin-
legra verkefna þessara
aðil.
2. að fylgja því fast fram, að
frumvarp það um lánasjóð
sveitarfélaga, sem lagt var
fyrir síðasta Alþingi, nái
fram að ganga á því þingi,
sem nú situr.
3. að hafa forgöngu með
endurskoðun á þeim atrið-
um laga um tekjustofna
sveitarfélaga, sem reynst
hafa erfið í framkvæmd
eða ósanngjöm gagnvart
einstökum sveitarfélögum,
svo sem ákvæði um skipti-
og viðbótarútsvör og skatt-
frelsi ríkisfyrirtækja og
banka.
4. að hlutast til um, tað settar
verði fyllri reglur um bók-
hald sveitarfélaga, og koma
á námskeiðum í bókhaldi
fyrir starfsmenn sveitar-
félaga í samráði við Hag-
stofu íslands.
5. að beita sér fyrir frekari
fræðslu um gerð fram-
kvæmdaáætlana og tryggja
hlut sveitarfélaganna í
framkvæmdaáætlun þjóðar
innar hverju sinni“.
H. „Ráðstefna Sambands ísl.
sveitarfélaga um fjármál
sveitarfélaga haldin í
Reykjavík 22.-—24. nóvem-
ber 1965 leggur áherzlu á,
að öll frumvörp, sem Al-
þingi fjallar um, og sveitar-
félögin varðar, svo og
frumvörp að reglugerðum,
sem snerta málefni, er
varða sveitarfélögin í heild,
verði send Sambandi ísl.
sveitarfélaga til um-
sagnar”.
Auk þess sem nú hefur verið
greint frá, gafst þátttakendum
kostur á að heimsækja og
kynna sér starfsemi skýrslu-
Iðnskólinn á Isafirði var
settur þann 5. janúar í húsa-
kynnum Gagnfræðaskólans.
í upphafi skólasetningarinnar
talaði formaður skólanefndar
iðnskólans Finnur Finnsson,
kennari.
Skýrði hann frá því að iðn-
skólinn hefði nú fengið leyfi
menntamálaráðuneytisins til
að reka framhaldsdeild við
skólann, sem undirbúnings
deild undir tækninám. Jafn-
framt því hefði Alþingi sam-
þykkt að greiða áætlaðan
kostnað skólanefndar við
undirbúningsdeildina.
Útdráttur úr bréfi til mennta
málaráðuneytisins dagsett 3.
nóvember 1965.
Á fundi skólanefndar Iðn-
skóla Isafjarðar, er haldinn
var 1. nóvember 1965 var eftir
farandi samþykkt gerð:
„Skólanefnd Inðskóla Isa-
fjarðar fer hér með fram á
það við hið háa ráðuneyti, að
það heimili Iðnskóla Isaf jarðar
að reka framhaldsdeild við
skólann, sem unirbúningsdeild
undir tækninám, og jafnframt
sjái ráðuneytið um þann stofn-
og reksturskostnað sem deild-
inni fylgir“.
Greinargerð:
Frá því að lög um Tækni-
skóla íslands og reglugerð um
undirbúningsdeild undir tækni
nám var sett, hefur skólanefnd
Iðnskóla ísafjarðar viljað
vinna að því að undirbúa iðn-
nema skólans, sem bezt undir
framhaldsnám, jafnframt því
að tengja saman verklega
kunnáttu tæknináminu. Þetta
höfum við hugsað okkur þann-
ig, að skólinn gefi nemendum
sem náð hafa tilskildum eink-
unnum upp úr 2. bekk kost á
kennslu í undirbúningsfögum
Tækniskólans, samhliða 3. og
4. bekkjar námi.
Með þetta sjónarmið í huga
var skólastjóra Tækniskóla ísa
fjarðar hr. Aage Steinssyni
falið að ræða við skólastjóra
Tækniskóla Islands hr. Ingvar
Ingvarsson og komu þeir sér
saman um eftirfarandi:
Reykjavík 20. okt. 1965.
Eftirfarandi atriði voru
rædd, að ósk Iðnskóla Isafjarð
ar , í sambandi við kennslu í
fögum undirbúningsdeildar
Tækniskóla íslands við Iðn-
skóla Isafjarðar og mögulega
aðstoð Tækniskólans við hana.
1. Iðnskóli Isafjarðar veiti
þeim nemendum skólans,
sem þess óska og náð hafa
tilskildum einkunnum upp
úr 2. bekk, kennslu í undir-
búningsfögum Tækni-
skólans samhliða 3. og 4.
bekkjar námi, með nauðsyn
legri lengingu skólaársins.
Æskilegt er lað það sé ekki
skemmra en 20 vikur.
2. Tækniskóli íslands aðstoðar
Iðnskóla Isafjarðar með að
gefa upp námsefni og á út-
vegun kennslubóka.
3. Tækniskóli íslands er reiðu-
búinn að leggja Iðnskóla
Isafjiarðar til prófverkefni
og dæma þau og líta á þau
sem próf utanskóla við
Tækniskóla Islands.
4. Prófin verða tekin á Isa-
firði.
1 sambandi við hina nýju
undirbúningsdeild má geta
þess, að það stendur til að út-
búa sérstaka tilraunastofu,
fyrir efna- og eölisfræðikenn-
slu og hefur iðnskólinn þegar
fengið nokkuð af tækjum til
notkunar í þessum nauðsyn-
legu kennslugreinum.
Að lokum þakkaði Finnur
fyrir hönd skólanefndar iðn-
skólans öllum þeim, sem hlut
hafa átt í stofnun undirbún-
ingsdeildarinnar, fyrir góða
fyrirgreiðslu og skilning, er
þeir hafa sýnt málinu.
Nemendur skólans verða
eitthvað yfir 40 en kennarar
eru 11.
véla ríkisins og Reykjavíkur-
borgar, svo og að sækja sýn-
ingu á bókhaldsvélum, sem
haldin var að Iiótel Sögu.
Á fyrsta degi ráðstefnunnar
bauð fjármálaráðherra þátt-
takendum til hádegisverðar
og sama gerði stjórn Samb-
ands ísl. sveitarfélaga á næsta
degi. Þá hafði og félagsmála-
ráðherra móttöku fyrir fundar
menn.
Þátttakendur voru almennt
sammála um að ráðstefnan
hefði gefið góða raun, enda
voru á dagskrá þau mál, er
varða sveitarfélögin hvað
mestu og oftlega reynast for-
ráðamönnum þeirra einna
erfiðust úrlausnar. Framsögu-
erindi voru öll gagnmerk og
umræður mjög málefnalegar.
Og síðast en ekki sízt gafst
sveitastjórnarmönnum frá
öllum landshlutum kostur á
að ræða sameiginleg viðfangs-
efni og vandamál sinna
byggðarlaga og stofna til gagn
kvæmra kynna, sem víst munu
eiga eftir að reynast mikils-
verð í samskiptum sveitar-
stjórna þeirra í milli.