Vesturland

Årgang

Vesturland - 23.09.1966, Side 3

Vesturland - 23.09.1966, Side 3
3 I SAFIRÐI Sími 416 Vatnsglös Vínglös Sjússmælar Koktail pinnar Isfötur ístangír Glasabakkar Vínsett Tökum við filmum til framköllunar kopieringar og stækkunar, einnig litfilmur kopieraðar og stækkaðar. Fljót afgreiðsla AGFA-fiImur svarthvítar og lit. MYNDAVÉLAR Ljósmyndavörur Glæsileg afrek sundfólks Vestra Unglingameistaramót í sundi fór fram í Sundhöll Reykjavíkur dagana 17. og 18. sept. sl. Tólf félög sendu kepp endur á mótið, alls 130 inanns, og voru níu keppendur frá Vestra á Isafirði. Náðu þeir frábærum árangri og unnu glæsileg afrek. Verður nú sagt frá úrslitum í ein- stökum greinum: 100 m. skriðsund drengja: Sigurvegari varð Eiríkur Bald ursson á 1 mín. 04,4 sek., sem er nýtt sveinamet, Einar Einarsson, Vestra varð fjórði á 1.06,3, sem er hans bezti tími í 25 m. laug. Tryggvi Tryggvason, Vestra, varð 5. á 1.07,5. 100 m. bringusund telpna: Sigurvegari varð Kolbrún Leifsdóttir, Vestra, sem náði sínum bezta tíma, 1. mín. 20,0 sek. og sigraði örugglega. Bryndís Leifsdóttir, Vestra, varð 7. á 1.33,8, sem er hennar bezti tími í 25 m. laug, og Björk Kristjánsd., Vestra, varð 10.—11. á 1.36,1. 50 m. flugsund telpna: Þar varð spennandi keppni milli Þórh. Oddsdóttur og Sigrúnar Siggeirsdóttur, Á., en sund- inu lauk með því að Sigrún var dæmd úr leik á síðustu metrunum og varð því Þórh. sigurvegari á 41,7 sek. 100 m. bringusund drengja: Þar sigraði Einar Einarsson, Vestra, mjög óvænt. Einar synti í fjórða riðli og fékk enga keppni frá sínum keppi- nautum. Einar synti fyrstu 50 m. á 37,0 sek., sem er góðu ur tími og fékk tímann 1.21,2 í 100 m. Ólafur Einarsson, Á., hafði verið talinn sigurstrang- legastur í þessu sundi og við 50 m. og 75 m. markið hafði hann sama tíma og Einar, en nokkuð skorti á úthaldið og kom hann í mark 8/10 úr sek. á eftir Einari. Kolbrún Leifsdóttir varð fjórða í 100 m. baksundi stúlkna. 50 m. skriðsund telpna: Björk Kristjánsdóttir synti á 37,5 sek. og Kristín Þóris- dóttir á 40,0 sek., en Þorh. Oddsdóttir varð að hættia keppni vegna mistaka. Síðasta grein fyrri daginn var 4x50 m. bringusund telpna og lauk þeirri keppni með yfirburðasigri Vestra- sveitarinnar, sem synti á 2 mín. 58,5 sek. 1 sveitinni voru Þórhildur, Björk, Kristín og Bryndís. Náði Björk beztum tíma, 42,5 sek. í fyrstu grein síðari daginn varð Kolbrún óvænt þriðja á 1 mín. 13,4 sek., sem er henn- ar bezti tími í þessari grein. 100 m. baksund drengja: Einar Einarsson vann yfir- burðasigur og synti á 1 mín. 17.8 sek. og annar varð Tryggvi Tryggvason á 1.23,5. 1 50 m. bringusundi telpna voru fjórir keppendur frá Vestra og náði beztum tíma af þeim Björk, sem varð fimmta á 43,3 sek. Hörð keppni var í 50 m. flugsundi telpna milli Kol- brúnar og Hrafnhildar Krist- jánsdóttur, Á., og lauk þeirri keppni með sigri Hrafnhildar á 34,0 sek., sem er mjög góð- ur tími, en önnur varð Kol- brún á 35,1 sek., sem er hennar bezti tími í 25 m. laug. 1 50 m. baksundi telpna varð Þórhildur þriðja á 43,3. 1 50 m. flugsundi drengja sigraði Einar Einarsson með yfirburðum á 34,2 sek. 1 4x50 m. fjórsundi stúlkna varð sveit Vestra önnur á 2 mín. 34.8 sek. 1 stigakeppni á mótinu varð sundsveit Vestra í fjórða sæti með 74 stig. Frammistaða ísfirzka sund- fólksins varð með miklum ágætum og kemur það heim með 9 gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og tvenn bronz- verðlaun. Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem sendu mér kveðjur og gjafir og sýndu mér vinarliug á 75 ára afmæli minu þann 18 júlí sl. Einar Þorbergsson Fjarðarstræti 27, Isafirði, fsfirflinúar Að beiðni sjónvarpsdeildar Ríkisútvarpsins, er hér með óskað eftir ljósmyndum af ísafirði. Það eru fyrst og fremst yfirlitsmyndir, vetrar- myndir og sumarmyndir af kaupstaðnum, myndir af kunnum borgurum, myndir af höfninni, af opin- berum byggingum (s.s kii’kju, skólahúsum, sjúkra- húsi o.fl.), einkennandi myndir fyrir atvinnulíf staðarins og táknrænar myndir fyrir menningar- og félagslíf. Bezt er að myndirnar séu 18x24 cm. að stærð, en allar stærðir koma til greina. Betri er mynd á möttum pappír en glansandi. Skrifa þarf aftan á myndimar hvaðan þær eru og af hverju. Gott væri að geta um hvaða ár þær væru teknar. Myndum verður veitt viðtaka á bæjarskrif- stofunni. ísafirði 20. september 1966. Bæjarstjórinn á lsafirði. Baðvörður (karlmaður) óskast fyrir 30 september SUNDHÖLL Isaf jarðar.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.