Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.09.2005, Síða 25

Bjarmi - 01.09.2005, Síða 25
 leið oft lengsta leið sem fólk getur farið. Við þurfum að tengja saman huga, hjarta og hönd. Það er oft talið til valdbeitingar að höfða til til- finninga, en ekki þegar höfðað er til skynseminnar. Hvers vegna? Við lifum í kvikmyndamenningu, þar er oft höfðað til tilfinninga - og að sjálfsögðu notaðar myndir. Við þurfum að höfða til tilfinninga fólks í helgihaldi, samkomum og boðun orðsins. Ef við höfðum ekki til til- finninga fólks er engra breytinga að vænta og engin eftirfylgd við Jesú á sér stað. Fólk þarf að reyna eitt- hvað nýtt. Við breytum engum, við breytum ekki einu sinni okkur sjálf- um. En Jesús getur breytt okkur og öðrum. Okkar er að búa í haginn fyrir hann. Verum þess vegna ekki hrædd við að nota tilfinningarnar. Getur þú nefnt dæmi? Við getum skoðað hvernig við höfðum til fólks. Hvað gerum við t.d. með lyktarskynið? Jesús var án efa ekki lyktarlaus. Hann lyktaði eflaust oft illa. Hann umgekkst úrhrök og snerti fólk. Hann fór inn þar sem nálykt var. Ég er ekki að segja að við eigum að fara að miðla einhverjum fýlum heldur að benda á að lífiö er líka lykt. Við getum notað góða lyktt.d. í boðun Fyrirtæki vaxa ef á meðal starfsmanna eru væntingar um að það gerist. Bæn um vöxt Guðs ríkis og væntin- gar sem af því spretta skipta sköpum. orðsins. Staðfest er að húsnæði selst betur ef þar lyktar af nýlöguðu kaffi og nýbökuðu brauði. Tökum við þetta með inn í helgihald og samkomur? Svangt fólk sem kemur inn í kirkju og finnur lykt af nýbökuðu brauði, skilur hungrið eftir lifandi brauði betur en aðrir. Austurkirkjan er mun duglegri en við við að höfða til þessara þátta og gefa fólki andlega reynslu og venjur til að byggja á. Og hvað var svo þrið/a atriðið? Það er eftirvæntingin, að vænta breytinga. Ekki breytinganna vegna heldur fagnaðarerindisins vegna. Okkur hættir alltaf til að staðna og sætta okkur við óbreytt ástand. Fólk sem biður og væntir lækningar er miklu líklegra til að verða heilt en það sem ekki gerir það. Þetta er staðfest af rannsóknum fræði- manna. Fyrirtæki vaxa ef á meðal starfsmanna eru væntingar um að það gerist. Bæn um vöxt Guðs ríkis og væntingar sem af því spretta skipta sköpum. Vöxtur kirkjunnar í Suður-Kóreu er vegna mikillar áherslu á bænina, bænastarf, bænasamkomur, bænafjöll, bæna- göngur og svo má áfram telja. Hvernig getum viö notað myndir og dæmi? Við notum myndir og dæmi til að mynda tengsl við fólk, til þess að úr verði samfélag. Jesús dó til þess að koma á samfélagi og sambandi við Guð. Hann kom til að koma því í lag. Skipulag, atriði og framsetn- ing skiptir meiru máli i gyðingdómi og islam en í kristinni trú. Við trúum ekki á kerfi heldur á lifandi persónu. Jesús er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Allir aðrir segja: Fylgdu minni kenningu, Jesús segir: Fylgdu mér! Hver er staða kirkjunnar í dag - hvað þarf þá að breytast? Kirkjan er að breytast. Hún hefur verið hvít en er að verða brún, hún hefur talað latínu og ensku en er að 25

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.