Bændablaðið - 14.04.1937, Side 1

Bændablaðið - 14.04.1937, Side 1
BÆNDABLAÐIÐ I. ÁRG. Akureyri, miðvikud. 14. ap.ríl 1937. 1. TBL. Fylgt úr hlaði. Síðan Bændaflokkurinn var stofnaður hér í Eyjafirði hafa á- valt verið uppi raddir um það, meðal flokksmanna, að nauðsyn bæri til þess, að flokkurinn eign- aðist blað hér norðanlands. Á síðasta aðalfundi Bænda- ilokksfélags Eyjafjarðar var stjórninni falið, að taka til rann- sóknar alla aðstöðu og möguleika flokksins til að koma þessu sem fyrst í framkvæmd. Um þetta hefir því stjórnin leitað vilja og álits flokksmanna, ekki aðeins hér í Eyjafirði, heldur og einnig í nærsýslunum, og hafa undirtektir manna einróma verið þessa mjög fýsandi. Það er því að tilhlutun fjöl- margra áhugamanna Bændaflokks- ins víðsvegar um Norðlendinga- fjórðung að þetta nýja blað flokksins — Bændablaðið — kem- ur nú fyrir almenningssjónir. Að landsmálum vinnur Bænda- blaðið samkvæmt stefnuskrá Bændaflokksins; er mönnum hún svo kunn af blaði flokksins — Framsókn —, störfum þingmanna fiokksins á Alþingi, og landsmála- fundum hans, út um land, að ó- þarfi er að lýsa henni hér. Eins og nafn blaðsins ber með sér, er því fyrst og fremst ætlað, að vinna að velferðarmálum at- vinnuveganna og þá fyrst og fremst landbúnaðarins. Bændaflokknum er það ljóst, að öll afkoma íslensku þjóðarinn- ar veltur á atvinnuvegunum. Þess vegna vill hann leggja megin- áherslu á, að atvinnuvegirnir til lands og sjávar séu svo traustlega undirbygðir, að ekki rótist, þó að eitthvað bjáti á. Ef grundvöllurinn er traustur, er von um að byggingin standi, en sé grundvöllurinn aftur á móti ó- traustur, er byggingunni hætt við hruni. Eins og bændum er nauðsynlegt að hafa samtök um sín búnaðar-, verslunar- og iðnaðarmál, eins er þeim ekki ’%íður nauðsynlegt að hafa samtök um stjórnmálin, eink- um nú orðið, þegar ríkisvaldið vill grípa sem mest inn í athafnalíf einstaklingsins. Nú má heita svo, að áhrifa bænda gæti lítið í löggjaíarstarfi þjóðarinnar, sem einkum stafar af því, hve fáir bændur voru búnir að átta sig á því við síðustu kosn- ingar, hversu mikil nauðsyn það væri, að þeir mynduðu sjáliir sterkan þingflokk, til sóknar og varnar, í staðinn fyrir að standa tvístraðir og skifta sér milli kaup- staðaflokkanna, þar sem hálauna- mennirnir ráða mestu. Það má nú vænta þess, að augu bænda verði farin að opnast fyrir því, þegar til næstu kosninga kemur, hverju máttur samtak- anna fær áorkað í þessu efni, og mun Bændabl. gera sér alt far um að vinna að því, að svomegiverða. Meðal annars mun því blaðið leggja mikla áherslu á eftirfar- andi atriði: 1. Að efla og styðja einhuga öfl- ugan Bændaflokk, er standi á eigin fótum, svo bændur fái á þann hátt fullkomna aðstöðu til að taka virkan þátt í flutningi og afgreiðslu eigin mála á op- inberum vettvangi, en treysti ekki um of á föðurlega forsjón hálaunamanna kaupstaðanna eða ríkisstjórnarinnar. 2. Að bændur velji sína alþingis- fulltrúa úr sinni eigin stétt, þegar því verður við komið, og leggi áherslu á að senda þang- að þróttmikla og sjálfstæða menn, sem ekki þurfa að standa upp við aðra þegar þeir koma á mannamót. 3. Að bændur hafi meira eftirlit en verið hefir með þeim mönn- um, er þeir fela sín þýðingar- mest’u trúnaðarstörf og draga á þann hátt úr áföllum þeim, er þeir oft og einatt verða fyrir vegna ófullnægjandi eftirlits. 4. Að leita samvinnu góðra manna, utan bændastéttar, sem hafa sýnt það í verkinu, að þeir kunni að meta réttilega störf sveitafólksins og unna land- búnaðinum fyllsta réttlætis. Hvernig blaðinu tekst að leysa þessi verkefni, er að framan getur og önnur þau, sem fyrir liggja, er mest undir yður sjálfum lcomið, bændur góðir! Að svo mæltu þakka ég öllum þeim mönnum, sem af velvild og áhuga hafa veitt blaðinu fjárhags- legan stuðning og gert því á þann hátt fært að hefja nú göngu sína með sól og sumri. 14. apríl 1931 -1937 I. í dag eru liðin 6 ár síðan Tiryggvi Þórhallsson rauf Alþingi íslend- inga 1931. t Ástæðurnar sem lágu til þess þingrofs eru mönnum enn í fersku minni. — Þá stóð baráttan um kjördæmamálið sem hæst. Kaup- staðaflokkarnir tveir höfðu sam- einast í kröfunni um að ríra áhrif sveitanna á þingi þjóðarinnar. Þeir vildu ekki taka tillit til erfiðleika dreifbýlisins og þeirrar aðstöðu, sem það skapar fólkinu í félags- málum. Þeir vildu láta höfðatöl- una eina ráða, hvar sem fólkið bjó í landinu. Til að koma í veg fyrir þessar ráðagerðir kaupstaðaflokk- anna var þingrofið 14. apríl 1931. Það var svar Framsóknarflokksins við þeim, til að verja réttindi sveitanna. II. Nú er talið að annað þingi'of standi fyrir dyrum. Ennþá er Framsóknarmaður í forsætisráð- herrastóli. Hann á að taka ákvörð- un um það hvort nú verður rofið þing. En hverjar orsakir liggja til þess þingrofs? Stjórnarflokkarnir segja, að það sé ágreiningur um Kveldúlfsmálið. Sósíalistar krefj- ast þess að Kveldúlfur sé gerður upp. Framsóknarflokkurinn neitar að verða við þeirri kröfu. En hverskonar fyrirtæki er Kveldúlfur? Dagblað Framsóknarfl. hefir gef- ið á stjórn hans svofelda lýsingu: „Mikil laun, oft fyrir enga vinnu, vaxtalaus lán til að eignast dýr- ustu íbúðir í bænum, og svo að segja alt, œtt og óætt, sem þarf í heimilið.“ Þannig nota forstjórarn- ir þetta fyrirtæki. Og Jónas Jóns- son segir: „Eg þekki engan heiðar- legan eða óspiltan mann, sem læt- ur sér koma til hugar annað en skip og eignir Kveldúlfs verði að fá aðra húsbœndur og aðra stjórn.“ Það er til að bjarga þessu fyrir- tæki, til að halda því undir sömu stjórn og það hefir nú, sem þingið verður rofið, að sögn stjórnar- flokkanna. 1931 var þingið rofið til varnar pólitísku áhrifavaldi sveitanna. — Nú verður það rofið til að bjarga Kveldúlfi frá gjaldþroti. þessum 6 árum hafa líka orðið rniklar breytingar á Framsóknai’- flokknum. 1931 voru bændurnir í meirihluta í þingflokki hans. Hagur sveitanna, völd þeirra og virðing var þeirra höfuðsjónarmið. Nú hafa hinir bæjarradikölu haft völdin í Framsóknarfl. í rúmlega þrjú ár. Alla þá tíð hafa þeir geng- ið erindi sósíalista, verið þeirra skósveinar og þeir hafa farið þannig með sín völd, að þeir verða nú að leika þann skollaleik í Kveldúlfsmálinu, sem orðinn er lýðum ljós. Fyrir hörku sósíalista verður Framsóknarfl. að súpa þann beiska bikar að rjúfa þing og stofna til nýrra kosninga, til varn- ax því fyrirtæki, sem hann hefir . ofsótt og svívirt um langt árabil. Samkvæmt kröfu sósíalista verður hann að fórna heiðarleik sínum og virðingu á altari Kveldúlfsbræðra, eins og J. J. mundi orða það, ef um andstæðinga hans væri að ræða. Fyrir svo ólíklega rás við- burðanna, gefst þjóðinni líklega tækifæri til að ganga til kosninga nú í vor. III. Þó að fyrverandi samherja Framsóknai-flokksins, sem stóðu í fylkingum Tryggva Þórhallssonar 14. apríl 1931, taki það sárt hve langt sá flokkur er nú leiddur, þýðir ekki um það að sakast. Þrátt fyrir þau grimmu örlög hans mun Bændaflokkurinn ekki láta merkið falla, né missa sjónar á því tak- marki, sem honum er sett. Hann mun berjast sem heilbrigður, ó- háður séttarflokkur bænda, sem á að vera þeim öflug stoð í hinni hörðu lífsbaráttu á þessum tímum. stéttarsamtakanna. Það er skemtileg tilviljun fyrir • Bændaflokkinn að þetta málgagn hans — Bændablaðið — hefur göngu sína einmitt í dag — á sex ára afmæli þingrofsins. Sá atburð- ur er svo merkur í pólitískri sögu íslenzkrar bændastéttar, að hans mun lengi minnst. Hann mun jafn- an kendur við þann mann, sem með festu og framsýni hélt þá á málum bændastéttarinnar, varði hin pólitísku réttindi sveitanna og lét á sér brjóta þegar mest á reið. Það er einmitt í anda hans, sem Bændablaðið vill vinna. Þeir, sem að því standa hafa margs að minn- ast frá samvinnunni við Tryggva Þórhallsson, og í minningu um hans djörfu átök og drengilega starf ganga þeir vonglaðir út í þá baráttu, sem fyrir höndum er. Fyrir hönd Bændaflokksins í Eyjafirði. Stefán Stefánsson, Varðgjá. Þetta eru ólík sjónarmið, en á > íT/v N D G u C i\ A 2 /7n! ,m 142456

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/652

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.