1. febrúar - 01.02.1937, Page 4

1. febrúar - 01.02.1937, Page 4
4 1. FEBRÚAR um þðu að nautna- eða heilsu- brunnum lífsins. Æskan er léttlynd og þráirgleði, en í yfirgripsgleðinni sér hún ei hættuna og því „bera menn þess sár um æfilöng ár, sem aðeins var stundarhlátur". Pað á því að vera lífsstarf okkar, að brjóta alla eitur- bikara Bakkusar, með því að allar konur, yngri sem eldri, gangi í félagsskap, sem neitar öllu áfengi í hvaða mynd sem er og ganga stúk' urnar lengst í því, á sama tíma sem þærveita bæði andlegan þroska og sanna gleði með starfi sínu. Eg vil, lesari minn, bregða upp fyrir þér mynd, sem tengd er við konuna og flöskuna. Pað eru því miður altof margar til, þótt eg að- eins bendi á þes*a. Við erum stödd í veislusal, allt er skreytt með Ijósum og blómum, borðin svigna undan réttunum og við hvern disk standa 4 glös. Pað er æskan sem streymir inn. Ungar sællegar meyjarog gjörfulegir svein- ar. Hér var ríki gleðinnar og hér svifu framtíðardaumar hinnar stór- huga æsku í loftinu, á herðum henn- ar átti framtíð lands og þjóðar að byggjast. Sveinarnir sögðust líka vera menn til að taka við af þeim Gunnari, Gissur og Geir og ekki mættu þeir verða minni en Egill í því að drekka og voru nú minni sögð mörg og oftlega skálað. Hinn villti Bakkus réði. — Pá var það eð ein af meyjunum stóð upp og sagði við sessunaut sinn: „Eg er Hallgerður langbrók, þú ert minnGunnar, eigi munt þú mér kinnhest gefa og frjáls er þér lokkur úr hári mínu í þinn bogastreng". — Var að þessu góður rómur gjörður og drukkið minni „Hallgerðar“ og drakk hún fast. „ Petta hóf tók enda sem öll önn- ur, en þetta var fyrsta og síðasta hófið hennar „Hallgerðar". — En hann Gunnar, litli drengurinn henn- ar, hefir ósvikið fengið lokka úr hári hennar í framtíðarbogann sinn, allt frá kastaníubrúnu lokkunum til silf- urhvíta hársins, sem hún nú ber. „Æ jæja, það var flaskan" er hún oft vön að segja um leið og tár koma í augun. Eg vil ljúka máli mínu með því, að skora á Jalla kvenþjóðina að standa saman um útrýmingu áfeng- isins. — I dag eru rétt tvö ár síðan stíflan var tekin úr flóðgáttum víns- ins og því á hleypt yfir landið. — I dag megum við ekki hika við að taka höndum saman til að loka aftur fyrir eiturveigina. Ef við kon- urnar göngum á undan, undir merki Trúar, Vonarog Kærleika, þá koma bændur okkar, synirog dætur með. Porfinna Dýrfjörð. Pættir úr sögu Reykjavikur fást í Bókuverzl. Hannesar Jónassonar. 1935 — 1. febrúar — 1937. (liugæiðlngar andbannings). Tvö ár. Pað er ekki langur tími í sögu þióðanna, en hvíltk feikna breyting getur þó ekki orðið á hög- um einstaklínga og þjóða á þeim tíma. Og ekkert tveggja ára tímabi! skiiur við heiminn að öllu leyti eins og þegar það hófst. Og þó er breyíingin hraðari f lífi einstaklinganna, hinir uugu þroskast en hinir görnlu hrörna. Og þó gctur stundum að líta þá sorglegu staðreynd, að þeim, sem ættu að vera á þroskabrautinni, miðar afturábak, vegna einhverra orsaka ut- an- eða iunanaðkomandi. Fyrir tveim árum mun það hafa verið flestra álit að íslenzka þjóðin væri á leið áfram eftir þroskabrautinni. Menn trúðu því almennt að hún væri orðin svo þrosk- uð, a. m, k. meirihluti hennar, að ó- hætt myndi vera að létta af þeim hömlum, sem þá gildandi lagaákvæði lögðu á innflutning áfengra drykkja, bæði vegna ófremdarástands þess, sem þá ríkti í áíengismálum þjóðarinnar og mörgum fannst óviðunandí, og hins, að þeir trúðu á menningarþroska þjóðarinnar að hún myndi ekki verða áfengisbölinu að bráð. Æskumönnum þjó3arinuar vartreyst til að standa á verði um framtíö sína og þjóðarinnar. Og þjóðin »jálf er enn á æsku- skeiði, en menn trúðu því að hún væri komin yfir gelgjuskeið þjóðlífs- ins og búin að ná þroska hinnar framgjörnu æsku, sem er orðin það þroskuð að hún velur sér veg yfir fenið, í stað þess að ana í blindni og festa sig f kviksyndinu. í þessu traustí munu bæði eg og aðrir, sem í ræðu og riti réðum til að afnema hömlurnar af áfengisinn- flutningnum, hafa tekið afststöðu okk- ar til málsins. Við gátum ekki trúað því að menn- ingin, sem alltaf var verið að guma af, reyndist hégómi einn, þegar á reyndi þro3kann og dómgreindina, Að vísu gerðum við ailtaf ráð fyrir að eitthvað meira yrði drukkið af áfengi, fyrst í stað, eftir að innflutn- ingur yrði frjáls. — En að áfengis- neyzlan reyndist siík, sem raun hefir á orðið, dalt víst engum f hug. — Að þessi fátæka þjóð fórnaði milljónum á milijónir ofan á altari Baccuiar, ár eftir ár, —við því höfðurn við ekki búist. Við bjuggumst við að áfengis- neyzlan ksemi aðallega á hina eldri kynslóð, en æskan reyndist svo þrosk- uð að henni væri lítil hætta búin. En — hin dapra reynzla hefir sýnt okkur að fólk á æskuskeiði, piltar og stúlkur, oft hin efnilegustu ungmenni, hafa kropið að lindum Baccusar, og lýnt þar sóma sínum og siðgæði. Pó þetta ætti sér oft stað áður, þá virð- ist þeim æskulýð hafa fjöigað, sem gerst hafa Baccusi háðir síðan I, febrúar 1935. Við verðum því að játa að við höfum reiknað skakkt í þessu tilfelli. Viö gerðum okkur vonir um að með innflutningi sterku vínanna yrði hægt að ráða nióurlögum „Landans", hefir það að því er virðist tekist að mestu. Eintiig er, að öllum Hkindum, minna um smygl á áfengi en áður var. Petta er að vísu góður árangur, en líka hið eina, sem hægt er að reikna til tekna. Leynisala mun alltaf hafa verið allmikil, bæði í sambandi við smygiið og heimabruggið og einnig með áfengi sem keypt var á löglegum útsölustöðum og selt út með álagningu þá tíma sem hinir löglegu útsölustað- ir voru lokaðir. Pessi tegund leynisölunnar mun ennþá standa í íullurn blóma, og jafn- vel stunduð af langtum fleirum en nokkru siuni áður. Pennan ósóma virðist vera allíilt að ráða við, því bæði gera kaupendur og seljendur sitt til að halda því leyndu og eins virðist það vera þegjandi samtök fjöldans að hylma yfir leynisöluna, eins og yfirleitt öll áfengislagabrot. Petta kæruleysi fjöldans gagnvart á- fengislöggjöfinni, er beinn arfur frá banntimanum, þá vöndust menn á þegjandi fyrirlitningu og jafnvel hatur gegn þessarri löggjöf, sem í fyrstu var sett móti vilja verulegs hluta þjóðarinnar, Pað ltarm nú að vera að sumum reglusystkinum mínum og öðrum, sem hafa verið og eru bannvinir, þyki þetta hörð fullyrðing, en eftir því sem eg hefi bezt getað tekið eftir og reyr.zlan hef^r sýnt, þá cr hún rétt. Og það er til ílls eins að reyna að blekkja sjálfan sig, með því að draga fjöður yfir þessa reynslu. Pegar við nú lítum yfir þessi tvö ár, sem liðin eru frá 1. febr. 1935, vaknar sú spurning, hvort við t áfeng- ismálunum höfum gengið fram, staðið í stað eða miðað afturábak ? Áfram hefir okkur ekki miðað, heldur höfum við staðið í stað og að sumu leyti miðað afturábak. En orsakanna til að okkur hefir miðað afturábak, er ekki fyrst og fremst afnám bannlaganna 1935, held- ur verður að leila þeirra langt aftur í tímann, allt til atkvæðagreiðslunnar 1908, Afleiðingarnar, sem eiga rót sína að rekja tíl þeirrar orsakar, að bann- lögin voru í öndverðu sett að óvilja allverulegs hluta þjóðarinnar og marg- lr áhrifamenn hennar voru þeim frá öndverðu andstæöir, liggja, sem ein keðja, er rekja má fram til þessa dags. Við erutn í dag stödd við það vandasama spursmá!: Hvað á að gera til að draga úr áfengisflóðinu og vernda þjóðina gegn vaxandi áfengis- hætíu ? Pið er afar erfitt að gefa svar við þessari spurningu og gera tillögur um framtíðar8kipulag þessara mála. Fræðsluleiðina verður að fara, að svo miklu leyti, sem unt er. En sú leið er seinfarin og langt er þar að marki. Bannleiðina er búið að reyna og hverfa frá henni, og sjáanlegt, að þýðingarlaust er að reyna hana nú f langa framtíð. Ekki vírðist úr vegi að athuga skömt- un á áfengi, eftir áfengisbókum, í það minsta er sú hugmynd það góð, að ekki má ganga fram hjá henni, án þess að taka hana til rækilegrar at- hugunar. En hvað sem gert er, má ekki hrapa að neinu eða setja neinar hömlur, sem sjáanlega verða til að vekja mikla mótstöðu, því að þær verka jafnan öfugt. Eg ætla ekki að fara að benda á neina leið, sem örugga, slíkt er ekki mitt færi. Eg vonast eftir að um það verði ritað af mér færari mönnum. • En eitt er það, sem þegar má hefjast handa með, og það er útrým- ing leynisölunnar. Um það munu ekki vera skiftar skoðanir meðal allra bindindisvina, að hún er svívirðileg þjóðarskömm, sem hverjum heiðarlegum borgara á að vera heiiög skylda að vinna á móti. Á leynisöluna ber að líta sem þjófn- að af versta tagi, þar sem með henni er ástundað að hafa fé af mönnum, sem alloftast eru undir áhrifum víns og geta því ekki talist sjálfráðir gerða sinna. Dæmi munu til þess, að þorparar þeir. sem leynisöluna stunda, veiti mönnum vín til þess að geta féflett þá, þegar þeir gerast ölvaðir. Pað er þessi svívirðing, sem fyrst af öllu þarf að gera allsherjar herferð gegn, með aðstoö allra heiðarlegra manna, í hverri stétt sem þeir eru og hvar í flokki sem þeir standa í stjérn- málum. P. Á. B. Kvenfélagið Von biður þess getið, að fundur sá, er halda átti fimtudaginn 4. þ. m. verði eigi fyr en fimludaginn 11. þ. m. fíiglufjai-ðarprentsmiðj a.

x

1. febrúar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 1. febrúar
https://timarit.is/publication/664

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.