Þjóðvörn - 03.06.1933, Blaðsíða 3

Þjóðvörn - 03.06.1933, Blaðsíða 3
Þ-J-O-Ð-VO-R-N sinnar eru umbótamenn og þeir finna hispurslaust að því sem ábóta- vant er, en slíkt er þyrnir í augum Hriflunga, því þeir vita sem er, að allt í stjórn landsins og starfsháttum hins opinbera hefir öfugt gengið, síðan þeir tóku við stjórn á því herrans ári 1927. Peir vita því vel, að réttmætar aðfinnslur um þessa hluti koma sárast við kaun þeirra og samherja þeirra. Síðan segir greinarhöf.: „Nú er á þjóðarinnar valdi að velja leiðina fyrir framtíðina. Nú getur hún val- ið um hvort hún vill halda áfram á þeirri þróunarbraut er hún hefir gengið að þessu, eða hún vill taka upp erlendar öfgastefnur og fylgja þeim“. Retta er rétt, nú stendur í þjóð- arinnar valdi að veljr, og hún mun velja. Hún mun áður en langir tím- ar líða vakna til meðvitundar um að henni beri að hrinda af sér þeirri svívirðingu sem Hriflungar og þeirra samherjar hafa yfir hana leitt og munu halda áfram að leiða yfir hana meðan áhrifa þeirra gætir nokkuð. Pjóðin mun áður en mörg ár líða, hafa vaknað til meðvitund- ar um sjálfa sig og skipað sér undir merki hinnar íslensku Rjóðernis- hreyfingar en rekið öfgar Kommún- ista, hálfvelgju sósíalista og viðrin- ishátt Hriflunga af höndum sér og gerst frjáls. þjóð í frjálsu landi. f’jóðernishreyfingin mun vekja starf í stað kyrstöðu, áreiðanleik, einurð og festu, í stað þess óheil- brigðis, sem nú virðist ráða meztu í íslenzkum stjórnmálum. Kaupið aðeins r Aletruðu vinnuvetlingana Verð kvenmannsvetlingar 1,00 karlmannavetlingar 1,2$ Reynzlan ermargsinn- is búin að sýna að þessir vetlingar endast á við þrenna krónu- vetlinga. Fást allstaðar. Hrifluliðið. I. Fyrsta, og nokkuð fram á annan áratug þessarar aldar, var sjálf- stæðisbarátta þjóðarinnar það, sem skifti henni í flokka, og á þeim tíma voru ekki til nema tveir flokk- ar í landinu, Heimastjórnarmenn og Sjálfstæðismenn og skiftust þessir flokkar eftir því hvað langt væri gengið í sjálfstæðiskröfunum hverjar leiðir væru heppilggastar, til að fá kröfunum framgengt. Arið 1916, þegar sambandsmálið er að mestu úr sögunni, fór í fýrsta sinn fram landskjör, og kom þá fram, meðal annara lista, listi óháðra bænda. Samtök þau, sem voru um að koma upp þessum lista, voru fyrsti vísir- inn að stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem stofnaður var þá á næstunni og nefndur Framsóknarflokkur, þó munu ýmsir, er að samtökum óháðra bænda stóðu, hafa dregið sig í hlé, þegar þeirsáu hvertstefndi með þennan nýja flokk. Flokkur þessi mun hafa verið stofnaður 1917, og átti fulltrúa í fyrsta ráðu- neyti Jóns Magnússonar. Um líkt leyti var svo blaði flokksins, Tím- anum, hleypt af stokkunum og varð fyrsti ritstj. hans Guðbrandur sem nú er orðirm þjóðkunnur fyrir blöndunarhæfileika sina. Pá var Jónas Jónsson frá Hriflu kennari og lítt þektur meðal alþýðu í stjórnmálaskoðunum var hann tal- inn sósíalisti. Pessi maður sem jafnan hefir verið þyrstur í völd, en óvandur að bardagaaðferð til að ná þeim, varð þegar leiðandi maður flokks- ins. Um þetta leyti hafði Tryggvi Pórhallsson látið af prestskap, þeim vændum að ná í embætti við há- skólann, (en sú von brást honum, sem kunnugt er.) Gerðist hann þá þegar einn afleið- togum Framsóknar og þeir hafa síðan Tryggvi Pórhallsson og einkum þó Jónas Jónsson, gjört flest glappa- skotaog óhappaverk, allra íslenzkra stjórnmálamanna. Framsóknarflokkurinn taldi og tel- ur sig bændaflokk, og var því það fyrsta, sem þessir pólitízku loddar- ar hugsuðu um, að gera bændur sér háða á einhvern hátt, og ráðið fanst fljótlega.. Pá voru í flestum sveit- um starfandi kaupfélög og pöntun- arfélög. Var nú þessum félögum steipt saman í eina heildarkeðju með stofnun S. í. S. og hnýtt saman með öflugri samábyrgð, og síðan alt gjört til að draga félögin inn i póli- tízkar deilur og nota þau til viðgangs Framsóknarflokknum, sem tókst von- um fyr. Með þessu var lagður grundvöliur að pólitík Jónasarliðsins. Framh. íslenzkir Pjóðernissinnar. Elskið ættjarðarbönd Eflið þróttinn í hönd Látið íslenzka endurreisn hljóma! Finnið fjör ykkar lands, Finnið afl sérhvers manns! Verið ættlandi ykkar til sóma! Stillið hörpuna hátt Heyrið öldunnar slátt er hún brotnar við boða og granda Skynjið fossanna föll Finnið lands ykkar köll sem ei þola neinn útlendan anda. Jafnt í eldraun sem ást, Látið afl ykkar sjást sem að frelsi vors föðurlands þráið Yfir öræfin breið Riðjið órudda leið. Gróðrar-fræjum í fósturmold sáið. Pá er framtíðaröld. Pá er fagurt um kvöld, þegar endurreisn íslands er borin Pá slær birtu á hvern bæ, blikar ljós yfir sæ, eins og vermandi sunna á vorin. Óþektur höf. Olíuþylsi n alþekktu, tvöföld aftan og framan. OLÍUDÚKUR gulur o£ svartur, ný- komið í Skipaverzlunina.

x

Þjóðvörn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðvörn
https://timarit.is/publication/654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.