Nýja blaðið - 06.01.1927, Blaðsíða 1

Nýja blaðið - 06.01.1927, Blaðsíða 1
 NYJA BLAÐIÐ.^ 97 d éu I. árg. Siglufirði, Fimtudaginn 6. janúar 1927. 1. tbl. Ginningafíflin. Eg verð að segja það rjett eins og er, að ósvífnari ásökun heíi eg ekki oft heyrt slengt fram.an í al- menning en þá, er forsprakkar Jóns- túnsmanna ljetu sjer um munn fara á bæjarstjórnarfundinum sæla, sem haldinn var núna fyrir jólin. Peir sögðu það tvímælalaust, að undir- skriftaskjalið, sem rúmir 250 kjós- endur höfðu með eigin hendi skrif- að nöfn sín undir, væri að engu hafandi og ekkert mark á takandi sakir þess, að þessar sálir hefðu verið ginnlar til þess með blekking- um að skrifa þar á nöfn sín. Með öðrum orðum: Allir þessir rúml. 250 kjósendur, og þar á meðal meiri hluti gætnustu og göíugustu borgara bæjarins, eru kallaðir ginn- ingafífl — veifiskatar Sófúsar Arna- sonar, sem bar að mestu skjalið milli manna. Pað sem þessir heimsk- ingjar áttu að hafa látið ginnast á, og glapti þeim ráð og sýn, kváðu þeir hafa verið það, að Sófús átti að hafa „málað svo svart á vegg- inn“, eins og Jón Guðmundsswn, túneigandi, komst að orði, um auka- kostnað þann er verða mundi ef kirkjan yrði bygð á túni Jóns, að öllum blöskraði, allir trúðu og allir skrifuðu undir í krafti þeirrar út- málunar Sófúsar. Mikill cr þinn kraftur, Sófús minn! og skaði að þú skyldir ekki finna Jónstún-herrana líka, því sennilega eru ýmsir þeirra litlu vitrari en surnir, er undir skjal- ið skrifuðu, nje fastari í rásinni hvað skoðanir snertir á opinberum mál- um, nje ótalhlýðnari en margir þessara 250. Pað er nokkuð einkennileg máls- vörn hjá leiðandi mönnum, er þeir annað tveggja kalla allar varnir og og mótbárur andstæðinga sinna „vitleysu“ og „heimsku" eða „blekk- ingar" og jafnvel „lýgi“. Er þetta nú hyggileg aðferð til að vinna málstað sínum gagn? Nei, því fer fjarri! Allir, sem vilja vinna hug- sjónum sínum og skoðunum gagn í ræðu og riti og og hafa þroslca til að koma fram í drengilegri baráttu, fara ekki þannig að ráðí sínu. — Peir reyna að færa fram skynsam- leg rök fyrir sínum málstað, sem hvortveggja í senn, styrkir þeirra mál og veikir vörn andstæðinganna, og því betur tekst þetta alla jafna, sem menn eru kurteisari í garð sinna andstæðinga. Pað er sjálfsagt ekkert til, sem ber jafn greinilcgan vott um klaufalega frammistöðu og og rökþrqt eins ræðumanns einsog það, þegar hann hreytir úr sjer ill- yrðum í garð mótstöðumannanna, og lengst kemst hann í klunnaskapn- um, þegar hann grípur til þeirra örþrifáráða reiðra manna að bríxla andstæðing sínum um heimsku! vit- andi þó vel, oftastnær, að andstæð- ingurinn mundi standa honum fylli- lega á sporði, og enda verða með hærri einkunn, ef gáfnafar beggja væri lagt á óskeikula sálfræðislega* rannsóknarvog. Eru þessir og því- líkir forustumenn ekki til hinsverra fyrir þann málstað er þeir ljá fylgi sitt með þvílíkri framkomu? Getið þið hugsað ykkur nókkurt hlægilegra fyrirbrygei, en að sjá æstan ræðu- mann berja í borðið, sótrauðan af ráðaleysi og reiði, og kalla hispurs- laust andstæðinga sina heimskingja og blekkingamenn, án þess svo mik- ið sem gera tilraun til þess að finna orðum sínum stað? Ef slíkur klaufa- skapur og ánaháttur getur ekki leitt meðaumkvunarbros ffarn á varir á- heyrendanna, þá veit eg ekki hvað til þess þarf. En það er á allra vit- orði, að ekkert gerk einn foringja lítilmótlegri en einmitt það, þegar hann gerir sjálfan sig hlægilegan með fruntaskap og framÍFleypni. Ef mótstöðumaðurinn gerir sig beran að heimsku, þarf andmælandinn ekld að vera að eyða orðum sínurn og skarpleik til að lýsa því. Aheyr- endurnir eða lesendurnir finna það sjálfir kannske betur. Ekki er eg ræðumaður og eklti er eg líklegur til þess að gera mig að foringja eða leiðandi manni í þessum bæ, en þó ann eg [sjálfstæði rninu og sóma svo mikils, að eg kann því illa að rnenn, hvort sem þeir eru „háttvirtir bæjarfulltrúar“ eða ekki, kalli mig ginningafífl og heimskingja, þótt jeg skrifi nafn mitt undir það, sem jeg tel rjett og viturlegast ráðið, ef það heyrir undir mitt atkvæði. Egget tekið undir með Jóni Brandssyni og sagt: „Eg hefi aldrei þurft að láta aðra gefa mjer s^irinfæringu nje heldur hefi jeg látið aðra ginna mig til að skrifa nafn ’mitt undir það, sem eg hefi talið rángt“. Honum fór.st eitthvað þessu líkt orð, er hann hafði lesið „Frjettir og auglýsingar", er út ko nui eftir borgarafundinn. Og það fanst á, að þessi gamli hciðursmaður þóttist grátt leikinn, að vera talinn ginningafífl, þótt lrann skrifaði nafn sitt undir áskorun, er eftir lians sannfæringu var í alla staði rjettmæt og kurteislega orðuð. Ogsvoerfyrir þakkandi, að til eru í Siglufirði menn og konur, sem þykir nafn sitt og lieiður og sannfæring meira virði en svo, að þeir þoli það þykkulaust, að vera svífvirtur þótt þeir láti uppi skoðun sína og sann- færingu. Eg var einn af þessum „ginningarfíflum“ og tel mjer það vansalaust að vera í þeim hóp. En eg kann því illa að vera svívirtur fyrir það. En það kalla eg svívirð- ingu, frá bæjarfulltrúum, sem menn ættu að vænta af sæmilegar kurteisi, þegar svo er um mælt, að ekki sje takandi mark á þessum undirskrift- um, vegna þess annaðtveggja, að menn hafi verið gintir til að skrifa þar á nöfn sín með blekkingum, eða þá. að menn hafi skrifað undir af því, að þeim hafi verið sama um kirkjustæðið, — verið áhuga- lausir fyrir málinu. Eg endurtek það, að þetta kalla eg svívirðileg ummæli, og litilsvirðingu á hæsta stigi fyrir borgurum þeim, er undir skjalið rítuðu, og ekki síst, þegar þau koma frá þeim mönnum, sem fjöldi þessara sömu „ginningafífla" hafa áðu^ þokað upp i virðingar- stöðu með atkvæði sínu. Og þakk- irnar komu ekki vonum seinna.

x

Nýja blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja blaðið
https://timarit.is/publication/635

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.