Frjettir og auglýsingar - 16.10.1926, Qupperneq 1
FRJETTIR og AUGLÝSINGAR
119734
I. árg.
Siglut'irði, Laugardaginn 16. okt. 1926.
1. tbl.
Símfrjettir.
Frá London er símað, að búist
sje við, að Asquith afsali sjer leið-
sögu frjálslynda flokksins vegna
heilsubrests. Ovist hver verður eft-
irmaður hans.
Frá París er símað, að Chutillv-
höllin fræga, eign Alliance France,
hafi veríð rænd dýrmætum þjóðar-
minningum er sjeu 10 mil. gull-
franka virði.
Frá Berlín er símað, að fursta-
eignirnar sjeu til umræðu í þinginu;
hafa kommunistar gert feikna óspekt-
ir, rjeðust þeir á forseta þingsins .og
lenti í handalögmálum. Lögreglan
varð að skakka leikinn.
Frá Stokkhólmi er símað, að
kommúnistír hafi orðið uppvísir að
fyrirhugaðri byltingartilraun. Höfðu
þeir safnað saman byssum og skot-
færum, og var áform þejrra að taka
með vopnavaldi opinberar bygging-
ar í Stokkhólmi og öðrum bórgum.
Frá London er símað, að fulltrú-
ar þýskra og enskra iðnaðarfjelaga
haldi lokaðan fund í Romney. Er
giskað á, að þar sje rætt um þátt-
töku Englands í stálhringinn.
Símað frá Moskva, að Trotzky og
Sinovjef hafi verKI stefnt fyrir flokks-
dómstól vegna undirróðurs gegn
flokksstjórninni.
Frá Captown er símað, að 150
manns hafi farst þar af námu-
sprengingu.
Frá l.ondon er símað, að námu-
menn hafi hafnað miðlunartillög-
um Balwina. Fulltrúafundur námu-
manna krefst þess, að verkfall verði
hafið við öryggisvinnu í námunum,
og að kolainnfiutningur verði heptur.
Stjórn námumanna er andvíg kröf-
unum, og á að fara fram atkvæðis-
greiðsla um þær.
Innl. símfrjettir:
Mannfjöldi við síðuttu áramót
var 99,863 þar af í kaupstöðum
35,640, en í sveitum og sjávarþorp-
um 64,223. í árslok ll>24 var fólks-
fjöldi 98,370, fjölgun 1,493 eða 1,8
SIGLUFJARÐAR B f Ó
Sunnudaginn 17. okt. kl. 6;
Ríkharður Lj.ónshjarta
í 8 þáttum. — Sýnd í síðasta sinn.
Sunnudagskvöld kl. 9:
Vilti maðurinn
Spennandi mynd í 6 þáttum.
Aðalhlutverkið leikur; T O M M I X.
Húsið.verður hitað upp.
*
Bíó verður fyrst um sinn- aðeins á sunnudögum.
prc. íbúatala kaupstaðanna fjölgað
um 2 þúsund, en sýslanna fækkað
um 500. íbúatala kaupstaðanna er
þessi: Reykjavík 22,022, Akureyri
3,033, Hafnarfjörður 2,943, Vest-
ruannaeyjar 2,926, ísafjörður 2,224,
Siglufjörður (þar með talið Hjeðins-
fjörður, Siglunes og Dalir) 1535,
Seyðisfjörður 957.
Utan úr heimi.
Flug yfir Atlantshalið.
Franskur flugmaður, Fonck að
nafni, hefur í alt sumar ætlað sjer
að fljúga yfir Atlantshafið frá New-
York til Parísar. Ameriskir auðkýf-
ingar lögðu fram fje til fararinnar.
Rjett áður en leggja átti af stað,
fóru ameríkumennirnir að hugsa
um, að lítið vit væri íþvíaðhjálpa
Frakka til að fljúga yfir Atlantshaf-
ið, og láta svo frönsku þjóðina fá
allan heiðurinn. Ákváðu þeir nú,
að Byrd, pólflugmaðurinn, skyldi
fljúga í stað Foncks. Lenti nú alt
í háa rifrildi, og ekkert varð úr
fluginu í það skiftið.
Fonck og kostnaðarmenn farinn-
ar sættust þó aftur, og 20. sept.
ætlaði Fonck að leggja af stað.
Fjöldi fólks var samankominn á
flugvöllum New-Yorkborgar við
þetta hátíðlega tækifæri.
Fonck og fjelagar hans þrír fóru
nú upp í vjelina. Settist honck við
stýrið og setti vjelina i hreifingu.
Vjelin lyftist hægt frá jörðinni, en
eftir eina mínútu fjell hún til jarð-
ar og slcyftist kollhnis. Á næsta
augnabliki huldi eldblossi og kol-
svartur rcykjarmökkur vjelina. A-
horfendurnir húgðu alla flugmenn-
ina dauða, cn i því kom Fonck og
einn maður með honum stökkvandi
út úr reykjarmekkinum. Hinir tveir
fórust. Vjelin gereyðilagðist og varð
því e.kki meir úr þessari flugtilraun.
Orsökin er talin vera sú, að vjel-
in hafi verið of hlaðin.
Fonck ætlar ekki að gefast upp
við þetta, er þegar farið að smíða
nýja flugvjel og er ætlun hans sú,
að fljúga yfir Atlantshafið næsta vor.
Fellibylur á Floridaskaganum.
Seinni partinn í september kom
ákafur fellibylur á Floridaskaganum
er gereyðilagði tvær borgir. P'lest
öli hús hrundu, fólkið flúði
niður á ströndina til il i ); :