Vesturland - 01.06.1974, Blaðsíða 2
2
sianD a/ésaFHtsxxH saitaFsaœvisxxxm
lilliliilliiiiliiliiliilllllililltlllilliliilllllllillllliilliiiillliiiliiiiilliiiiiiiililliiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliillilliliililllllllllll
MIMM)
\ *# 3£7i& aTesmmzyam ssAaFsx/EsismxxR
I Útgefandi: Kjördæraisráð Sjálfstæðisflokksins í Vest- 1
fjarðakjöræmi. |
| Blaðnefnd: Ólafur Þórðarson, ísafirði, Guðmundur Agn- |
| arsson, Bolungarvík, Halldór Bernódusson, Suðureyri, =
| Hafsteinn Davíðsson, Patreksfirði, Sigurður Sv. Guð- |
j: mundsson, Hnífsdal. 1
| Ábyrgðarmaður: Finnur Tli. Jónsson. |
| Afgreiðsla: Uppsölum — Sími 3232 |
| Prentstofan Isrún hf., Isafirði. =
>IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII'IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIII
Dómur þjóðarinnar
ÚRSLIT sveitarstjórnarkosninganna leiddu í Ijós, svo að
ekki verður um villst, að meirihluti þjóðarinnar treystir
sjálfstæðismönnum öðrum fremur til að hafa forystu í
málefnum bæjar- og sveitarfélaganna.
Jafnframt því sem kosningaúrslitin eru ótvíræð trausts-
yfirlýsing á stefnu og störf Sjálfstæðisflokksins, eru þau
þungur áfellisdómur kjósenda yfir vinstri glundroðaflokk-
unum, áfellisdómur yfir stefnuleysi, óheilindum og svikum
þeirra flokka, sem farið hafa með stjórn landsins að undan-
förnu og leitt yfir þjóðina geigvænleg efnahagsvandræði
og öryggisleysi, sem illt er að sjá fyrir endann á.
Sú fádæma sundrung og glundroði, sem nú ríkir í röðum
vinstri manna, er að sjálfsögðu ekki til þess fallin að vekja
eða viðhalda trausti og trúnaði á hinu marglofaða „vinstra
samstarfi" og vinstri stefnu. Það mun einnig, ef að líkum
lætur, sýna sig enn betur í alþingiskosningunum, sem fram-
undan eru, að íslendingar hafa fengið meira en nóg af
„vinstra samstarfi" og vinstri stjórn.
VESTFIRÐIIMGAR eru áreiðanlega ekki búnir að gleyma
hinum gullnu kosningaloforðum vinstri manna fyrir alþingis-
kosningarnar 1971, þegar þeir voru að biðla eftir fylgi
kjósenda. Það var ekkert smáræði, sem þeir ætluðu að
gera, — aðeins ef kjósendur vildu skapa þeim aðstöðu til
myndunar vinstri stjórnar. Nú eftir þriggja ára óstjórn
þessara manna sést engin efnd á neinu þeirra miklu loforða,
— en hins vegar hefur vinstri mönnum, undir yfirstjórn
Framsóknarflokksins tekist að leiða þjóðina út í slíkar
efnahagslega ógöngur, að annað eins hefur aldrei þekkst
hér á landi. Stjórnin, sem kallaði sig „stjórn hinna vinnandi
stétta", hefur skert lífskjör hinna lægst launuðu og virt
að vettugi óskir verkalýðshreyfingarinnar í landinu varðandi
launa- og kjaramál.
Þeir menn, sem hæst og fjálglegast töluðu árið 1971 um
vinstri samvinnu til lausnar öllum vanda, — og fengu gullið
tækifæri til að sýna vinstri samvinnu í verki, — eru nú
sundraðri en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. Það er
eins og sprengju hafi verið varpað í miðja vinstri fylkinguna,
og brotin eru á tvist og bast út um allar trissur.
Og sundrungin heldur áfram dag frá degi, svo að segja
má að enginn vinstri maður viti deginum lengur hvaða
flokksbroti hann tilheyrir.
Þjóðin hefur hafnað forsjá þessara manna í sveitarstjórn-
arkosningunum, og hún mun eflaust ganga að kjörborðinu
í alþingiskosningunum 30. júní með sama hugarfari.
★—★—★
Úrslitin á...
Framhald af 1. síðu.
staða til hvaða verkum skal
unnið að og hver skuli hafa
forgang. Stefnan er fastmót-
uð og byggð upp með velferð
bæjarbúa fyrir augum.
Við sjálfstæðismenn Mtum
svo á, að fylgisaukning Sjálf-
stæðisflokksins í þessum
kosningum sýni fylgi við
stefnumál okkar, og traust
á þeim mönnum, sem að þeim
munu vinna.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins
nægir samt ekki til þess að
fulltrúar hans geti staðið ein-
ir og óstuddir að stefnumál-
um hans. Meirihluta aðstaða
vinstri manna kemur í veg
fyrir það. Sjálfstæðismenn
líta samt svo á, að vegna
trausts langflestra kjósenda
á ísafirði á stefnumálum
hans, beri fulltrúum hans að
hafa forystu í starfi bæjar-
stjórnar næstu fjögur ár.
í kosningabaráttunni deildu
Fimm bæjorfulltrúar
kveðju bæjurstjórn
Högni Þórðarson átti sæti
í bæjarstjórn á árunum 1954
til 1966 cg síðan aftur á ár-
unum 1970—1974. Högni átti
sæti í bæjarráði á árunum
1958—1966 og aftur á árun-
um 1970—1974. Hann var
forseti bæjarstjórnar árin
1970—1974. Auk þess átti
hann sæti í hinum ýmsu
nefndum á vegum bæjarins.
Er óhætt að segja að Högni
Þórðarson hafi verið einn
atkvæðamesti bæjarfulltrúi á
Isafirði mörg undanfarin ár.
Sjálfstæðismenn þakka
Högna affarasæla forystu í
bæjarmálum ísafjarðar og
ötult, óeigingjarnt starf í
þágu bæjarfélagsins.
Sigurður J. Jóhannsson átti
sæti í bæjarstjórn á árunum
1964—1966 og árunum 1970
til 1974. Auk þess átti Sigurð-
ur sæti sem varafulltrúi í
bæjarstjórn árin 1958—1964,
en þá tók hann sæti Jóns H.
Guðmundssonar, sem flutti úr
bænum. Sigurður átti sæti í
bæjarráði árin 1971—1974, og
átti auk þess sæti í ýmsum
nefndum á vegum bæjarins.
Sjálfstæðismenn þakka Sig-
urði fyrir drengilega and-
stöðu, ánægjuríkt samstarf
og góð kynni á liðnum árum.
vinstri flokkarnir hver á ann-
an, og þáverandi samstarfs-
menn sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn héldu uppi merki
þeirra verka, sem þeir unnu
með sjálfstæðismönnum. —
Myndun vinstri-meirihluta nú,
væri því hreint siðleysi og
Kristján J. Jónsson átti
sæti í bæjarstjórn árin 1962
til 1974 og gegndi trúnaðar-
störfum í ýmsum nefndum á
vegum bæjarins.
Sjálfstæðismenn þakka
Kristjáni Jónssyni fyrir mikið
og gott starf í þágu bæjar-
félagsins.
Garðar S. Einarsson átti
sæti í bæjarstjórn á árunum
1970—1974 og starfaði auk
þess í nefndum á vegum bæj-
arins.
Sjálfstæðismenn þakka
Garðari fyrir starf hans í
þágu bæjarins.
Theodór Norðkvist átti sæti
í bæjarstjórn árin 1971—1974.
Sjálfstæðismenn þakka
Theodóri starf hans í bæjar-
stjórn, drengilega andstöðu
cg góð kynni.
atlaga gegn vilja kjósenda á
ísafirði.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins hafa því hiklaust leitað
Að loknum
kosningum
NÚ AÐ LOKNUM sveitar-
stjórnarkosningum er mér
efst í huga þakklæti. Þakk-
læti til þeirra fjölmörgu, sem
á einn eða annan hátt studdu
okkur í baráttunni. Það er
mikils um vert að finna slíkan
samhug cg vilja til góðra
starfa
Sjálfstæðismenn höfðu góð-
an málstað að berjast fyrir.
Forysta þeirra í bæjarmálum
hafði sýnt, að þeim var best
treystandi til að koma að-
kallandi verkum fram. Allt
tal um vinstra samstarf var
markleysa. Sundrungaröfl og
samtakaleysi réðu þar málum
cg ráða enn. Það er hörmu-
legt til að vita, þegar hugur
fylgir ekki máli, cg sú vinstri
veit ekki hvað sú hægri gerir.
ísfirðingar og íslendingar
allir eru orðnir langþreyttir
á óraunhæfu áróðurshjali
kcmmúnista, undir hvaða
dulu sem þeir fela sig. Hjá
þeim er ekki nema ein hugs-
un að baki — öngþveiti. -—
Takist þeim að skapa það er
markinu náð. Byltingin næsta
skrefið, og hún með vopnum,
blóðug, ef á þarf að halda,
eins og sumir þeirra hafa þó
þcrað að láta uppi.
Friðelskandi fólk fordæmir
slíkt. Fjöldi þess hefur sam-
einast undir merkjum sjálf-
stæðismanna nú sem fyrr. í
hönd farandi alþingiskosning-
um verður það líka þar, sem
traust þjóðarinnar hvílir á.
Við nýkjörnir bæjarfulltrú-
ar munum leitast við að halda
markaðri stefnu okikar í bæj-
armálum, og leysa hvern
vanda á heilladrýgstan hátt.
Við gerum litið einir.
Bæjarbúar veitið okkur að-
hald og stuðning. Með sam-
eiginlegu átaki lyftum við
byggð okkar. Fyrir hana er-
um við reiðubúnir að vánha.
Jón Ben Ásmundsson.
eftir samstarfi við þá menn,
sem þeir treysta til að vinna
með þeim að velferðarmálum
bæjarbúa. Sjálfstæðismenn
munu þó ekki hvika frá
stefnumálum sínum í neinum
veigamiklum atriðum, og
stefnumál flokksins eru ó-
breytt.
Framundan eru stórmál,
sem taka verður föstum tök-
um. Þeim verður ekki komið
heilum í höfn, nema styrk
hönd haldi um stjórnvölinn.
Þessi mál verða ekki fram-
kvæmd öll í einu. Þau eru
umfangsmeiri en svo. Fram-
undan eru Mka erfiðir tímar
í þjóðmálum vegna óstjórnar
vinstri-stjórnar að undan-
förnu, cg kemur það óhjá-
kvæmilega niður á fram-
kvæmdum bæjarins í nánustu
framtíð. Fulltrúar Sjá'lfstæð-
isflokksins í bæjarstjórn eru
þess engu að síður reiðubúnir
að taka afstöðu til þeirrar
fjögurra ára áætlunar, sem í
bígerð er um framkvæmdir
bæjarfélagsins.