Vesturland - 27.05.1976, Blaðsíða 4
4
&CH3> nTc&CFmzxxn ssún^sa’Æínsxnxm
Ganga 1976
Framhald af bls. 3.
in að keppa í 3x10 km boð-
göngu, en verðrið leyfði það
ekki, og var allri keppni frest-
að þann dag. Næsta dag,
föstudaginn lainga var keppt í
boðgöngunni, veðrið var
leiðimlegt til keppni, nokkuð
hvasst og gekk á með él'jum,
cg hvessti heldur er leið á
daginn. Brautin var á svip-
uðum slóðum og áður og voru
gengnir tveir 5 km hringir.
Engin slóð var í brautinni,
en hún var vel merkt, þrátt
fyrir það villtust nokkrir
keppendur út úr henni í
verstu éljunum. Boðgangan
var mjög spennandi og jöfn
í lidkin. Eftir að fyrstu menn
höfðu gengið var röðin þann-
ig. Sveit Ólafsfjarðar nr, 1,
sveit ísafjarðar nr 2, sveit
Siglufjarðar nr. 3 og sveit
Fljótamanna nr. 4. Jón Kon-
ráð 16 ára gekk fyrstur fyrir
sitt hérað. Hann kom í mark
með 1,36 mín. forskot á ísa-
fjarðarsveitina. Eftir að
næstu menn höfðu lokið sín-
um 10 km var röðin eins,
nema Fljótamenn og Siglifirð-
ingar höfðu skipt um sæti.
Þá hófst lokabaráttan og hún
varð hörð og jöfn. Björn Þór
Ólafsson Ó. hélt sætinu fyrir
sína sveit en það stóð nofckuð
tæpt, því Magnús Eiríksson,
nýorðinn íslandsmeistari tók
heldur betur viðbragð, hann
náði Trausta Sveinssyni F.,
einnig náði hann Kristjáni R.
Guðmundssyni og fór fram úr
honum. Þegar Magnús kom í
markið voru 46 sek. sem
skiidu hann og Bjöm Þór.
En það var efcki allt þar með
búið. Nú börðust þeir Krist-
ján R. og Trausti um 3. og 4.
sætið. Er þeir áttu eftir um
500 m í mark, var Kristján
á undan en Trausti atlveg á
hælunum á honum. En þá
skeði óhappið, Kristján datt
og Trausti smeigði sér fram
úr. Þar með var röðin ráðin,
en aðeins 7 sek. skildu að
Fljótamenn og ísfirðinga.
Úrslit:
Sveit Ólafsfjarðar 114,14
A sveit Siglufj. 114,57
Sveit Fljótamanna 115,20
Sveit ísafj. 115,27
Alls voru 8 sveitir skráðar
7 hófu keppni og lufcu henni.
Það sést best á tímunum hvað
keppnin var jöfn að aðeins 1
mín. og 13 sek. skildu 1. og
4. sveit.
Á laugardaig var keppt í
stökki og þeim greinum sem
voru á dagskrá og höfðu áður
verið frestað. Páskaveðrið var
nú komið eins og allir vildu
hafa það, sól og logn.
Sunnudagurinn 18. apríl
var runninn upp og það var
eklki seinna vænna að dag-
skráin kæmis.t í lag. Af nor-
rænum greinum var keppt í
15 km göngu 17—19 ára og
30 km göngu 20 ára og eldri.
Hitastig um 0 gráður. Braut-
in var ein9 og áður fyrir ofan
Stórhæð.
Keppendur í 15 km göngu
lentu í vandræðum með færið,
en það var dáiítið misjafnt í
brautinni. Einnig fór áburður-
inn undan vegna svella á
nokkrum stöðum. 17—19 ára
flokkurinn gekk á undan og
lufcu þeir sinni keppni áður
en 30 krn gangan hófst.
Hæðairmismunur í brautinni
var um 75 m og hringurinn
um 7 5 km iangur.
Únslit:
1. Haukur Sigurðss. Ó. 51,39
2. Björn Ásgrímss. S. 52,30
3. Þorst. Þorvaildsis. Ó. 53,13
4. Viðar Péturssop F.
5. Jónas Gunnlaugsson í.
8 voru skráðir, og 5 mættu.
30 km gangan hófst kl. 2
e.h. Hörð keppni varð á milld
Magnúsar S. og Halldórs
Matthíassonar A. Á fyrstu 15
km, þá var Magnús aðeins 2
sek á undan Halldóri, en eftir
það fór Siiglfirðingurinn að
auka bilið. Reynir Sveinsson
F. gefck vel og mjög jafnt
enda skaut hann AJkureyr-
ingnum aftur fyrir sig. Tveir
ísfirðingar stoppuðu í miðri
keppni og báru undir, þeir
Þröstur og Davíð, en sá síðar-
nefndi laufc ekki keppni.
Alls voru 17 skráðir, 13
hófu keppni og 9 lufcu henni.
Úrslit:
1. Magnús Eiríkss. S. 92,10
2. Reynir Sveinsson F. 96,55
3. Halldór Matthíass. A. 98,05
4. Kristján Guðm. í. 103,38
5. Þröstur Jóh. í. 104.37
6. Óskar Kárason og 7. Elías
Sveinsson
Auglýsing
um aðalskoöun
bifrelða
Aðalskoðun bifreiða á Isafirði og í Súða-
vík lýkur 3. júní n.k. Þeir sem ekki hafa
mætt til skoðunar fyrir þann tíma mega
búast við að bifreiðar þeirra verði teknar
úr umferð hvar sem til þeirra næst.
Bæjarfógetinn á Isafirði
Sýslumaðurinn í ísafjarðarsýslu
Q|£ ÍSAFJARÐARKAÖPSTAÐUR
Tilboð óskast
Tilboð óskast í niðurrif og fjarlægingu
húseignar Bæjarsjóðs Isafjarðar að
Hafnarstræti 1.
Miða skal við að niðurrifi verði lokið
1. júlí n.k.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri.
Isafirði, 7. maí 1976
Bæjarstjórinn á Isafirði
Til sölu
4. herb. íbúð að Fjarðarstræti 59 á 3. hæð.
Tilboð óskast
Upplýsingar gefur Valgeir Guðmundsson,
sími 3850
Byggingarfélag verkamanna
Einar Þorsteinsson
Umboðs- og heildverslun
Sími 7210 - Bolungarvík
ONKEL TUCA
BANANAR
Sending í hverri viku.
Dönsk epli
Heildsölubirgðir
Bókasafnið
ísafirði
Frá og með 1. júní verða útlán á þriðju-
dögum og fimmtudögum kl. 3 til 5, og á
laugardögum kl. 2 til 4.
Bókasafnið í Hnífsdal verður lokað í
sumar frá og með 1. júní n.k.
GRAFlKMYNDIR lánaðar út endur-
gjaldslaust.
TALBÆKUR (kassettur) lánaðar, sjón-
döprum og fötluðum.
Útboð
Heilsugæslustöð og sjúkrahús
á ísafirði
Tilboð óskast í að reisa og gera fokhelda
nýbyggingu heilsugæslustöðvar og sjúkra-
húss á Isafirði. Auk þess skal fullgera
húsið að utan og ganga frá lóð.
Verkinu skal að fullu lokið 15. des. 1978.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavík og hjá Sig-
urði Jóhannssyni, Landsbanka Islands,
Isafirði, gegn 20.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 8. júní
1976 kl. 11,00.
Innkaupasfofnun
ríkisins
Borgartúni 7, sími 26844
Þröstur.