Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.09.2005, Page 22

Bjarmi - 01.09.2005, Page 22
FriðrikZimsen Hilmarsson Söngur hjartans Viðtal við Laufeyju Geirlaugsdóttur um nýútkominn geisladisk Laufey Guðríður Geirfaugsdóttir hefur nýlega sent frá sér geisla- disk með 13 söngvum. Eru það allt söngvar sem hún hefur sungið við ýmis tækifæri undanfarin ár, já, jafnvel frá barnæsku. Söngvar sem glatt hafa fjölmarga hlust- endur hennar á samkomum, í guðsþjónustum og við önnur tæki- færi, söngvar sem koma frá hlýju hjarta og eru bornir fram af ein- lægri trúarsannfæringu og von um að aðrir hjóti blessun af. Geisla- diskurinn ber nafnið Lofsöngur til þín og er gefinn út og honum dreift af Laufeyju sjálfri. / samtali við BJARMA ræðir Laufey um uppvöxtinn á Akranesi og í Reykjavík og tónlistina í iífi sinu. En hver er hún þessi geðþekka söngkona? Ég er fædd á Akranesi þar sem foreldrar mínir, Sveinbjörg Arnmundsdóttir og Geirlaugur Árnason, voru virk i starfi KFUM og KFUK. Þau voru bæði þaðan. Pabbi var mikið að spila tónlist þó það hafi ekki verið hans aðalstarf heldur rak hann rakarastofu. Mamma var heima við i fyrstu en síðar opnaði hún verslun á Akranesi. Við fluttum svo til Reykjavíkur þegar ég var á þriðja ári og þau voru áfram virk innan KFUM og KFUK og í kristni- boðsstarfinu. Pabbi spilaði meðal annars mjög oft á samkomum þessara félaga. Hann opnaði rakarastofu í Árbænum og mamma seldi snyrtivörur og fleira á rakara- stofu pabba. Þannig var líf okkar fyrstu árin í Reykjavík en svo kom „bítlatískan" og pabbi fór að vinna aðra vinnu með. Hann var þá orðinn organisti í Árbæjarkirkju og við það starfaði hann síðan til dauðadags 1981. Byrjaði ung að syngja Ég byrjaði mjög ung að syngja með honum - sat á hnjánum á honum heima þegar hann var að spila og þá sungum við meðal annars mikið Skógarmannalögin. Það eru söng- varnir sem sungnir eru í sumar- búðunum í Vatnaskógi. Eitt af þeim lögum er einmitt á geisladisknum, „Ó, vef mig vængjum þinum". Ég held að pabba hafi langað til að vera fyrst og fremst tónlistar- maður. Hann fór að læra á orgel 14 ára, ári eftir að móðir hans lést en var samt að miklu leyti sjálfmennt- aður í tónlist þó hann fengi leið- sögn og færi eitt ár í Tónlistarskól- ann í Reykjavík þar sem hann lærði hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni. Hann lærði líka kórstjórn hjá Róberti A. Ottóssyni. Hugur hans stóð til að geta lifað af tónlistinni en það var ekki um það að ræða i þá daga. Hann var líka með góða söngrödd og söng í kórum, stjórnaði líka mörgum slíkum. Mamma og pabbi sungu oft saman til dæmis á samkomum. Þá spiluðu þau bæði á gítar og sungu því mamma hafði líka mjög góða söngrödd. Tónlistaruppeldi í stórum systkinahópi Það var mikið spilað og sungið á heimilinu og áhrifin á okkur syst- kinin mikil en við erum sex. Þó fóru ekki öll okkar að læra tónlist strax. Ég og Inga systir min lærðum söng og hún einnig mest okkar á píanó. Ég lærði líka á píanó. Hin systkinin byrjuðu kannski en það varð ekki meira úr námi hjá þeim. Ekki fyrr en seinna að bræður mína langaði í tónlistarnám, Hörður lærði söng og Kári sótti pianótíma. Sumir tala um mikilvægi tónlist- aruppeldis. Ég held að það hafi ekki endilega verið úthugsað hjá foreldrum minum en það var svo eðlilegur hluti af daglegu lífi. Pabbi spilaði og við sungum með, hann kenndi okkur raddir og við byrjuð- um ung að syngja i kórum hjá * honum, eldri systkini mín sungu í Æskulýðskór KFUM og K meðan hann stjórnaði honum og ég söng ung með kirkjukórnum í Árbænum. Hann byrjaði að láta mig mjög unga koma fram og syngja bæði klassísk verk og lög úr KFUM og K. Ég var til dæmis bara níu ára þegar 22

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.