Vesturland - 19.05.1967, Blaðsíða 8
„Ríkisstjórnin reynzt betur,
en hún gaf íyrirheit nm“
Skúla Guðjónssyni á Ljótunnarstöðum liggja ekki
sérlega illa orð til ríkisstjómarinnar. Skúli skrifar um
útvarpsdagskrána í „Þjóðv.“, sem út kom í gær.
Fjallar hann þar um útvarpsumræðumar frá Alþingi
í þinglokin og segir ma. orðrétt:
„Ekki gat ég varizt þeirri hugsun, þegar ég hlýddi
á fyrrnefndar umræður, að stjórnarandstæðingar
dæmdu ríkisstjómina of liart. Eigi maður að vera
sanngjarn, hefur ríkisstjórnin reynzt betur, en hún
gaf fyrirheit um.“ (Leturbreyting Vesturlands).
Þetta er loflegur vitnisburður mannsins, sem skipaði
tíunda sætið á apríllista Alþýðubandalagsins í Vest-
fjarðakjördæmi, og mega stuðningsmenn ríkisstjórnar-
innar vel við una.
Skúli vildi ekki fara á nýja listann hjá Hannibal-
istum, og nú, þegar hann hefur dregið sig í hlé frá
stjómmálunum, vill hann vera svo „sanngjarn“, að
viðurkenna þá staðreynd, sem blasir við öllum lands-
mönnum, en hún er einmitt sú, með orðum Skúla, að
„ríkisstjórnin hefur reynzt betur en hún gaf fyrirheit
um“.
Fvndnr Sjálfstæðismanna á Þingeyri
Sjálfstæðisfélag Dýrfirð-
inga boðaði til almenns stjórn
málafundar að Þingeyri sl.
miðvikudagskvöld. Hófst fund
urinn kl. 9 s.d. Jónas Ölafs-
son, framkvæmdastjóri, for-
maður Sjálfstæðisfélagsins
setti fundinn og stjórnaði hon
um. Þá flutti Sigurður Bjarna
son alþm. frá Vigur framsögu
ræðu um héraðsmál og lands-
mál.
Miklar umræður urðu að
ræðu hans lokinni og tóku
þessir til máls: Páll Pálsson,
Séra Stefán Eggertsson, Sig-
mundur Jónsson, Matthías
Guðmundsson og Steinþór
3enjamínsson. Að lokum svar
aði Sigurður Bjarnason ýms-
um fyrirspumum, er fram
höfðu komið.
Fundurinn fór í öllu hið
bezta fram. Kom fram mik-
il ánægja með þær miklu
framkvæmdir er staðið hafa í
héraðinu sl. kjörtímabil, sér-
staklega á sviði hafna- og
vegamála. Bent var á nauð-
syn þess að lengja flugvöll-
inn á Þingeyri, þannig að
þar geti lent stærri tveggja
hreyfla flugvélar. Ennfremur
var rætt um nauðsyn auk-
inna íbúðabygginga á stað-
num.
Kosningaskriistofa
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins á fsafirði
er í Sjálfstæðishúsinu, annarri hæð, símar 695 og 232.
Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 10—12 og 1—7.
Utankjörstaðakosning er hafin og geta þeir, sem
verða að heiman á kjördag, kosið hjá sýslumönnum og
hreppstjórum, og erlendis er kosið í íslenzkum sendi-
ráðum og hjá íslenzkum ræðismönnum.
Kjósið áður en þér farið að heiman, ef þér verðið
ekki heima á kjördag.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins, sem dvelur utan
bæjarins og verður ekki heima á kjördegi, er beðið að
hafa samband við kosningaskrifstofu flokksins.
Veitið skrifstofunni allar þær upplýsingar, sem
geta orðið til þess að auðvelda kosningaundirbúning-
inn og til aðstoðar við stuðningsmenn flokksins.
Þeir, sem fengið hafa senda miða í Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins 1967, eru vinsamlegast beðnir að
gera skil hið fyrsta á kosningaskrifstofunni í Sjálf-
stæðishúsinu. Dregið verður 23. maí n.k.
Fjðlsóttur fundur Sjálfstæðismanna i
Bolungarvík
Sjálfstæðisfélögin í Bolung-
arvík efndu til almenns stjóm
málafundar í félagsheimilinu
í Bolungarvík á miðvikudag
i síðustu viku. Hófst fundur-
inn kl. 9.
Guðmundur Agnarsson, for-
maður Félags ungra Sjálf-
stæðismanna við ísafjarðar-
djúp, setti fundinn og til-
nefndi hann sem fundarstjóra
Jónatan Einarsson oddvita og
fundarritara Jón Þórðarson
verzlunarmann.
Frummælendur voru þeir
Sigurður Bjamason alþm. frá
Vigur, i Matthías Bjarnason
alþm. og Ásberg Sigurðsson
sýslumaður. Töluðu þeir bæði
um héraðsmál og landsmál og
var ræðum þeirra ágætlega
tekið.
Auk frummælenda tóku til
máls þeir Jónatan Einarsson
oddviti, Benedikt Bjarnason
framkvæmdastjóri og frú Ósk
ólafsdóttir.
Að lokum svöruðu fmm-
mælendur fyrirspurnum.
Fundurinn var vel sóttur
og fór í öllu hið bezta fram.
Er þetta fyrsti fundur, sem
Á síðasta Alþingi flutti Sig-
urður Bjarnason frv. til laga
um breyting á læknaskipunar-
lögunum á þá leið að heimilað
væri að ráða lækni til starfa
í þjónustu síldveiðiflotans og
áhafna hans á aðalsíldarver-
tíðinni. Var þetta frv. sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um og má því gera ráð fyrir
að það komi til framkvæmda
á komandi sumri.
í greinargerð, er fylgdi frv.
Sigurðar Bjarnasonar var vak
in athygli á því, að brýna
nauðsyn bæri til þess að
tryggja sjómönnum læknis-
stjórnmálaflokkamir halda í
sumar hér í Bolungarvík fyr-
ir alþingiskosningarnar. Rikir
mikill áhugi á því í byggðar-
laginu að vinna ötullega að
sigri Sjálfstæðisflokksins í
kosningunum.
þjónustu á fjarlægum miöum.
En eins og kunnugt er liefur
síldveiðiflotinn undanfarin
sumur stundað veiðar allt
norður undir Jan Mayen lang-
tímum saman. Hefur stund-
um orðið að leita þjónustu
norskra og rússneskra lækna,
þegar slys eða veikindi hafa
borið að höndum. Ráðning
læknis í þágu síldveiðiflotans
er því heilbrigðis og öryggis-
mál, sem ber að fagna að Al-
þingi og ríkisstjóm hefur
sýnt skilning á með samþykkt
fyrrgreinds frv. Sigurðar
Bjarnasonar.
Læknir síldveiðisjómanna
„Tíniiiin" hæðir Framsóknarmenn
Dagblaðið ,,Tíminn“ birti
nýlega myndir af frambjóð-
endum flokksins í Vestfjarða-
kjördæmi, og fylgru umsagn-
ir um ágæti fjögurra efstu
manna, en næstu sex urðu að
láta sér nægja myndirnar.
Er næsta fróðlegt að lesa
umsagnir Framsóknarmanna
Rafmagn á Pat-
reksfjarðarflugvöll
Ákveðið hefur verið, að
rafstrengur verði í sumar
lagður yfir Patreksfjörð á
flugvöllinn við Sauðlauksdal
i Rauðasandshreppi. Mun flug
völlurinn verða raflýstur og
er rafmagn frá Mjólkárvirkj-
un þar með komið í hreppinn.
Jafnframt styttist nokkuð
rafmagnsleiðslan yfir Barða-
strandarhrepp, sem ákveðið
er að fái raforku frá orku-
verinu í Arnarfirði.
—n—
sjálfra um sína frambjóðend-
ur. Áður var Halldór á Kirkju
bóli búinn að lýsa yfir því,
að Sigurvin væri „óbilaður,
en tekinn að þyngjast til ferða
laga“. Nú segir Tíminn, að
Sigurvin sé rökfastur maður
og reikningsglöggur, og hafa
reikningsdeilur hans og við-
skiptamálarúðherra oft vakið
athygli á Alþingi.“
Trúlega á Sigurvin að nota
reikningssnilld sína til þess
að reikna erfðaprinsinn Stein-
grím inn á þing. Sölvi Helga-
son reiknaði kálf í kú, og tví-
bura í meykerlingu, annan
svartan og hinn hvítan. Sölvi
varð að hafa fyrir því, að
reikna tvíburana úr kellu, en
kjósendur í Vestfjarðakjör-
dæmi munu sjá til þess, að
reikningsdæmi Sigurvins
„reikningsglögga" gangi ekki
upp.
Um Steingrím erfðaprins
segir „Tíminn“, að hann sé
„nú tvímælalaust eitt mesta
foringjaefni í hópi ungra
manna á lslandi.“
Fyrr má nú rota en dauð-
rota. Slíkt hefði Snorri kall-
að háð.
Um Halldór á Kirkjubóli
segir „Tíminn“: „Það verður
iengi í minnum haft, hvernig
hann leysti vanda Framsókn-
arflokksins i Vestfjarðakjör-
dæmi á síðastliðnum vetri.“
Já, það er rétt. Það verður
frægt að endemuin, hvernig
Halldóri á Kirkjubóli var bol-
að úr öðru sæti á löglegum
framboðslista flokksins, og
þvingaður með ægivaldi flokks
forustunnar í Reykjavík til
þess að fara í fjórða sæti á
framboðslista, sem aldrei var
borinn undir þann aðila, sem
ákveða skal framboð flokks-
ins, en það er Kjördæmisþing
Framsóknarflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi.