Póst- og símatíðindi - 01.09.1967, Blaðsíða 8
8
14.7.1967. Umdæmisbréf nr. 24.
— Umdæmisstöðvarnar, Vm, Hf, Sg og Stm —
Símstöðin Lundur, áður Skinnastaður, hefur verið flutt að Hafrafellstungu í
öxarfjarðarhreppi. Stöðvarstjóri cr frú Nanna Lára Karlsdóttir og skammstöfun
stöðvarinnar Hft.
1.8.1967. Umburðarbréf nr. 25.
— Til allra póst- og símstöðva —
Staða umdæmisstjóra og stöðvarstjóra pósts og síma, Seyðisfirði, hefur verið
veitt Svavari Karlssyni, frá 1. ágúst 1967.
21.8.1967. Umburðarbréf nr. 26.
— Umdæmisstöðvarnar, Vm, Hf, Sg og Slm —
Nýlega hefur Aðalsteinn Norberg verið skipaður ritsímastjóri i Reykjavík frá 1.
janúar 1968 að telja. Enn fremur hefur Arnþór Þórólfsson verið ráðinn stöðvar-
stjóri pósts og síma á Reyðarfirði frá 1. september 1967.
Tilkynnið eftir þörfum.
25.8.1967. Umburðarbréf nr. 27.
— Umdæmisstöðvarnar, Vm, Hf, Sg og Stm —
Landssímastöðvarnar Núpsstaður, Hörglandshreppi og Breiðabólsstaður, Mið-
dalahreppi, hafa verið lagðar niður. Samtímis hefur Núpstaður verið tengdur Kirkju-
bæjarldaustri en Breiðabólsstaður og notendur þar Brautarholti, Haukadalshreppi,
Dalasýslu.
31.8.1967. Umburðarbréf nr. 28.
— Umdæmisstöðvarnar, Vm, Hf, Sg og Stm —
Landssímastöðin Stakkahlíð Loðmundarfjarðarhreppi hefur verið lögð niður
og notendur þar samtímis tengdir Seyðisfirði.
4.9.1967. Umburðarbréf nr. 29.
— Umdæmisstöðvarnar, Vm, Hf, Sg og Stm —
Gjald fyrir aukalínur og breytt letur í símaskránni óskast innheimt og fært til
tekna í októberreikningi stöðvanna. Sjá gjaldskrá bls. 167 í skránni.
23.9.1967. Umburðarbréf nr. 30.
í dag hefur verið opnuð sjálfvirk símstöð í Stykkishólmi. Sjá simaskrá bls. 68.
Póst- og simamálastjóri.
G. Briem.
Aðalsteinn Norberg.
Rafn Júliusson.
Gutenberg.