1. febrúar - 01.02.1937, Síða 1
1
Útgefendur: Bindindisfélag Gagnfræðaskóla Siglufjarðar og Stúkan Framsókn nr. 187
I
II. árgangur
Siglufirði, mánudaginn 1. febrúar 1937
1. tölublað
Tvö ár eru liðin frá því að áfengisflóðinu var
veitt yfir landið. Hver eru áhrifin ?
1. febrúar 1936 —
1. febrúar 1937
Eitt ár er liðið frá því að bind-
indismenn um iand alt töluðu í
ræðu og ríti um vandamál þjóðar-
innar, bindindismálið, og á þessum
áfanga, l. febrúar 1937, er aftur
hafið máls um sama efni. Reyndar
hefir oft verið rætt og ritað um
bindindismálin á síðasta ári, en á
þessum tímamótum er rétt að at-
huga hvað gerst hefir og hvað í
vændum er.
Við Siglfirðingar erum svo ein-
angraðir hér að mörgu leyti, að
eg tek málið aðeins frá þeirri hlið,
sem að okkur snýr, og er þá fyrst
að skýra frá því, hve mikið áfengi
hefir verið selt hér frá 1. janúar
1936 til 1. janúar 1937, eru það
rúmar tvö hundr-
uð tuttugu o£ sjö
þúsund krónur
og er það svo að segja sama upp-
hæð og hér seldist fyrir sfðastliðið
ár og er það hvorki fram- eða
afturför. En öllum er það ljóst, að
við getum ekki sætt okkur við það,
að þessi upphæð haldist óbreytt er
fram líða stundir, ár frá ári, og
verði að óhjákvæmilegum skatti,
sem vér verðum að taka með á
íjárhagsáætlun vora.
Enginn má hugsa á þá leið,
þegar þær tölur eru nefndar, sem
áfengi er selt fyrir hér, að þarmeð
sé alt talið, sem eytt er fyrir áfengi.
Háar upphæðir, sem eytt er í
sambandi við drykkjuskap, eru til,
en ómögulegt að segja um hve há-
ar þær eru. En til eru þó upphæð*
ir í sambandi við áfengisbrot, sem
hægt er að sanna, að beinlínis
bætast við ofannefnda upphæð. og
eru það sektir.
Á tímabilinu frá 4. júlí 1936 til
23. september s. á. eru 19 menn
dæmdir fyrir áfengislagabrot hér,
og nema sektir þeirra samtals tvö
þúsund tvö hundruð og fimmtíu kr.,
einn maður er sektaður fyrir sama
í desember s. á. og er sektarfé
hans eitt hundrað og fimmtíu
krónur nema þá sektir fyrir áfeng-
islagabrot á árinu 1936 alls
tvö fnísund og jjögur hundruð
krónutn.
Rá er ótalin öll eyðsla, sem fylgir
drykkjuskapnum og fram kemur í
eigin fataskemdum, og önnur fjár-
útlát, sem þessu fylgja.
Svo sem mörgum erljóst, er það
margt, sem maður kaupir, þegar
hann er undir áhrifum víns, sem
annars er ónauðsynlegt og ódrukkn-
um manni hefði aldrei dottið í hug
að leggja peninga út fyrir.
Alt þetta, sem hér er upptalið,
eru þó smámunir hjá því siðferðis-
lega tapi, sem leiðir af drykkju-
skapnum.
Fjármuna er ef til vill hægt að
afla sér at'tur, en mannorðshnekki er
oft ómögulegt að yfirvinna.
Heimilislíf er víða í rústum af
völdum ofdrykkjunnar, börn eru
alin upp við skort andlega og lík-
amlega, af sömu ástæðu og afbrot,
sem þó ekki eru brot á áfengislög-
gjöfinni, eiga í afar mörgum tilfell-
um rót sína að rekja til drykkju-
skapar, og þó að slíkt hafi ekki
enn verið raansakað hér á landi,
þá munu þeir tímar koma, að
þessi ummæli mín verða sönnuð
með óhrekjandi rökum.
Alt þetta, sem hér er um þessi
mál sagt, eru staðreyndir. Ástandið
er óþolandi, og bót verður ekki á
þvi ráðin, nema með samtökum og
góðum vilja allrar þjóðarinnar.
Enginn má sitja hjá, þegar barist
er góðri baráttu, sem varðar al-
menningsheill.
Pétur Björnsson.
I. O. G. T. I. O. G. T.
Stúkan Framsókn nr. 187
heldur fund í Kvenfélagshúsinu miðvikudaginn 3. febrúar 1937 kl. 8 e.h.
D A G S KRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Innsetning embættismanna.
3. Önnur mál sem fram kunna að koma,
4. Hagnefndaratriði.
Templarar fjölmennið! RITARI.
SÍDDEGISG UÐSÞJÓNUSTA
verður haldin í Siglufjarðarkirkju mánudaginn 1. febrúar kl. 8^ e. h. í til-
efni af útbreiðsludeéi bindindismanna.
Sóknarpresturinn prédikar.
Jón Jönsson, skölastjóri, flytur ræðu.
Sálmar nr. 23 — 720 — 358 — 638.