Samtíðin - 01.06.1962, Blaðsíða 9
SAMTÍÐIN
5
v ÁSTAGRÍN v
Maður nokkur hugsaði svo mikið um
velferð konu sinnar, að hann leigði
leynilögreglumann til að fglgjast ná-
kveemlega með ástæðunum fyrir henni.
»Spilar konan þín upp á peninga?“
„Nei, ekki hún, en bara þeir, sem hún
spilar við.“
Dauðþreyttur ferðamaður lagðist til
hvíldar í liótelherbergi. Skömmu seinna
kom roskin kona æðandi inn til hans.
„Ó, afsakið, ég hef víst farið herbergja
villt!“ kallaði konan.
„Og ekki nóg með það, heldur komið
þér f,0 árum of seint!" anzaði maðurinn.
Hjón, sem alltaf voru að rífast, fóru
framhjá tjörn, þar sem gæsalijón voru
að spóka sig í ástarfullsælu.
.iAf hverju skyldi giftu fólki ekki geta
komið svona vel saman?“ sagði konan.
Maðurinn svaraði engu.
Sama kvöld fóru hjónin aftur fram-
hjá tjörninni og sáu aftur gæsahjón í
’niklu ástalífi.
>,Segi ég það enn, að miklu eru fugl-
vrnir vitrari en við í þessum efnum,“
svgði konan.
„Það segirðu satt,“ anzaði maður
hennar eftir nokkra þögn. „Ég sé, að
karlfuglinn er bara búinn að fá sér mjja
Mðan áðan.“
Fokvond ung stúlka sagði við kaup-
Vfann sinn:
„Þetta skal verða í síðasta sinn, sem
eQ stíg fæti inn í búðina yðar. Konan yð-
ar sendi mér áðan tóninn yfir búðar-
borðið og sagði, svo að allir heyrðu, að
e9 vasri hvorki meira né minna en „ósvíf-
ln 9ötudrós.“
„Blessaðar takið yður það ekki nærri.
Aldrei kallar hún mig annað en drykkju-
svín, og þó eru meir en 15 ár, síðan ég
hætti að drekka,“ anzaði kaupmaður.
Kaupsýslumáður fékk nýlega svolát-
andi keðjubréf:
Háttvirti herra.
Þetta bréf er skrifað til að veita þreyll-
um og áhyggjufullum athafnamönnum
hvíld og hamingju. Skrifið það upp i 5
eintökum og sendið konuna yðar með
það til 5 stéttarbræðra yðar. Þegar röð-
in kemur svo að yður, megið þér eiga
von á 15.635 eiginkonum.
E n g ætið þ e s s a ð r j úf a ekki
k e ð j u n a. Einn maður gerði það og
fékk konu sína endursenda!
Ibrauma RÁÐNINGAR
• ÁBREIÐA. Það táknar aukna vel-
gengni og virðingu að dreyma ullará-
breiðu.
• KULDI. Það er yfiriéitt fyrir
auknum vinsældum, ef þig dreymir, að
þér sé kalt.
• LÆKNIR. Venjulega boðar það
eitthvað óheillavænlegt að drevma lækni.
Sjúkum er það þó fyrir bata.
• RUS5L. Það er venjulega fyrir-
boði auðs eða mildls happs, ef þig dreym-
ir rusl eða sorpliaug.
• HRÓS. Það boðar skammir og
ávítur úr hörðustu átt, ef þig dreymir,
að þér sé hrósað fyrir eitthvað.
Við erum með á nótunum
Hljómplötur og rnúsikvörur
Afgreiðum pantanir um land allt.
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur,
Vesturveri, Reykjavík. — Sími 11315.