Bjarmi - 01.09.2005, Page 11
þessu vali; að hlýöa Guði eða hlýða
honum ekki. í ofangreindu versi í
Matteusarguðspjalli talar Jesús til
fræðimanna og farísea síns tíma.
En farísear eru ekki útdautt fyrir-
bæri, heldur ganga þeir um á
íslandi í dag. Eða eins og Egill
nokkur Helgason sagði nýverið í
netpistli sínum: „Farísei er sá sem
ber sér á brjóst og segir - þakka
að ég er ekki eins og hinir. Af því
leiðir að sá sem segir að aðrir séu
farísear - hann er svolítill farísei
sjálfur." Auðvitað er þessi nálgun
skríbentsins hrokkinhærða svolítið
einföld en felur þó í sér sannleiks-
korn. En hvað sem öðru líður er
Ijóst að bæði fylgjendur Krists og
aðrir virðast hafa þetta „faríseagen"
í sér. Hræsnari þykist vera betri en
hann er í raun. Hann setur upp
ákveðna grímu þegar það á við
(t.d. í samfélagi trúaðra) en tekur
hana svo niður þegar hann telur sig
komast upp með það (t.d. á heimil-
inu eða í útlöndum).
Hér sitja raunar kristnir menn og
aðrir við sama borð þó hér sé
einkum fjallað um hræsni meðal
kristinna. Öll erum við syndarar og
getum gripið til grímunnar þó við
viljum síður láta kalla okkur farísea
og hræsnara. En mörgum kristnum
manninum gengur því miður oft á
tíðum afar illa að fara sjálfur eftir
því sem hann boðar og verðskuldar
því kannski nafnbótina óvinsælu.
Kannanir
í Bandaríkjunum má finna marga
fylgjendur Krists. Þar eru menn líka
duglegir að gera alls kyns kannanir
og m.a. hefur Gallup þar athugað
hvort marktækur munur sé á
kristnu fólki og öðrum þegar kemur
að verkum og viðhorfum til ýmissa
hluta. Niðurstöður slíkra athugana
hafa ítrekað sýnt að munurinn er
lítill sem enginn. Þetta hlýtur að
valda þeim sem vilja vera kristin
áhyggjum þar sem Biblían talar um
þær miklu breytingar sem verða á
lífi einstaklings þegar hann gefst
Kristi og heilagur andi tekur sér
bústað í honum. Sá frelsaði snýr
baki við sínu gamla lífi og verður
nýr maður. Gallup og fleiri könn-
unaraðilar virðast þó ekki koma
auga á þessar breytingar.
Lítum á nokkur svið þar sem
lítill munur virðist vera á kristnum
og samborgurum þeirra samkvæmt
áðurnefndum könnunum vestan-
hafs:
■ Kristið fólk tekur þátt í lífs-
gæðakapphlaupinu af sama
krafti og aðrir. Það leggur
áherslu á fín heimili, bíla og
önnur lífsgæði. Á sama tíma
berjast hundruð milljóna
manna viða um heim við að
fæða sig og fjölskyldu sína
með misgóðum árangri.
■ Skilnaðir meðal kristinna hjóna
eru jafnalgengir ef ekki al-
gengari en meðal þeirra sem
ekki telja sig kristna.
■ Þriðjungur kristinna telur að
kynlíf utan hjónabands geti
verið í lagi og 15% að fram-
hjáhald geti verið réttlætanlegt.
■ Kynþáttafordómar virðast
mjög algengir á meðal krist-
inna.
■ Kynferðisleg misnotkun og
heimilisofbeldi á sér stað á
heimili kristinna.
■ Að meðaltali gefur hver kirkju-
meðlimur aðeins um 4% af
tekjum sínum til kirkjunnar.
Það verður að teljast líklegt að
þeir kristnu sem misnota börnin sín
kynferðislega eru ekki að tala um
það í kirkjunni. Sumir kristnir kenna
jafnvel og prédika gegn þeim hlut-
um sem þeir svo sjálfir stunda í
leynum. Þetta er hræsni. í stað
þess að vera sannir og heilsteyptir í
trú sinni fara þeir í ólík hlutverk við
ólíkar aðstæður.
Það er þó rétt að undirstrika að
áðurnefndar niðurstöður eru frá
Bandaríkjunum og alls ekki víst að
svipaðar niðurstöður fengjust á
íslandi. Þó þarf ekki neinar kann-
anir til að sýna okkur að kristið fólk
um allan heim gerir hluti sem það
vildi síður gera og vildi síður að
aðrir vissu um. Hér má nefna
skattsvik, ólöglegt niðurhal á netinu
og ýmis önnur lagabrot, lygi, Ijótt
orðbragð, rógburð, ábyrgðarleysi í
kynferðismálum, sjálfselsku o.m.fl.
sem kristnir einstaklingar stunda
gegn betri vitund og án vitundar
annarra.
Að hræsna upp á náðina
Margir kristnir virðast bara nokkuð
sáttir við stöðu sína þrátt fyrir
hræsnina. Þeir lesa eitt í orðinu
(vita a.m.k. hvað þar stendur) en
þrjóta svo meðvitað gegn því.
Lúther lagði áherslu á náðina á
sínum tima en svo virðist sem
margir leggi of mikla áherslu á hina
ókeyþis og óverðskulduðu náð.
Það er svo auðvelt að syndga upp
á náðina. „Auðvitað er þetta rangt
af mér en ég á fyrirgefninguna
vísa“ gæti einhver sagt áður en
hann hræsnar meðvitað. Náðin er
jú vissulega hluti af fagnaðarerind-
inu - en á því eru fleiri hliðar. Sá
sem tekur við Kristi á að hefja nýtt
líf - snúa baki við sínu gamla lífi og
snúa sér að fyrirmyndinni Jesú
sem var allt annað en hræsnari.
Þessi viðsnúningur virðist gleymast
hjá mörgum sem telja sig kristna.
Þeir sýna sínar bestu hliðar þegar
það á við en brjóta svo vísvitandi
gegn vilja Guðs í leyni þegar þeir
komast upp með það án þess að
missa virðingu manna.
11