Bækur og menn - 01.12.1936, Page 4
4
BÆKUR OG MENN~
BÆKII
í haust hefir komið út fjöldi ágætra bóka, sem gaman er að
eiga og hentugar eru til jólagjafa og annara tækifærisgjafa.
Frá San Michele til Parísar.
Eftir hinn heimsfræga og vinsæla rithöfund Axel Munthe. — Ljómandi
falleg og skemtileg bók. Fæst í skinnbandi og fallegu og sterku shirt-
Axel Munthe.
ingsbandi.
GOTT LAND.
Höfundur þessarár bókar, konan Pearl S. Buck, hefir skrifað allmargar bækur, sem
flestar gerast í Kína. Um leið og' þær eru atburðaríkar skáldsögur, sem halda lesand-
anum hugfangnum, eru þær fróðleg og sönn lýsing á háttum og þjóðlífi Kinverja.
GOTT LAND er talin best þessara bóka.
VIRKIR DAGAR.
Guðm. Hagalín hefir hjer fæi't -í stílinn æfisögu íslensks sjómanns, Sæmundar Sæ-
mundssonar skipstjóra. Mun við lestur þessarar bólcar. rifjast upp margt, sem drifið
hefir á daga íslenskra alþýðumanna og gaman er að minnast.
ILMUR DAGANNA.
Eftir Guðm. Daníelsson frá Guttormshaga. Þetta er að nokkru leyti framhald sögunn-
ar Bræðurnir í Grashaga. Bókin er skemtileg aflestrar og af mörgum talin betri en
fyrri bókin, sem fjekk mjög einróma dóma.
RÓBINSON KRÚSÓÍE.
Allir hafa einhverntíma heyrt um Robinson Krúsóe og æfintýrin, sem hann rataðí í.
Viðburðirnir eru spennandi, en ekkert ljótt. Þetta er ný útgáfa með nýjum og falleg-
um myndum.
Pearl S. Buck.
Af eldii bókum má benda á neðantaldar bækur til jóla- og tækifærisgjafa:
Ljóðasafn Guðm. Guðmundssonar — Ljóð E. H. Kvaran — Ljóðmæli Bjargar C. Þorláksson — Fagra veröld
Tómasar Guðmundssonar — íslensk úrvalsljóð I—III, — Sjálfstætt fólk H. K. Laxness — Silju eftir Sillanpaa.
Af barnabókum og unglingabókum er rjett að benda á þessar ’til jólagjafa:
Kátir krakkar — Karl litli — Heiða — Seytján æfintýri og Þrjátíu æfintýri úr Þjóðsögum Jóns Arnasonar
. , —T!
I lofti eftir Alexander Jóhannesson. — Afram — Bernskan og Slceljar eftir Sigurbj. Sveinsson — Lesbókin.