Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 33
MORGUNN
23
ofsóknir úr ýmsum áttum er nú svo komið, að milljónir
°g aftur milljónir manna um heim allan eru reiðubúnir
Weð þann vitnisburð, að á vegum spíritismans hafi þeir
óðlazt verðmæti, sem þeim er nú ljóst, að þeir hefðu sízt
viljað fara á mis við að eignast. Og fjöldi hinna vitrustu
Wanna úr þessari miklu fylking fullyrðir, að þarna sé það
mál að finna, sem bjargað geti mannkyninu.
Sumum þessara manna hefir spíritisminn bjargað út úr
ogöngum hinna vísindalegu efnishyggju. öðrum hefir hann
ójargað af gljúfurbarmi vitfirrtrar örvæntingar, þegar sár-
asta lífssorgin var á herðar þeirra lögð. öllum þessum
mönnum hefir hann veitt nýja útsýn yfir lífið, varpað
Ijósi á torráðnustu vandamál tilverunnar og gefið mönn-
^n þrek til að lifa, sálarfrið og gleði, sem spratt af nýj-
Um lífsskilningi.
FYRIRRENNARARNIR.
Upphaf þessarar hreyfingar, sem svo er voldug orðin,
teljum vér atburðina í Hydesville fyrir eitt hundrað ár-
Um, en þó er það ekki nema að vissu leyti rétt, því að fyr-
b^igðin, sem sálarrannsóknirnar ,fást við og spíritisminn
byggir á boðskap sinn, eru ekki aðeins aldar gömul, heldur
roiklu eldri, þau eru, að því er séð verður, jafn gömul
mannkyninu. . , . . ,
Ef trúa má mannlegum vitnisburði yfirlejtt, og hvar
stöndum vér með hugmyndir vorar um tilveruna og þekk-
mgarleit vora alla, ef vér gerum.ekki það, já, ef vér tök-
um þennan vitnisburð um reynslu mannanna gildan, hljót-
um vér að reka oss á þá staðreynd, að svo langt aftur í
nldir, sem sögur ná til og vér eigum nokkrar heimildir
um mannlegt líf hér á jörðu, hafa hin svonefndu sálrænu
fyrirbrigði fylgt mannkyninu, og meira að segja hafa öll
Þau sálrænu fyrirbæri, sem vér þekkjum í dag, verið föru-
hautar mannanna aftur í forneskju.