Morgunn - 01.06.1948, Blaðsíða 40
30
MORGUNN
sambandi við hið ósýnilega afl fæddist ekki í kolli neins
af hyggindamönnum heimsins heldur í óþroskuðu barns-
höfði. En „vegir Guðs eru ekki vorir vegir", leiðir hans
eru oft undarlegar. Kristur fæddist heldur ekki í höllum
hinna háu, og vísdómur hans fæddist ekki í höfðum hygg-
indamanna þeirrar aldar. Páll postuli segir: „Guð hefir
útvalið það, sem heimurinn telur heimsku. til þess að gjöra
hinum vitru kinnroða, og Guð hefir útvalið það, sem heim-
urinn telur veikleika, til þess að gjöra hinum voldu.gu kinn-
roða.“ Þegar vér lítum um öxl yfir hundrað ára sögu spír-
itismans, verður oss ljóst, að þessi orð má heimfæra upp
á atburðina, sem gerðust þar sem vagga spíritismans stóð.
Hér verður að fara fljótt vfir mikla sögu.
Mikinn hluta næturinnar 31. marz 1848, dvaldist nokk-
ur hópur manna í húsi Fox-h.iónanna, eftir að mæðgurnar
voru farnir til að fá næturfrið h.iá vinafólki sínu. Þessir
menn héldu áfram að spvr.ia hið ósýnilega afl, og svörin
komu. Framliðinn maður kvaðst vera hér að verki. Ná-
granni Fox-fjölskyldunnar, að nafni Duesler, fann upp á
því snjallræði, að ná orðasambandi við þetta óþekkta afl
með þeim hætti, að hann las yfir stafrófið og bað um að
högg kæmi, þegar hann nefndi réttan staf. Þetta tókst
þá þegar, og nú komu með þessum hætti orðsendingar
frá óþekkta aflinu. Hann kvaðst vera karlmaður og hefði
verið myrtur í þessu húsi f.yrir fimm árum og hefði
þá verið 31 árs. Hann stafaði nafn mannsins, sem hann
kvað hafa verið valdur að dauða sínum og kvaðst hafa
verið myrtur til fjár. Nafn sitt sagði hann vera Charles
B. Rosma, og kvað lik sitt vera grafið tíu fet niður í kjall-
aragólfið. Þung og einkennilega hljómlaus högg heyrðust
koma eins og neðan úr jörðunni, þegar einn þeirra, sem
þama var að rannsaka, kom niður í kjallarann og stóð
á miðju gólfi. Kvöldið eftir var tilraunum haldið áfram og
þá var mannfjöldinn svo mikill, að um tvö hundruð manns
höfðu safnzt saman umhverfis húsið, Daginn þar á eftir