Samtíðin - 01.04.1954, Side 9

Samtíðin - 01.04.1954, Side 9
SAMTÍÐIN 5 Árni Tryggvason leikari HANN ER einn af yngri leikurum Leik- félags Reykjavikur og vekur nú mjög vax- andi athygli með liverju nýju hlutverki. Arni er Hríseyingur að uppruna og lék þar fyrsta hlutverk sitt kornungur í barna- slcóla. Næst kom hann fram á leiksvið i þrem sjónleikjum á vegum ungmennafé- lagsins i Borgarfirði eystra. Árið 1946 fluttist Árni til Reykjavikur og stundaði síðan um þriggja vetra skeið nám i Leik- skóla Lárusar Pálssonar. Fyrsta meira háttar hlutverk hans hjá L.R. var Leone i Volpone eftir Ben Jonson. Síðan fór Árni með hlutverk í ýmsum leikjum hjá L. R., m. a. í Elsku Rut, Segðu steininum og Dorothy eignast son, en „s!ó i gegn“ með túlkun sinni í Svale i ÆvLitýri á gönguför í fyrravetur. Nýlega vai n Árni mikinn leiksigur sem Tarben í hudðasýningu L.R. á Hviklynd ^ konunni eftir Holb rg, og næstu daga og væntanlega vikur er, þeg- ar þetta er ritað, áformaö, að Árni komi leikhúsgestum i gott skap sem Frænka Charleys í hinum heimsfræga, samnefnda gleðileik. íslenzkt leiksvið hefur eignazt nýjan gamanleikara. Skopmynd af vinnuhjúunum (Árna Tryggvasyni og Elínu Ingvarsdóttur) í Hviklyndu konunni. Sviðsmynd úr Æv- intýri á gönguför með Svale (Árna Tryggvasyni) í miðið.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.