Samtíðin - 01.04.1954, Qupperneq 12
8
SAMTÍÐIN
v.w.v.v.v.v.v.v //. yrein vv.w.v.v.v.v.v.
KJÖRORÐ FRÆGRA IUAIMIMA
lAn Yntantf,
lieimsfrægur, kínverskur heimspek-
ingur og rithöfundur velur þessi oið
eftir MENCIUS (372—289 f. Krh.).
„Mikill maður er sá, sem ekki glatar
barnshjarta sínu“.
Greinargerð:
NCTlMAMAÐURINN tekur lífið allt
of hátíðlega, og af því að hann er of
alvarlegur, er heimur hans fullur af
mæðusemdum. Menn ættu aldrei að
gleyma mikilvægi gamanseminnar.
Skilningur á gamansemi gerbreytir
viðhorfi okkar til alls menningar-
lífs.
Versti gallinn á einræðisherrum
virðist mér skortur þeirra á kímni-
gáfu. Einræðisherrar eru alltaf svo
liátíðlegir eða valdsmannlegir eða
reiðir á svipinn. Forsetar lýðræðis-
þjóða brosa, og fólki geðjast vel
að því. Þeir kunna að njóta hvíldar
og hlæja að góðri skopsögu. Einræð-
isherrann er hins vegar svo uppbelgd-
ur af mjkilvægi sjálfs sín, að hann
glatar við það öllum hæfileikum til
að njóta gamans og þar með skiln-
ingnum á öllu jafnvægi í tilvcrunni.
Þannig verða menn ofstækisfullir, og
þá er skollinn laus.
Það er eitthvað hreinsandi í hlátri
— bæði hvað einstaklinga og þjóðir
snertir. Ef menn skilja gamansemi,
liafa þeir lykilinn að góðum skilningí,
skýrri og einfaldri hugsun, rósemi
hugarins og menningarlegu viðhorfi
til heimsins.
♦ Það er sagt: ♦
að tildurrófa sé sú, sem er ánægð
með það, sem hún á, meðan hún
veit, að engin önnur á það sams.
♦
að ekkja sé kona, sem ekki sér frain-
ar neina galla í fari mannsins sins
sáluga.
♦
að bölsýnismaður sé sá, sem alltaf
sér eitthvað athugavert við góð-
vild annarra.
♦
að stjórnkænska sé í því fólgin, að
maður læðir sjónarmiðum sínum
inn hjá öðrum, án þess að þeir
verði þess varir.
♦
að tízka verði úrelt, jafnskjótt og
allur þorri fólks hefur aðhyllzt
hana.
7. STAFAGÁTA
X
X X
XXX
X X X X
X X X X X
X X X X X X
X X X X X X X
xxxxxxxx
Setjið hókstafi í stað X-anna,
þannig að út komi: 1 lína bókstafs-
heiti, 2. I. tjón, 3. 1. málmur, 4. 1.
frumhlaup, 5. 1. láta af hendi, 6. I.
hræðslan, 7. 1. flík, 8. 1. veikindi. —
Sé lesið niður eftir, mynda fremstu
stafir hverrar línu sjúkdómsheiti.
Ráðningin er á bls. 29.