Þjóðvörn - 03.06.1933, Blaðsíða 2

Þjóðvörn - 03.06.1933, Blaðsíða 2
P.J-Ó-Ð-V-Ö-R-N Jónasarliðið og P j óð ernishreyfingin. 6. Algjör útilokun og útrýming allra óhollra stefna í þjóðfélajjinu. Nú á síðari áium hafa komið fram í þjóðfélaginu stefnur, sem hafa vakið sundrung milli stétta, og hafa í för með sér upplausn og spillingu í stjórnmálum og er nú þegar svo langt gengið í slíku, að ekki er viðunandi. Pessar stefnur eru sósíalisminn, kommúnisminn og Hrilfumennskan. Pessar stefnur hafa unnið að því að veikja og sundra kröftum þjóðarinnar. Pjóðernis- sinnar vílja sameina krafta þjóðar- innar til starfs og dáða, og hljóta því að berjast gegn þessum stefnum, sem nú valda mestri spillingu í þjóðlííinu, uns yfir líkur. 7. Kosningaréttur jafn fyriralla. Pjóðernissinnar geta ekki unað því, að kosningafyrirkomulag sé svo úrelt og óréttlátt, að eirin þriðji hluti kjósenda geti ráðið meirihluta á Alþingi. Fví ætla Pjóðernissinnar að beita sér fyrir lausn kjördæmamálsins og ekki skiljast við þá baráttu, fyr en hver einn kjósandi heíir jöfn áhrif á skipun alþingis. Pá hefir í stórum dráttum verið skýrt frá stefnu blaðsins, og mun hvergi frá henni vikið meðan eg hefi með ritstjórn þess að gera. Nú er alt útlit fyrir, að þing verði rofið og kosningar fari fram á næstunni og mun blaðið af öll- um mætti fylgja fram sinni stefnu- skrá, og leitast við að vekja þjóð- ina og vara hana við hætfunni sem yfir henni vofir ef Hrifluliðið nær meirihluta á Alþingi. Verður því lagt kapp á, að blað- ið sinni stjórnmálum, en ekki hirt um úreltan og löngu kunnan frétta- samtíning eða bæjarslúður. sem eng- um getur að gagni komið. Væntir blaðið að ritfærir menn, innan Pjóðernishreyf ingarinnar, styrkji þaðöðruhvoru með greinum. Virðingarfyllst. , Pétur Á. Brekkati. Enskar húfur nýkomnar. Sjómannabúðin. Ekki leikur það á tveim tungum hvern hug Hrifluliðið beri til alls þess, sem miðar í þá átt að hefja einhverja viðreisnarlilraun innan þjóðfélagsins, sá hugur var svo a!- kunnur, að engan mun undra þótt blöð þeirra rísi nú upp með fjand- skap geng hinni ungu Pjóðernis- hreyfingu, og þeim áhugasömu um- bótamönnum, sem að henni standa. Byrjaði „Tíminn“ þegar, (eins og vanalega þegar eitthvað nýtilegt er á ferðinni,) að ausa yfir forgöngu- mennina úr sinni ótæmandi róg- burðar- og óþrifahlandfor, sem um langt skeið hefireitrað pólitískt and- andrúmsloft þjóðarinnar, með illum daun sem jafnan hefir af henni lagt. Dilkar „Timans“, sem sína and- legu næringu hafa jafnan úr þeirri óþrifa vilpu þegið, fylgdu þegar á eftir og birtir „Dagur“ á Akureyrí í 21. tbl. þ. á, sem út kom 25. maí s.l.‘ grein, með yfirskriftinni „Tveir Gíslar“. Greina þessi er illgirnislegt skens um för þeirra Gísla Sigurbjörnsson- ar og Gísla Bjarnasonar hér til Norð- urlandsins og um útifund, sem þeir nafnar héldu á Akureyri. Sýnilega er blaðinu mjög illa við það að Pjóðernissinnar skuli vera hlyntir kristindómi og trúa á guð, og að gerast svo djarfir að hvetja aðra til þess, enda er það alkunna að krist- indómur er i litlum hávegum hafð- ur í herbúðum Hriflunga. Pá er blaðið sýnilega slórhrifið af samherjum sínum, Kommúnistunum, Gunnari prestlausa og Steingríini Aðalsteinssyni og harmar sýnilega að Akureyringar skildu ekki vilja hlusta á gal þeirra. En Akureyring- ar hafa sýnt það að þeir hafa marg- ir kunnað að meta Pjóðernisheyf- inguna rétt, og er þegar starfandi fjölmennt félag Pjóðernissinna á Alc- ureyri, sem fara mun hraðvaxandi þrátt fyrir lundílsku Tímadilkanna þar, „Dags", „Alþýðumannsins" og „Verkamannsins". í sama strenginn hafa dilkarnir syðra semgefnir eru út afKommún- istum og Sósíalistum, tekið. En á skitkasti þeirra er höfð svo mikil fyrirlitning af öllum þorra manna, að fáir svara þeim, og verður því rógur þeirra að mestu „eintal sálar- innar“ við sjálfa sig. Á eftir dilkunum koma svo und- anvillíngarnir. „Einherji" hinn hlut- lausi. hefir undanfarið rætt um þjóð- ernishreyfinguna, í 18. tbl. birtist grein eftir annan ritstjórann, sem er Iilyntur Pjóðernishreyfingunni ogtal- • ar um hana af skilningi. En í 10. tbl. kveður nokkuð við annan tón, þar grípur hinn ritstjór- inn til pennans. Er auðheyrt að þar er Jónasarmaður á ferðinni, en Jó- nasarmaður mun Hannes Jónasson frekar vera af völdum illra forlaga en illu innræti. Grein þessi er að mörgu skýrleg- legar skrifuð en „Dags“-greinin, en þó á þann hátt að höfundur henn- ar vex ekki af henni. Gegn Gísla Bjarnasyni notar greinar'nöf. vopn sem drenglyndir menn myndu skammast sín fyrir að nola. Grein- arhöf. segir um Pjóðernishreyfing- una, að hún sé algjörlega „ófrjó“, „niðurrifsstefna", blandin „öfgum“ og líkleg til að hneigjast til einræð- is“. Sem svar við þessu má benda greinarhöf. á útdrátt þann úrstefnu- skrá Pjóðernissinna, er birtist hér á öðrum stað í blaðinu, og geta þá bæði hann og aðrir dæmt um hve mikil rök þessi ummæii greinarhöf. styðjast við. Greinarhöf. virðist hneixlast mjög á því að þjóðernissinnar skuli telja sig menn kristna og byggja starf sitt á .grundvelli trúarbragðanna enda er það mótsögn, og hún skýr, gegn því að hér sé um „ófrjófa niðurrifs- og öfgastefnu" að ræða, því reynslan hefir jafnan sýnt það. að þær stefn- ur, sem byggja á grundvelli krislin- dóms, hafa ekki verið ófrjófar. Að síðustu segir greinarhöf: „Hin íslenzka þjóð liefir um undanfarna allmarga áratugi búið við hinar glæsilegustu framfarir, undir því þjóðskipulagi sem nú ríkir og und- ir forustu þeirra manna, sem nú eru ofsóttir af þjóðernissinnum og komm- únistum". Petta er ekki rétt nema að nokkru leyti, framfarir þær sem orðið hafa eru áð vísu að mestu leyti verk þeirra manna sem Hrifl- ungar og samherjar þeirra, komm- únistarnir, ofsækja og rógbera mest. En hitt er ekki rétt að þeir menn séu ofsóttir af Pjóðernissinnum, þeir hafa engan ofsótt, Pjóðernis-

x

Þjóðvörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðvörn
https://timarit.is/publication/654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.