Vesturland - 01.06.1974, Side 3
&J2R2) a/esamnxxxn ssABPSSÆsvsMnxMn
3
MINNINGARORÐ
Börnin spyrja, hvers vegna
þuríum við að gera þetta eða
hitt? Við hin fullorðnu furð-
um okkur á því, af hverju
þarf þetta að vera svona, en
hitt öðru vísi. Hvers vegna
er fólk í blóma lífsins kallað
yfir móðuna miklu? Einhver
hlýtur tilgangurinn að vera
með öllu þessu. — Óvenju
stórt skarð hefur dauðinn
höggvið í raðir ísfirðinga nú
síðustu daga. Slík skörð tekur
langan tíma að fylla og eru
vandfyllt.
Þessi fátæklegu orð mín
verða aðeins vanmáttug
kveðja til góðra vina.
Iðunn Eiríksdóttir var fædd
hér á ísafirði þ. 9. júní 1921.
Ekki var hún eldri að árum
og ung var hún í anda og
létt í lund. Þar eignuðumst
við aðra góða grannkonu og
vinkonu.
Ég læt það öðrum kunnugri
eftir að rekja ævi og störf
Iðunnar, því ég veit að þau
voru mikil. Hún var mikil fé-
iagsmálamanneskja, hugstór,
djörf og ákveðin, ávallt í fylk-
ingarbrjósti áhugamála sinna.
Hún var stúdent að mennt
og naut Gagnfræðaskólinn hér
krafta hennar lengi og vel,
bæði í fræðsluráði og sem
prófdómara. Skólinn þakkar
henni mikil og góð störf.
Við hjónin þökkum alltof
stutt, en mjög góð kynni og
sendum ástvinum hugheilar
kveðjur.
kom öllum í gott skap. Slíkar
mannperlur eru ómissandi í
öllu samfélagi, því verður
heimurinn verri, er þeim
fækkar.
Á fyrsta degi okkar hjóna
hér á ísafirði, fyrir tæpum
þremur árum, hittum við
þessa góðu konu, sem tók
okkur opnum örmum og
bauðst til að vera okkur móð-
ir hér, sem við alltaf gætum
leitað til. Ekki brást hún þar
fremur en annars staðar.
Trygglyndi hennar og vinátta
var einlæg og mikil.
Við hjónin eigum ekki nóg-
samleg orð til þcikkar, en hug-
urinn er með þér góða vin-
kona, og þínum nánustu í
sorg og missi.
Sunnukórinn flytur þér ein-
lægar þakkir fyrir óvenju
langt og heilladrjúgt starf,
sem verður öðrum meðlimum
til hvatningar og dáða á kom-
andi tímum.
Það þarf oft stór orð á
stórum stundum. Um ykkur
þarf ekki stór orð. Þið báruð
þau með ykkur í hverju fót-
máli. Tíminn líður og aldrei
kemur hann aftur til baka.
Dauðinn og lífið eru óaðskilj-
anlegir förunautar, þó að þar
taki aðeins annar frá hinum,
því leitum við til hans, sem
einn getur læknað öll mein.
Þú einn vilt alla styðja
og öllum sýna tryggð.
Þú einn vilt alla biðja
og öllum kenna dyggð.
Þú einn vilt alla hvíla
og öllum veita lið.
Þú einn vilt öllum skýla
og öllum gefa frið.
(D. Stef.)
Við biðjum hann, sem öllu
ræður, að veita ástvinum öll-
um styrk og blessun.
J. Ben.
Landsmálabarátton
Framundan er nú mikil og
hörð barátta í þjóðmálum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í bæjarstjórn munu ekki láta
þá baráttu bitna á störfum
þeirra í stjórn bæjarmála.
Þeir munu samt ekki frekar
en aðrir góðir sjálfstæðismenn
leiða þá baráttu hjá sér. Til
þess er of mikið í húfi. Nú
verður barist um það, hvort
íslenska þjóðin á áfram að
vera viðundur í efnahagsmál-
um á meðal þjóða heims, eða
hvort festa í efnahagsmálum
á að komast aftur á.
Nú verður kosið um það,
hvort batnandi afkoma al-
mennings í landinu á að vera
raunhæf, eða hvort við eigum
enn um sinn að lifa í blekk-
ingarheimi manna, sem lifa
um efni fram, það er komið
að skuldadögum vinstristjórn-
ar á íslandi. Stjórn Ólafs
Jóhannessonar veit ekki sitt
rjúkandi ráð og getur ekki
leyst vandann, sem verður
risavaxnari með hverjum deg-
inum sem líður. Það er því
ekkert sældarbrauð, sem bíður
þeirra manna, sem taka við
stjórnartaumunum á næsta
kjörtimabili. íslenska þjóðin
verður því að gera það upp
við sig nú, hvort hún treystir
betur til að leysa þennan
vanda, annars vegar þeim
mönnum, sem leiddu þjóðina
farsællega í gegnum erfiðustu
ár Íslands 1967—1969, þegar
aflabrögð brugðust og verðlag
á afurðum fór lækkandi með
þeim afleiðingum að útflutn-
ingsverðmæti landsmanna
féllu í verði um 45%, eða
hins vegar þeim mönnum, sem
hafa komið efnahagsmálum
Íslendinga í hreint öngþveiti
á mestu uppgripa árum þeirra
tii lands og sjávar.
Auknar flugsamgöngur
Elísabet Samúelsdóttir var
fædd í Hattardal þ. 18. ágúst
1913. Hún var því aðeins rétt
rúmlega sextug er kallið kom.
Þessi glaða, léttdansandi ung-
mær, sem með návist sinni
1 SUMARÁÆTLUN Flugfé-
lags íslands, sem gekk í gildi
1. maí, er gert ráð fyrir fleiri
ferðum og meiri flutningi en
nokkru sinni áður.
Það nýmæli er í áætluninni,
að teknar verða upp áætlun-
arferðir milli Akureyrar og
Isafjarðar tvisvar í viku, á
mánudögum og föstudögum.
Ferðir milli Reykjavikur
og ísafjarðar eru áætlaðar 12
í viku, þar af 3 á föstudögum,
2 á mánudögum, fimmtudög-
um og sunnudögum og ein
ferð aðra daga vikunnar.
Til Patreksf jarðar er áætlað
að fljúga á mánudögum, mið-
vikudögum og föstudögum, og
til Þingeyrar á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardög-
um.
Flugfélag íslands fékk ný-
lega nýja Fokker Friendship
skrúfuþotu, sem bætist í inn-
anlands-flugflotann. Er þetta
fimmta skrúfuþotan í innan-
landsflugi félagsins.
Lokahátíð Tónlistarskólans
LOKAHÁTÍÐ Tónlis'tarskóla
ísafjarðar og skólauppsögn
verða í Alþýðuhúsinu laugar-
daginn 1. júní kl. 5 e.h.
Fjárir nemendur, sem nú
eru að kveðja skólann, leika
á ýms hljóðfæri, en þau eru
Kristján Guðmundur Jóhanns-
son, Halldór Jónsson, Guðrún
B. Magnúsdóttir og Margrét
Gunnarsdóttir. Annað á efnis-
skránni er: Kristinn Níedsson
leikur á fiðlu, blásarakvint-
ett, hljómsveit Tónlistarskól-
ans, samleikur kennara á
flautu, fiðlu og celló.
Allir vinir og velunnarar
Tónlistarskólans eru velkomn-
ir á lokahátíðina.
Tilkynning
um aðstöðugjald í Vestfjarðaumdæmi.
Eftirtalin sveitarfélög hafa tilkynnt um álagningu
aðstöðugjalds í Vestfjarðaumdæmi 1974, skv. 5.
kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga:
ísafjarðarkaupstaður — Gufudalshreppur — Flat-
eyjarhreppur — Barðastrandarhreppur — Rauða-
sandshreppur — Patrekshreppur — Tálknafjarðar-
hreppur — Suðurfjarðahreppur — Auðkúluhreppur
Þingeyrarhreppur — Mýrahreppur — Flateyrar-
hreppur — Suðureyrarhreppur — Hólshreppur
Súðavíkurhreppur — Nauteyrarhreppur — Snæ-
f jallahreppur — Árneshreppur — Kaldrananes-
hreppur — Hrófbergshreppur — Hólmavíkurhrepp-
ur — Fellshreppur og Bæjarhreppur.
Gjaldstigar liggja frammi á skrifstofu minni og
hjá viðkomandi sveitarstjórn.
Skv. greindum lögum þurfa þeir, sem hafa atvinnu-
rekstur í nefndum sveitarfélögum, en heimilisfesti
annars staðar að skila sérstöku framtali til að-
stöðugjalds. Þeir, sem reka margþætta starfsemi
þurfa að senda greinargerð um hvað af útgjöld-
unum tilheyri einstökum gjaldaflokkum.
Áðurnefnd gögn þurfa að berast sem fyrst, ella
má búast við, að áætlun verði beitt á aðstöðu-
gjaldið eða skiptingu í gjaldflokka.
ísafirði, 29. apríl 1974,
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra fyrir Smábátaeiganda-
félagið Hugin, ísafirði er laus til umsóknar.
Staðan veitist fyrst, sem hálfs dags starf.
Umsóknir ásamt kaupkröfu sendist fyrir 15. júní
til Sigurður Ólafssonar, Seljalandsvegi 75 sími
3514,, sem gefur nánari upplýsingar.
S T J Ö R N I N .
Til sölu
bifreiðin í-1416, Land-Rover díesel, árgerð 1962,
vel með fari.
Upplýsingar gefnar kl. 12—1 og eftir kl. 7 e.h.
GESTUR PÁLMASON
sími 7325 — Bolungarvík
Frá Menntaskólanum
Brautskráning stúdenta frá Menntaskólanum á
ísafirði fer fram í fyrsta sinn við skólaslit í
ALÞÝÐUHÚSINU á (safirði mánudaginn 3. júní
n.k. kl. 15,00.
Vinir og velunnarar skólans velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
SKÓLAMEISTARI.