Samtíðin - 01.03.1955, Blaðsíða 27

Samtíðin - 01.03.1955, Blaðsíða 27
SAMTÍÐIN 23 hæfileiki þess til að gera allt einfalt, lipurt og létt. Davíð hafði með fyrstu bók sinni skapað nýjan kveð- skaparskóla á Islandi, og enda þótt þroski skáldsins ykist í seinni verk- um, voru fyrstu kvæðin fullburða og laus við viðvaningsháttinn, sem löngum hefur einkennt listrænar frumsmíðar. Því hefur meira að segja oft verið haldið fram, að eng- in af seinni ljóðabókum skáldsins hafi skyggt á Svartar fjaðrir. Það verður nokkur mælikvarði á smekk unga fólksins í dag, hvernig það bregzt við þessari 6. útgáfu Svartra fjaðra. Við, sem vorum að vaxa úr grasi 1919, drukkum þessi kvæði í okkur eins og svaladrykk á heitum degi, skynjuðum tilveruna frá nýju sjónarmiði og urðum skáld- lega innrætt, þótt flestum væri meinað að prjóna hendingar með stuðlum og höfuðstöfum. Síðan hef- ur margt breytzt á Islandi. Útvarp- ið hefur tekið af fólki það ómak að lesa upphátt á kvöldvökum. Kvik- myndir, alls konar tæknihugleið- ingar og dansleikir allflest kvöld ársins hafa lagt ofboðslegt hald á mannlegan áhuga og þann tíma, sem ungt fólk varði áður til þess að auðga anda sinn. Ljóðmenntir eiga nú hvorki miklu né almennu fylgi að fagna á íslandi, og þær hús- freyjur munu teljandi, sem missa hálft vit sitt við útkomu snjalls VÖNDUÐ FATAEFNI ávallt fyrirliggjandi, einnig kambgarn í samkvœmisföt. Hagstœtt verð. ÞORGILS þorgilsson, klæðskeri Hafnarstræti 21 uppi. Sími 82276. Hótel Skjaldbreið Elsta fjistihús höfuðstaðarins KIRKJUSTRÆTI B SÍMAR: 3549, 65BB Athugið Tökum að okkur: Rennismíði, logsuðu og rafsuðu. Hvers konar viðgerðir, þar á meðal bílaviðgerðir. Einnig alla nýsmíði. VcliSiniðjaii \cisli ln(. Jón Sveinbjörnsson Laugaveg 159, Reykjavík, Sími 6795.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.