Bændablaðið - 14.04.1937, Page 3
14. apríl 1937
BÆNDABLAÐIÐ
Framsóknarflokkurinn sigrar sjálfan sig.
Deftlunni um Búnaðarfélag Islands lýlt-
ur með fullum ósigri Tímaliðsíns.
Einni af clslu og merkustu slofnunum
þjóðarinnar bjargað frú niðurlægingu
og vansœmd.
Blöð Tíraamanna hafa öðru-
hvoru undanfarið verið að
flytja fregnir um sigra í sambandi
við árásina á frelsi Búnaðarfélags-
ins. Er því rétt, að rekja tilefni og
markmið herferðarinnar g'egn B. í.
Fyrir síðustu kosningar, þegar
séð var, að mikill hluti af forystu-
mönnum búnaðarfélaganna, með
Tryggva Þórhallsson í fararbroddi,
höfðu yfirgefið Framsóknarflokk-
inn, byrjaði Hriflu-Jónas að skrifa
um „óstjórn og óreiðu“ í Búnað-
arfélagi íslands, sem hvorki hann
né aðrir höfðu komið auga á, alt
til þess tíma.
Jafnframt reyndi hann að vekja
tortryggni gegn þeim bændum,
sem sæti áttu á Búnaðarþingi,
kallaði þá þreklausa og líklega til
að verja vesöld félagsins til hins
ítrasta o. s. frv. (Tíminn 5. febr.
1935). Þegar sakarefni hafði þann-
ig verið búið til á hendur Búnað-
arþingi og starfsmönnum félagsins,
var látið til skarar skríða gegn fé-
laginu með samþykt I. kafla jarð-
ræktarlaganna á Alþingi 1936.
Markmið þessarar lagasetning-
ar var augljóst Það var, að
hrifsa yfirráðin yfir félaginu úr
höndum Búnaðarþings og bænda
og fá þau í hendur landbúnaðar-
ráðherra og núverandi búnaðar-
málastjóra, sem eins og kunnugt
er, má telja verkfæri í höndum
ráðherrans. Jafnframt átti að auð-
mýkja Búnaðarfélagið með því að
lögfesta í jarðræktarlögunum nýtt
skipulag fyrir félagið, þannig að
bændur eða Búnaðarþing gætu
þar engu um þokað, hversu illa
sem hið nýja skipulag kynni að
reynast. Þegar þessu markmiði
var náð, var síðan auðgert að gera
félagið að sannkallaðri gróðrarstíu
fyrir málalið Framsóknarflokksins.
Nú hefir þessu máli verið ráðið
til lykta þannig, að Tímaliðið hef-
ir orðið að slíðra vopnin. Þær von-
ir, sem flokkurinn hafði gert sér í
þessu máli, eru að engu orðnar,
svo ef um sigur getur verið að
ræða, þá er hann sá, að flokkurinn
hefir sigrast á sínum illu hvötum
og tilhneigingum og má að sönnu
telja slíkt vel farið.
Aukabúnaðarþinglð.
Með slíku offorsi var mál þetta
upp tekið af þeim Tímamönnum,
að ráðherra flokksins krafðist
þess, að kvatt yrði tafarlaust til
aukabúnaðarþings. Var látið að
þeirri ósk ráðherrans, þar sem
hann bauðst til að greiða allan
kostnað, sem þetta tiltæki hefði í
för með sér, úr ríkissjóði.
Árangurinn af þessu þinghaldi
varð þó allur annar en við hafði
verið búist. Þrátt fyrir loforð og
’hótanir reyndust bændurnir á
Búnaðarþingi þrekmeiri en Tíma-
liðið hafði gert ráð fyrir. Þeir
réttu að vísu fram höndina til
samvinnu og samkomulags, en
höfnuðu allri nauðung.
Fyrir hönd bændastéttarinnar
kröfðust þeir félagsfrelsis og þess
að Búnaðarfélag íslands yrði ekki
gert að bitbeini pólitískra loddara.
Þessa afstöðu sína til jarðrækt-
arlaganna lögðu þeir síðan rólegir
undir dóm bændanna sjálfra.
Við þessa ákveðnu og djarf-
mannlegu framkomu Búnaðar-
þings kom hik á stjórnarliðið. Öll-
um var augljóst, að boginn hafði
verið spentur of hátt og virðingu
bændastéttarinnar misboðið*
í fátinu gleymdust allar hótan-
irnar. Búnaðarfélagið fór áfram
með framkvæmd jarðræktarlag-
anna, eins og ekkert hefði í skor-
ist, en snúist var að því að bjarga
því sem bjargað varð.
Fjármálaráðherra, búnaðarmála-
stjóri og allir sendlarnir þustu um
landið þvert og endilangt, til að
þvinga flokksmenn sína til að
standa með flokknum í þessu máli
og létu margir til leiðast þó sár-
nauðugir væru. Af 7500 meðlim-
um búnaðarsambandanna fengust
rúmlega 2000 bændur til að ljá
þessu máli fylgi.
Málið lekifl upp
«ð ný)a.
Á Búnaðarþinginu nú í vetur
var skipuð nefnd til að athuga
þær óskir og ályktanir, sem gerðar
höfðu verið í samb. við þetta mál
á fundum hreppabún.félaganna.
Var nú allur annar hugur í full-
trúum Framsóknarflokksins á
Búnaðarþingi en verið hafði í
haust, og unnu þeir að því af al~
hug að finna þá lausn deilumál-
anna, sem allir gætu við unað og
Búnaðarþingi væri vansæmdar-
laust að samþykkja. Má sérstak-
lega tilnefna Jón Hannesson í
Deildartungu. Bar framkoma hans
vott um mikla velvild til Bún-
aðarfélagsins og á hann án efa
drýgstan þátt í því að Framsókn-
arflokkurinn félst á það samkomu-
lag, sem gert var. Rétt er og að
Tlllðgur melrlhlutans
á aukabúnaðarþingi i haust:
2. GREIN.
Búnaðarfélag íslands hefir á hendi
nmsjón með framkvæmd þeirra ræktunar-
mála, sem lán eða styrkur er veittur til,
samkvæmt lögum þessum, errda brjóti
lög eða reglur Búnaðarfélagsins ekki í
bága við ákvæði laganna.
3. GREiN.
Störf þau, sem Búnaðarfélagi Islands
eru falin i lögum þessum, annast búnað-
armálastjóri með aðstoð ráðimauta og
trúnaðarmanna í samráði við stjórn fé-
lagsins.
Verði ágreiningur innan Búnaðarfé-
lagsins um skilning og framkvæmd á
lögum og reglugerðum þeirra laga, sem
félagið fer með í umboði ríkisvaldsins,
má skjóta ágreiningsatriðunum til land-
búnaðarráðherra, sem fellir fullnaðarúr-
skurð um málið.
4. GREIN.
I stað orðsins »búnaðarmálastjóri« í
fyrstu málsgrein komi s>Búnaðarfélag ís-
lands«.
5. OG 6. GREIN.
Hver sá, er njóta vill styrks samkvæmt
lögum þessum, verður að vera félags-
maður í búnaðarfélagi hrepps eða bæjar.
Þó getur enginn notið kosningarréttar
nema í einu búnaðarfélagi. 1 hverjum
hreppi skal að öllum jafnaði aðeins vera
eitt búnaðarfélag. Heimilt er þó að í
hreppi séu tvö búnaðarfélög, ef sérstakar
ástæður mæla með þvi og Búnaðarfélag
Islands samþykkir.
Stjórn búnaðarfélaga skal skylt að
halda skýrslur og reikninga, eftir því
sem stjórn Búnaðarfélags íslands ákveð-
ur. Samrit af skýrslum þessum og reikn-
ingum skal senda hlutaðeigandi búnaðar-
sambandi.
7. GREIN.
Greinin falli niður.
geta þess, að forsætisráðherra
lagði gott til þessara mála, vildi
hann taka fullt tillit til þeirra
óska, sem fram komu um breyt-
ingu á I. kafla jarðræktarlaganna.
í lok Búnaðarþings gengu Fram-
sóknarmenn síðan til samninga á
þeim grundvelli, sem lagður var í
tillögum meirihluta laganefndar á
aukabúnaðarþinginu í september
og fara tillögur meirihlutans og
samkomulagið hér á eftir, svo allir
geti séð, að Búnaðarþing hefir í
engu kvikað frá sinni stefnu.
Fyrsta grein jarðræktarlaganna er
óbreytt frá því sem var í jarð-
ræktarlögunum frá 1923 og var
um hana fullt samkomulag.
Samkomnlaglð.
á Búnaðarþingi i vetur:
2. GREIN.
Búnaðarfélag Islands hefir á hendi
umsjón með framkvæmd þeirra ræktun-
armála, sem lán eða styrkur er veittur til
samkvæmt Iögum þessum, enda sé skipu-
lag þess og starfsreglur í samræmi við
ákvæði laganna.
3. GREIN.
Störf þau, sem Búnaðarfélagi íslands
eru falin í lögum þessum, annast búnað-
armálastjóri, nieð aðstoð ráðunauta og
trúnaðarmanna undir umsjón stjórnar fé-
lagsins.
Greini búnaðarniálastjóra og stjórn fé-
lagsins á um hvernig skilja beri lög og
reglugerðir um þau mál, er félagið fer
nteð í umboði ríkisvaldsins, má skjóta á-
greiningnum til landbúnaðarmálaráð-
herra, er fellir fullnaðarúrskurð um mál-
ið.
4. GREIN.
I fyrstu málsgrein falli úr orðið »bún-
aðarmálastjóri«, en í staðinn komi »stjórn
Búnaðarfélags íslands«.
5. OG 6. GREIN.
I hverjum hreppi eða bæjarfélagi skal
vera eitt búnaðarfélag. Heimilt er þó, að
í hreppi séu tvö búnaðarfélög, ef sérstak-
ar ástæður mæla með því og Búnaðarfé-
lag íslands samþykkir.
Stjórn búnaðarfélaga skal skylt að
halda skýrslur og reikninga, eftir þvi
som stjórn Búnaðarfélags Islands ákveð-
ur. Samrit af skýrslum þessum og reikn-
ingum skal senda hlutaðeigandi búnaðar-
sambandi.
Hver sá, er njóta vill styrks sanikvæmt
lögum þessum, verður að vera félags-
maður í bpnaðarfélagi. þess hrepps eða
bæjar, þar sem hann á lögheimili.
Heimilt er þó með samþykki Búnaðar-
félags Islands, þeim bændum, er vegna
landshátta eiga erfitt með að vera í bún-
aðarfélagi síns hrepps, að vera í búnað-
arfélagi næstu sveitar.
7. GREIN.
Kjósa skal til Búnaðarþings innan
hvers búnaðarsambands. Um kosninga-
rétt og kjörgengi tii Búnaðarþings, svo
og tölu fulltrúa, fer eins og fyrir er mælt
í lögum Búnaðarfélags íslands.