Vesturland - 19.05.1967, Blaðsíða 1
Stórfelld aukning fiskiskipaflotans í
i skjnli stjórnarstefnunnar
Stundarerfiðleikum mætt með raunhæfum ráðstöfunum
Framsoknarmenn «g kommdnistar
hafa alltaf reynt að auka fram-
leiöslukostnaOinn, en segjast nú
vera vinir Atvegsins!
Islendingar eiga í dag stærri og betur búinn
fiskiskipaflota en nokkru sinni fyrr. Hin mikla
stækkun flotans og hagnýting nútímatækni við
fiskveiðar og síldveiðar hefur gerzt í skjóli þeirr-
ar uppbyggingarstefnu, sem núverandi ríkis-
stjórn markaði fyrir átta árum. Af þessu hefur
svo leitt stóraukna útflutningsframleiðslu og
betri lífskjör alls almennings.
I árslok 1958 átti þjóðin 49 fiskiskip yfir 100
brúttó smálestir að stærð, samtals 7561 brúttó
smálest. En 1. desember 1966 voru skip að þess-
ari stærð orðin 181 að tölu, samtals 40470 brúttó
smálestir.
Nemur aukningin því yfir 400%.
Hingað til Vestfjarða hafa komið mörg ný-
tízku fiskiskip á fyrrgreindu tímabili. Vestfirzk
útgerð hefur því ekki látið sitt eftir liggja á
þessu mikla uppbyggingartímabili. Hér hafa
einnig verið byggðar nýjar síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjur, og vestfirzkur útgerðarmaður hafði
foi'ystu um síldarflutninga af fjarlægum miðum.
Mörg hraðfrystihús hafa verið bætt stórlega að
tækjum og búnaði.
Júlíus Geirimindsson, eitt nýjasta og glæsilegsta
Efling lánastofnana
útvegsins.
Ríkisstjórnin hefur haft
forystu um mikla eflingu
lánastofnana útvegsins á und-
anfömum árum. Hún hófst
fyrst handa um það árið 1961
að breyta lausaskuldum út-
vegsins og síldariðnaðarins í
föst lán til langs tíma. Heild-
arupphæð þessara lána nam
um 400 millj. króna.
Með lögum frá árinu
1966 voru tveir stærstu
stofnlánasjóðir útvegsins
og fiskiðnaðarins, Fisk-
veiðasjóður Islands og
Stofnlánadeild sjávarút-
vegsins, sameinaðir í einn
öflugan lánasjóð, Fisk-
veiðasjóð Islands. Hlutverk
hans er að efla framleiðslu
og frainleiðni í fiskveiðum,
fiskiðnaði og skyldri starf-
semi með því að veita
stofnlán gegn veði í skip-
um og mannvirkjuin. Mun
sjóðurinn liafa yfir miklu
fjúrmagni að ráða.
Aðstoð vegna erfiðleika
af völdum verðfalls.
Þá hefur ríkisstjórnin og
stuðningsflokkar hennar beitt
sér fyrir aðstoð við útveginn
vegna verðfalls á afurðum á
s.l. ári. Verður á árinu 1967
greidd 8% viðbót á lágmarks-
verð á ferskfisk, annan en
síld og loðnu til þess að
jafna þann mismun, sem
annars hefði orðið á kjörum
sjómanna á þorskveiðum og
annara launþega, og til þess
að draga úr áhrifum af hækk-
un útgerðarkostnaðar.
Þá verða greiddar verð-
bætur á frystar fiskafurðir,
framleiddar á árinu 1967,
aðrar en síldar- og loðnuaf-
urðir, sem nema eiga 55—
75% af verðlækkuninni. Er
fiskiskip Vestfirðinga.
Framhald á 2. síðu.
Þrír stjórnmálafundir í Vest-
fjarðakjördæmi í vikulokin
Nú í vikulokin efnir Sjálfstæðisflokkurinn
til þrigg ja almennra stjórnmálafunda í Vest-
fjarðakjördæmi. Yerða fundir þessir haldnir
á Patreksfirði, Flateyri og á ísafirði.
Forsætisráðherra, dr. Bjarni Benedikts-
son, mun sækja alla þessa fundi og flytja
þar framsöguræðu um stjórnmálaviðhorfið
í landinu. Einnig flytja framsöguræður á
þessum fundum þrír efstu menn á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi, þeir Sigurður Bjarnason frá Vigur,
Matthías Bjarnason og Ásberg Sigurðsson.
Fvrsti fundurinn er haldinn á Patreksfirði
í kvöld og hefst kl. 8,30 í „Skjaldborg“, sam-
komuhúsi Sjálfstæðismanna á staðnum.
Næsti fundur verður haldinn í félagsheimil-
inu á Flateyri á laugardagskvöld, og hinn
þriðji hér á ísafirði í Sjálfstæðishúsinu.