Brautin


Brautin - 29.06.1928, Qupperneq 3

Brautin - 29.06.1928, Qupperneq 3
Ritstjórar: Sigurbjðrg Þorláksdóttir. Stmi 1385. Marta Einarsdóttir. Sfmi 571. Brautin. Útgefendur: Nokkrar konur í Reykjavík. Afgrciöslueímí: 491. 1. árgangur. Föstudaginn 29. júní 1928. 1. tðlublað. Ávarp. Háttvirtu konur! Við leyfum okkur hér með cið ávarpa ykkur og bera fram fyrir ykkur sameiginleg á- hugamál okkar. Við höfum oft fundið til þess livað konur þessa lands eru dreifðar og standa fjarri lwor annari, ekki aðeins hvað vegalengdir og strjálbygð landsins snertir, heldur líka að hugarþekkingu. Hið vana- lega afl, er flytur hugi manna saman, er ritmálið. Á þessu landi cr til mikill blaðakost- ur, en að mestu leyti er hann í höndum karlmanna. Kven- þjóðin hefir þar ekki nú nema eitt ársrit (Hlín), mán- aðarrit (19. júní) og Ljós- mæðrablað, sem kemnr út annanhvern mánuð, eða 6 sinnum á ári. Þetta er að visu nokkur bót, en þó vantar mik- ið á, að starfssvið kvenna njóti sin eða að áhrifa þeirra á hin sameiginlegu þjóðfélags- mál gœti sem vera skyldi. Nú viljum við reyna að bæta úr þessu með því að koma á fót vikublaði sem ræða megi i áhugamál ein- staklingsins, heimilanna og þjófíarinnar. Vifí þörfnumst stuðnings kvenna og karla til þessa. Ekki einasta til að kaupa blaðið, heldur tit að scnda hngsjónirnar og áhuga- málin úl um landið i blað- inu. Blaðinu liefir vcrið valið nafnifí BRAUTIN. Við vonum og óskum afí það vcrði til að ryðja okkur konum braut að sameiginlegu þroska- og þekk- ingarmarki. Við viljum mæt- ast á miðri braut með áhuga- mál okkar, áhuga- og nauð- synjamál þjóðarinnar. Við viljum vekja sameiginlega at- hygli þjöðarinnar á uppeldis- °g mentamálum og fá að heyra sem flestar raddir um þau stórmál. Við viljum ræða, og styðja cftir megni fram- gang samgöngumálanna, sem eru þungamiðja alls fram- faralífs, ekki síður á okkar afskekta landi en annarsstað- ar um heim. Meinum við i. d. að járnbrautarmálið, með uppgræddu engi öðru megin heiðar, en fjölmennasta bæ tnndsins hinumegin, sé eilt af þeim stórmálum, sem aldrei má þagna um fyr en fram- kvæmd fæst á. Alt vill Brautin flytja, sem álíst að vera landi og þjóð til heilla. Við höfum von um nokkuð af góðum starfskröftum við blaðið, en við þurfum meiri og fleiri. Brautin vill komast inn á hvert heimili. Hún vill vinna hug og hjörtu lands- manna. Hún vill flytja hug- næm og hjartfólgin mál og ræða þau með gætni og vin- semd. Vtgefendur. 3 árnbrautarmálið. Samgöngumálin eru hjá öll- um menningarþjóðum talin i röð hinna merkustu mála. Allar helstu þjóðir heimsins verja ógrynni fjár árlega til að auka og bæta samgöngur innan lands og við útlönd og horfa hvorki í fé eða erfiði ef þær sjá sér leik á borði, til að tengja mikil og frjósöm héruð, sem afskekt eru, við aðal sam- gögnumiðstöðvarnar, . þar sem því verður við komið. Þær vita af reyslunni að bættar samgöngur eru liætt við- skifti, aukin vchnegun, meiri samkeppnisrnaltur. Hingað til hafa íslendingar verið mjög eftirbátar annara þjóða um auknar og bættar samgöngur og verður vart met- ið það tjón, sem þjóðin hefir beðið vegna tómlætis og deyfð- ar i þessum málum. Þó hefir á síðari árum nokk- uð verið reynl að bæta úr þessu með auknum strandferðum, stofnun Eiinskipafélags íslands, vegalagningum i sveitum, brúm yfir ár o. s. frv. Og þó þetta sé enn á byrjunarstigi, eru miklar líkur fyrir að reynt verði að halda áfram á þessari braut. En einn landshluti er það, sem frámar öðrum hefir orðið út undan í samgöngumálum, og það er Suðurlandsundirlendið. Að visu hafa þar verið lagðir vegir og brýr yfir verstu árnar. En þessi landshluti er svo illa settur, að ómögulegt er að koma þar við skipaferðum vegna hafnleysis meðfram allri strand- lengjunni. En vegna ófærðar á vetrum yfir Hellisheiði, koma vegirnir ekki að góðum notuin, nema lítinn hluta árs. Hinn hlutann eru samgöng- ur mjög erfiðar og stundum al- gjörlega bannaðar vegna snjó- þyngsla og ófærðar. Þar sem hjer er um að ræða stærsta og mesta undirlendi á íslandi, er hjer úr miklu vanda- máli að ráða. Þvi það er augljóst mál, að nær algjör samgönguteppa lang- an tíma á hverju ári, hlýtur að hafa lamandi áhrif á alla af- komu þeirra bænda sem við slík kjör eiga að búa og valda þeim miklu tjóni og erfiðleikum, auk þess, sem það hindrar mjög afnot stórra og byggilegra svæða og veldur með því beinu þjóðartjóni. Það er því síst að furða þó margir menn hafi þegar fyrir löngu séð nauðsyn þess að bæta úr þessu og komið fram með þá uppástungu að járnbraut yrði lögð frá Reykjavik yfir Hellisheiði og austur að Ölfusá. Þetta inikla þjóðþrifamál er því lengi búið að vera á döfinni og margir menn léð því liðs- yrði sitt og stutt það með ráð- um og dáð. Meðal þeirra manna, sem á síðari árum hafa einkum bar- ist fyrir framgangi þess má nefna: Magnús Arnbjarnarson lögfræðing, Jón Þorláksson fyr- ver. ráðherra, Guðm. Björnson landlækni, Eirik Einarsson bankastjóra, Magnús Kristjáns- son ráðherra, Gunnar Sigurðs- son alþm., Magnús Guðinunds- son fyrv. ráðherra, Ágvist Helgason óðalsbónda og Geir G. Zoega vegamálastjóra. Starf þessara manna og ann- ara góðra járnbrautarvina hefir þegar borið þann árangur, að búið er að fá góða og nákvæma rannsókn á málinu, áætlun um kostnað hennar og val heppi- legustu legu (sjá skýrslu Sv. Möllers, járnbrautarverk- fræðings í Tímariti verkfr.fél. íslands 1924, 9. árg. 5. hefti). En þó baráttan fyrir járn- brautarmálinu hafi verið löng og ströng og mikið hafi þegar unnist á, þá á þó hér við, að betur má ef duga skal. Þörf brautarinnar verður brýnni með hverju ári og sókn- in þarf að harðna jafnt og þétt. Það mun því gleðja alla járn- brautarvini, að þegar hvað mest riður á góðum stuðningi, kem- ur málinu mikil og óvænt hjálp, þar sem ísl. konur ætla nú að fara að beita sér fyrir þessu máli og heita því stuðningi sin- um í fyrsta vikublaðinu, sem þær hafa ráðist i að gefa út. A það að vera einn þátturinn í því þjóðþrifastarfi þeirra að vinna að auknum og bættum samgöngum til sveitar og sjá- var viðsvegar á landinu. Og er það mest um vert, að þær hef j- ast fyrst handa þar sem þörfin er mest. Járnbrautarmálið er stærsta samgöngubótamálið, sem nú er á dagskrá ineð þjóð vorri. Það er ekki aðeins stórnauð- synlegt fyrir Suðurlandsundir- lendið, heldur einnig fyrir höf- uðborg landsins og nágrenni hennar. Það. er ekki ofmælt, að um fjórir tugir þúsnnda af öllum landsmönnum hafi beint gagn af þessari miklu samgöngu- bót, sem tengja á stærsta og voldugasta landbúnaðarsvæði Islands við bestu og fiitlkomn- ustu höfn á landinu. Það verður því tæpast tölum talið það tjón, sem þjóðin bakar sér með því að draga fram- kvæmdir i þessu máli áratug eftir áratug. Auk þess, sem það má teljast þjóðarminkun, aS láta heiðarspotta, sem auðvelt er að leggja braut yfir, loka nær algjðrlega inni mikinn hluta árs það landbúnaðarsvæði, sei* langmesta framtíðarmöguleika hefir að geyma, og sem lniið er að verja miljónum króna til að rækta og bæta. Mundi vart nokkur önnur menningarþjóð telja sig hafa ráð á slíkri vannotkun dýr- mætra landeigna. Baráttan fyrir járnbrautinni er því barátta fyrir þjóðarhag og þjóðarsóma. Hún er barátta fyrir því að gera framtíð is- lensku þjóðarinnar sem trygg- asta og öruggasta menningar- lega og efnalega. Það hlýtur því að vera ísl. konum til sóma, að þær vilja vinna að því að hraða fram- gangi þessa máls. Það er von min að starf þeirra beri góðan árangur og þær eigi eftir að lifa það, að mesta og frjósamasta undirlendi á land- inu verði Ieyst úr læðingi og fái að blómgast við töframátt bættra samgangna. Ingvar Sigurðsson. Þetta land verður ekki land hamingjunnar fyrir neinn af okkur, fyr en við gerum það land hamingjunnar fyrir alla. Thodore Roosvelt.

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/629

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.