Bæjarpósturinn - 25.02.1925, Side 2
bÆJARPOSTURINN
Frá Stokkhólmi: Branting for- |
ssetisráðherra er dáinn.
Hryllilegt slys enn.
A sunnudagskvöldið kl. 10 sást
úr Grindavík skip gefa neyðar-
merki. Rak það á flúð og stóð
þar. Enginn maður sást um borð,
en ljós græn og rauð. Skipið
losnaði kl. 11, en stóð aftur
skömmu síðar og lagðist á hlið-
ina og var bersýnilega sjór í því.
Ennþá voru öll Ijós í því unz sjór
gekk yfir það. Menn sáu skipið til
kl. 2 um nóttina. Daginn eftirvar
það alveg horfið. Jveir bjarg-
hringsbátar fundnir ómerktir. Nán-
ar á morgup.
- '....
H. f. Herðobreið.
Allir hluthafar, er ekki haía vitj-
að hlutabréfa sinna eða greitt þau
að fullu, eru alvarlega ámintir um
að gera það nú þegar eða í síð-
asta lagi fyrir 10. n. m., því vegna
ársfundar félagsins ber brýna nauð-
sýn til að þetta farist ekki fyrir.
Eru menn í þessu efni beðnir að
snúa sér til gjaldkera félagsins,
herra Einars Blandon sýsluskrif-
ara.
Prentsm. Austurlands